Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.8. 2021 2 0 ára hernaði í Afganistan lauk með því að talíbanar gengu mótstöðulaust inn í höf- uðborgina Kabúl og tóku við völd- um. Vestræn ríki kepptust við að forða borgurum sínum og herliði úr landi, en auk þess reyndu tugþús- undir Afgana að flýja yfirvofandi harðstjórn, sérstaklega fólk sem tengdist fyrri stjórnvöldum og vest- rænu herliði með einhverjum hætti. Skömmu áður en kórónuveiran breiddist út af fullum þunga í Sví- þjóð náðu Björn Zoëga og sam- starfsmenn hans á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi að fimm- falda gjörgæslurúm spítalans. Hann telur afkastatengda fjármögnun spítala lykil að bættri nýtingu þeirra, en á Landspítalanum hefur framleiðni farið minnkandi frá árinu 2015 um leið og fjárframlög þangað hafa aukist. Sumir læknar þar urðu mjög fúlir við þær ábend- ingar. Víkingur Heiðar Ólafsson píanó- leikari var um liðna helgi fyrsti ís- lenski einleikarinn á Proms- hátíðinni í Lundúnum, en tónleik- arnir fóru fram í Albert Hall. Þar lék hann sitt hvorn píanókonsertinn eftir Bach og Mozart og hlaut ein- stakar viðtökur bæði áhorfenda og gagnrýnenda. Mann, sem lagðist til sunds í hlýju útfalli Reykjanesvirkjunar, bar út á haf og komst ekki í land. Hann var hífður um borð í þyrlu Landhelgis- gæslunnar en ekki tókst að endur- lífga hann. Flugumferðarstjórar féllu frá verk- falli eftir að hafa komið ánægðari af samningafundi en búist var við. Þeir segjast bjartsýnir á að um semjist. Virkum smitum hélt áfram að fækka en tæplega tvö þúsund manns voru í sóttkví og liðlega 1.200 í einangrun. Reglum um komufarþega til landsins var breytt þannig að farþegar með tengsl við landið þurfa að fara í sýnatöku inn- an við 48 stundum eftir komuna. Olía er enn á ný tekin að leka úr breska olíuskipinu El Grillo á botni Seyðisfjarðar og hafa heimamenn áhyggjur af áhrifum á lífríkið. Skip- inu var sökkt af þýska flughernum í heimsstyrjöldinni síðari. Ráðagerðir eru uppi um að fjarlægja flakið, en nefnd í umhverfisráðuneytinu hefur þær til umfjöllunar. Talsverðar breytingar voru gerðar hjá Strætó bs. þegar um 500 bið- stöðvar fengu nýtt nafn. Mjög póst- módernískt allt. Miðflokkurinn hélt landsþing sitt um liðna helgi, en þar var lokahönd lögð á kosningastefnu flokksins. Hún verður kynnt á næstunni. . . . Flóttamannanefnd var kvödd sam- an vegna ástandsins í Afganistan, en tugþúsundir reyna að flýja það- an eftir valdatöku talíbana og búist við að straumurinn þyngist næstu mánuði. Guðlaugur Þór Þórðar- son utanríkisráðherra sagði að Ís- land myndi axla ábyrgð sína. Samkvæmt könnun um búsetu- áform í helstu borg og bæjum landsins telja 70% íbúa ólíklegt að þau flytji úr heimabyggð og eru ánægð þar. Um 55% telja að lífs- skilyrðin í sinni byggð hafi batnað en um 15% að þau hafi versnað. Ánægðastir allra voru íbúar Þor- lákshafnar. . . . Smitum hélt afram að fækka og á mánudag höfðu ekki færri verið með virkt smit síðan í júlí. Tölfræði bendir til þess að smitbylgjan hafi náð hámarki 7. ágúst. Fornar mannvistarleifar frá 10.-13. öld hafa óvænt komið í ljós í landi Fjarðar í Seyðisfirði. Þær eru skammt norðaustan við gamla bæj- arstæðið þar, en þar er talið að landnámsmaðurinn Bjólfur hafi bú- ið. Rannsóknum verður haldið áfram næstu vikur og er gert ráð fyrir því að haldið verði áfram næsta sumar. Þórólfur Guðnason sagði að ef ekki yrði farið að ráðum sínum gæti það haft mjög neikvæð áhrif á heil- brigðiskerfið. Samkvæmt tillögu í endurskoðuðu aðalskipulagi Vesturbyggðar verður Vatnsfjörður ekki þveraður, heldur Vestfjarðavegur lagfærður þar sem hann er. Verktakinn ÞG Verk hefur hafist handa við lagningu tveggja tví- breiðra stórbrúa á Suðurlandi yfir Hverfisfljót og Núpsvötn. Fyrir var ÞG með brú yfir Jökulsá á Sól- heimasandi í smíðum. . . . Greiðslumiðlun í landinu er nær alfarið komin undir erlent forræði eftir að Valitor var seldur til ísr- aelska fjártæknifyrirtækisins Rapyd. Embættismenn hafa af þessu áhyggjur og hefur málið ver- ið til umfjöllunar þjóðarörygg- isráðs. Varla kemur á óvart að apótek landsins hafi selt meira af hand- spritti, grímum og latex-hönskum eftir að heimsfaraldurinn tók að geisa. Hins vegar hefur komið á óvart að töluvert meira er nú selt af þungunarprófum en fyrir plágu. Ísleifur B. Þórhallsson tónleika- haldari hjá Senu telur vel unnt að halda stóra