Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021
NÁMSLEYFI GRUNNSKÓLAKENNARA OG SKÓLASTJÓRNENDA
SKÓLAÁRIÐ 2022–2023
Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2022–2023.
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að við úthlutun verði sett í forgang nám sem tengist:
• stafrænni umbreytingu náms- og kennsluhátta
• lýðræði í skólastarfi
• fjölbreyttum kennsluháttum og nýsköpun
Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, www.samband.is. Umsóknir á
öðru formi verða ekki teknar gildar. Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar upplýsingar að koma fram í umsókninni.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2021.
Umsækjandi sem æskir námsleyfis skal að lágmarki fullnægja eftirfarandi skilyrðum, sbr. reglur um Námsleyfasjóð:
a) Hafa, þegar sótt er um námsleyfi, gegnt starfi í 10 ár samtals við kennslu, ráðgjöf eða stjórnun í grunnskóla á Íslandi,
í eigi minna en hálfu starfi, og verið samfellt í starfi sl. fjögur ár, enda hafi verið greitt fyrir umsækjanda í sjóðinn.
b) Vera fastráðinn starfsmaður sveitarfélags eða aðila sem stofnað er til með samstarfi sveitarfélaga og taka laun samkvæmt
kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna grunnskólans.
c) Ljúka á námstímanum 60 ECTS eininga háskólanámi, eða jafngildu háskólanámi, miðað við 1/1 námsleyfi,
og skal námið miða að því að nýtast viðkomandi í því starfi sem hann er ráðinn til að sinna.
Með umsókn þarf að berast staðfesting sveitarfélags/skólastjóra, eða eftir atvikum rekstraraðila skóla, um að skilyrðum a) og b)
liðar hér að ofan sé uppfyllt á þar til gerðu eyðublaði sem nálgast má á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Reglur um Námsleyfasjóð og viðmiðunarreglur um laun í námsleyfi er að finna á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga og
eru umsækjendur hvattir til að kynna sér þær.
Við mat á umsóknum er haft til hliðsjónar hversu vel hún er rökstudd, hversu skýr markmið hennar eru, hvernig námið nýtist
umsækjanda í núverandi starfi og stofnuninni sem hann vinnur hjá eða skólakerfinu í heild.
Stefnt er að því að svarbréf berist umsækjendum eigi síðar en um miðjan desember 2021.
Nánari upplýsingar veitir Klara E. Finnbogadóttir í síma 515 4900 eða í tölvupósti á klara.e.finnbogadottir@samband.is
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
J<55 #XKW93AF9#(!B!U! 8 0(OWXFA(6DC I -(9W'9C@!#MAA3A
4>A6(A6F 'O9!9 #MA) 0(OWXFA(6DCXF9 R6WF9 ('5!9 5!UD>@3B 8 2(9W'9C@!#MAA3A A<6 #XKW93AF9#(!B!U!6 6(B
2(9@39 65F@6(55 F@ JXF9@F92MUU3B * 8 0(OWXFA(6DCH 1 UR@!AA! (9 'O9!9 65F9'FA)! #XKW93AF9#(!B!U! >& 6WFU A<XF
#XKW93AF9#(!B!U!@ !AA!#FU)F 9<B! 'O9!9 $E #(!B!U!6B(AAH
/!UD>@3B 6WFU 6W!UF@ B(@ 9F'9CA3B #C55! % K5D>@62(' (!&! 68@F9 (AV WUH ,$VEE 7FAA *"H 6(=5(BD(9 *E*,H
NC&5 (9 F@ 6CWXF MUU K5D>@6&M&A %A &9(!@6U3 % K5D>@62('A3B SSSH5(A)6!&AH!6H
J%AF9! 3==U<6!A&F9 B% '!AAF % SSSH+>A6(A6FH!6 >& 8 K5D>@6&M&A3B 6(B (93
MUU3B F@&(A&!U(& % K5D>@62('A3B % 2('6UR@!AA!V
#55=6VGG5(A)6!&AH!6G)>+HF6=Q;.A!:3(L)?F'!9!3O5A!TP>/>?/(A)(9
Tilboð/útboð
Tilboð/útboð
Svavar Guðnason
Róska
Alfreð Flóki
Fjársterkir aðilar eru að leita að lista-
verkum eftir framangreinda listamenn.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Hansen
í síma 845 0450. fold@myndlist.is
Fold uppboðshús ehf. Rauðarárstíg 12-14.
Óska eftir
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
BÍLDSHÖFÐI 16, 110 REYKJAVÍK
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
TIL SÖLU
Ríkiskaup kynna eignina Bíldshöfði 16, 110 Reykjavík.
Skrifstofu- og verslunarhúsnæði á eftirsóttum stað.
Birt stærð 1086,8 m2. Um er að ræða alla 3. hæðina og
vesturhluta 4. hæðar. Tveir inngangar, annar að sunnan-
og hinn að norðanverðu. Aðalinngangur er sameiginlegur
á 2. hæð baka til við húsið. Sameiginlegar hellulagðar
svalir eru til suðurs á 4. hæðinni. Björt og snyrtileg
sameign. Næg bílastæði og góð aðkoma að húsinu.
Húsið er steinsteypt 4ra hæða hús án lyftu.
Hægt verður að skoða eignina miðvikudaginn
1. september á milli kl. 15:00 - 16:00.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa:
www.rikiskaup.is
Verð: 210 mkr.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á
henni sjálfri, sem hér segir:
Bræðraborgarstígur 36, Reykjavík, fnr. 200-1288, þingl. eig. Kristján
Gunnar Ólafsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn
1. september nk. kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
27. ágúst 2021
Nauðungarsala
Jöfnunarstyrkur til náms
Umsóknarfrestur á haustönn 2021 er
til 15. október nk.
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki
njóta lána hjá Menntasjóði námsmanna geta
sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði.
Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem
stunda nám fjarri heimili sínu.
. Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri
lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms
og greiða leigu).
. Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem
sækja nám frá lögheimili fjarri skóla).
Opnað er fyrir umsóknir 1. september 2021.
Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn
með rafrænum skilríkjum á ,,Mitt Lán” sem
aðgengilegt er í gegnum heimasíðu okkar
www.menntasjodur.is eða island.is. Nemend-
ur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að
kynna sér reglur um styrkinn á vef Mennta-
sjóðsins.
Menntasjóður námsmanna
Námsstyrkjanefnd
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100
200 mílur