viðburði án þess að allt sé í voða. Samráðshópur íslenskrar tónlistar sendi ráðamönnum bæna- skjal á þriðjudag um að und- anþága verði veitt fyrir 500 manna sóttvarnahólf án sérstakra nándar- takmarkana, enda þurfi gestir að framvísa nýlegu og neikvæðu hraðaprófi til þess að fá aðgang. Þórarinn Guðjónsson, deildar- forseti læknadeildar Háskóla Ís- lands, segir að flöskuhálsinn við læknamenntun liggi ekki hjá há- skólanum heldur Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi, sem ekki geti tekið við nema takmörkuðum fjölda í klíníska kennslu. Á sama tíma er kvartað undan að ekki sé unnt að manna störf þar á bænum. Flóttamannanefnd stjórnarráðsins fundaði á þriðjudag um ástandið í Afganistan, en komst að þeirri nið- urstöðu að hún þyrfti meiri tíma til að móta tillögur um viðbrögð. Afg- anar bíða þolinmóðir. Breyttar samgönguvenjur hafa margvísleg áhrif, m.a. þau að tann- brotum hefur fjölgað í takt við raf- skútur. Jakob Frímann Magnússon tók efsta sætið á lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi. Góðar væntingar eru um afrakstur loðnuleiðangurs í byrjun sept- ember, jafnvel svo úr verði stærsta vertíð um talsvert skeið. Framleiðendur heitra potta hafa ekki undan að búa til potta fyrir hreinláta og drykkfellda Íslendinga. . . . Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir skrifaði minnisblað til heil- brigðisráðherra og telur að Íslend- ingar muni búa við stöðuga ógn af Covid-19 meðan faraldursins gæti einhvers staðar í heiminum. Því þurfi þeir að gera sér ýmsar frels- isskerðingar að góðu til frambúðar. Orðið veldisvöxtur kom aftur við sögu í umræðu um faraldurinn án frekari rökstuðnings. Seðlabankinn undirbýr nú sjálf- stæða innlenda greiðslulausn, svo eyjarskeggjar þurfi ekki að vera háðir greiðslumiðlun undir erlend- um yfirráðum. Þrátt fyrir að rannsóknir á Dreka- svæðinu hafi ekki leitt til olíu- vinnslu á svæðinu eru rannsókn- argögnin verðmæt fyrir Íslendinga. Íslenskar orkurannsóknir telja að gögnin séu milljarða króna virði. Allnokkrir íbúar í Laugarneshverfi mótmæla tillögu að nýju starfsleyfi Vöku í Héðinsgötu og telja að starf- semin muni ekki breytast og ekki samrýmast skipulagi. Erlendur ferðamaður féll 15 metra niður skriðu í Stuðlagili og endaði í ánni Jöklu. Hann lifði það af og hélt meðvitund allan tímann. Eldgosið í Geldingadölum varð fimm mánaða gamalt. . . . Stefnt er að stærstu úthlutun far- netstíðna í kringum næstu áramót, en uppbygging 5G-fjarskiptakerf- isins hefur gengið ört fyrir sig að undanförnu og nær nú til um helm- ings landsmanna að sögn sam- gönguráðherra. Sem er frábært af- rek í ljósi þess að á höfuðborgar- svæðinu einu búa tveir þriðju lands- manna. Forverðir hafa áhyggjur af eldgos- inu í Geldingadölum og óttast mengun minja og muna á Þjóð- minjasafninu. Austfirðingar eru óhressir með hve illa gengur að fá verktaka til starfa eystra, en þar eru stærri verktakar á kafi í verkefnum fyrir Síldar- vinnsluna og auðkýfinginn Jim Ratcliffe. Hefur m.a. þurft að breyta áformum við uppbyggingu menningarhúss á Egilsstöðum. Ítalinn Giancarlo Gianazza leitaði enn eitt sumarið án árangurs að gralinu helga á Íslandi, að þessu sinni í Skipholtskróki á Kili. Ekki er ljóst af hverju matargestir í síð- ustu kvöldmáltíðinni ættu að hafa lagt það frá sér hér á landi. Sælkerarnir í yfirskattanefnd hafa eftir miklar rannsóknir komist að því að tiltekinn ostur sé ostur en ekki gerviostur og skuli því bera toll. Borgaryfirvöld voru gagnrýnd ákaflega fyrir vinnubrögð og naumindi á sannleikann vegna nemenda í Fossvogsskóla, sem enn eru á vergangi þótt nýtt skóla- ár sé yfirvofandi. Til þess að þurfa ekki að bera ábyrgð á nokkurri ákvörðun brá borgin á það ráð að gera skoðanakönnun meðal for- eldra um hvert ætti að senda börn- in. Síðast þegar fréttist virtist menntun barnanna og heilbrigði velta á hernaðaraðstoð Hjálpræð- ishersins. Styrmir Gunnarsson ritstjóri lést, 83 ára að aldri. Kaos í Kabúl Þessir Afganar ákváðu að bíða ekki umþóttunar flóttamannanefndar um tillögur þeim til hjálpar og tróðu sér, 640 tals- ins, í bandaríska herflutningavél á leið frá Kabúl. Tugþúsundir annarra leita leiða frá Afganistan eftir valdatöku talíbana. AFP 15.8.-20.8. Andrés Magnússon andres@mbl.is Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18 25 ára 1996-2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.