Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Page 6
Bleikir flamingófuglar snyrta sig
við Fuglavatnið í Kowloon-garði í
Hong Kong. Þar sem garðurinn
stendur nú voru eitt sinn breskir
herskálar. Garðurinn var opn-
aður fyrir rúmlega hálfri öld og
er rúmir 13 hektarar. Þar er
fuglahús og einnig lifir þar fjöldri
villtra fuglategunda.
AFP
Fagurbleikir
flamingófuglar
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.8. 2021
Þ
egar þetta er skrifað eru
rúmlega 2.500 einstaklingar
í sóttkví hér á landi. Mun
fleiri eru sennilega í óskráðri
sóttkví samkvæmt fyrirmælum
sem berast með óformlegri hætti
eða af sjálfskipaðri varúð. Þetta
felur í sér mikla röskun á daglegu
lífi alls þessa fólks og allra sem á
það treysta, bæði í einkalífi og
vinnu. Við það bætist að óttinn við
að lenda í sóttkví lamar alls kyns
framtak; stór hluti þjóðarinnar
heldur bókstaflega að sér höndum.
Við erum bólusett samfélag sem
stendur frammi fyrir stærstu
bylgju smita sem gengið hefur yfir
landið og ef við getum lært af
reynslu annarra ríkja má búast
við að smitum fjölgi, jafnvel veru-
lega, eftir að skólastarf hefst af
krafti. Það myndi að óbreyttum
reglum leiða til þess að jafnvel
enn stærri hluti þjóðarinnar þyrfti
að loka sig af heima sjá sér í
sóttkví. Ástæðan er vitaskuld sú
að við beitum nán-
ast sömu reglum
um sóttkví nú eins
og áður í faraldr-
inum.
Fyrirsjáanleg
holskefla sóttkvíar
meðal barna, ungmenna og for-
eldra hefur eðlilega verið tilefni
vaxandi umræðu undanfarna daga.
Jón Pétur Zimsen, skólastjóri
Melaskóla, segir þannig í viðtali
við Morgunblaðið: „Ég myndi vilja
breyta reglum um sóttkví hjá
einkennalausum, börnum og skóla-
starfsfólki. Það verður allt komið í
lás eftir eina til tvær vikur ef við
höldum óbreyttum reglum um
sóttkví. Hjúkrunarfræðingar eiga
líka börn.“ Þetta er ekki langsótt
spá hjá Jóni Pétri.
Á sama tíma beita löndin í
kringum okkur mun vægari
reglum í tengslum við sóttkví
barna og fullorðinna. Þar eru heilu
bekkjardeildirnar að jafnaði ekki
settar í sóttkví þótt einstaka smit
greinist, notast er við hraðpróf til
þess að halda skólastarfi gangandi
og bólusettir einstaklingar þurfa
að jafnaði ekki að sæta sóttkví,
þótt þeir séu hvattir til smitgátar
og prófunar hafi þeir verið í návígi
við smitaðan einstakling.
Eðlilegt er að spurt sé af vax-
andi þunga hvort tilefni sé til þess
að endurskoða reglurnar hér
heima, einkum í ljósi þess að hinar
háu smittölur á Íslandi eru að
koma fram í samfélagi sem er
nánast búið að bólusetja að fullu.
Ánægjulegt er að slík endur-
skoðun sé nú að eiga sér stað.
Góður árangur Íslands
þrátt fyrir smit
Nýgengi smita á Íslandi er nú
hátt í samanburði við stöðuna í
flestum Evrópulöndum um þessar
mundir, en þó töluvert langt undir
stærstu toppum sem sést hafa áð-
ur í mörgum löndum í kringum
okkur. Dæmi eru um nágranna-
lönd þar sem smit eru útbreiddari
en hér (t.d. Bretland, Frakkland
og Spánn) en mun fleiri lönd eru
hins vegar með umtalsvert minni
útbreiðslu en við.
Stóri munurinn á þeirri bylgju
sem nú gengur yfir á Íslandi og
því sem gerðist í vetur er að ólán
okkar í dreifingu smita er að eiga
sér stað eftir að búið er að bólu-
setja 90% fullorðinna einstaklinga.
Enginn vafi er á því að árangur
Íslands í að halda niðri smitum á
meðan bólusetningarátakið stóð
yfir var lykilatriði við að vernda
samfélagið eins vel og hugsast
mátti gegn skaðsemi veirunnar.
Við erum blessunarlega mjög neð-
arlega á hinum miklu verri lista
um fjölda andláta af völdum Co-
vid-19 í Evrópu og munar þar
miklu á Íslandi og flestum öðrum
löndum.
Breytt nálgun
Kórónuveiran hefur haldið heims-
byggðinni í heljargreipum veik-
inda og ótta. Samfélög hafa víða
lamast og annars staðar hefur lífið
varla verið skugginn af því sem
fólk á að venjast. En lífið er sem
betur fer víðast að hrökkva í gang.
Sums staðar var kostnaðurinn
skelfilegur, samsvarandi hundr-
uðum andláta á ís-
lenskan mæli-
kvarða og
langvarandi hættu-
ástand í heilbrigð-
iskerfinu. En jafn-
vel þar sem
skelfingin var sem mest hefur
áherslan nú flust yfir á að standa
vörð um þá hluti mannlegrar til-
veru sem gefa lífinu sjálfu gildi:
samveru við annað fólk, frelsi,
menningu, menntun o.s.frv.
Heimsfaraldurinn hefur reynst
skæður óvinur mannkynsins. Þó
er enginn vafi að mannkynið og
mennskan mun á endanum sigra
og hér á landi erum við vonandi
komin langleiðina að slíkum sigri,
þökk sé samstöðu þjóðarinnar. Við
sýndum þolgæði í gegnum erfiðan
vetur og tókum brosandi þátt í
bólusetningarátaki sumarsins.
Vörnin sem við höfum hlotið er
ekki algjör eða fullkomin, en hún
er líklega eins og best er á kosið.
Framúrskarandi árangur okkar
við að koma í veg fyrir alvarleg
veikindi ætti að gefa okkur okkur
vaxandi sjálfstraust. Hér eftir sem
hingað til er það skylda okkar að
vernda líf og heilsu fólks og
tryggja að okkar framúrskarandi
heilbrigðiskerfi geti tekist á við
þennan nýja veruleika. Þar eru
tækifæri til að nýta tæknina betur
og stafræna innviði til að létta
undir með starfsfólki og sjúkling-
um.
Staðan er þannig hér að þjóðfé-
lagið okkar er komið að þolmörk-
um sóttkvíar. Við ætlum og verð-
um að gera breytingar á
núverandi fyrirkomulagi. Baráttan
gegn farsóttinni snýst nefnilega
ekki bara um telja smit, heldur
um að standa vörð um skólagöngu
barnanna okkar, geðheilsu og lífs-
hamingju meðbræðra okkar og
systra; og um lífið sem við elskum
að geta lifað til fulls. Þangað
stefnum við og þar er sigurinn í
þessari baráttu að finna.
Breytt staða –
breytt nálgun
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’
Við ætlum og
verðum að gera
breytingar á núver-
andi fyrirkomulagi.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringdu eða sendu okkur skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson og Árni Sveinsson
Hjá okkur er alltaf gott úrval af nýlegum glæsilegum tengiltvinn bílum (plug in hybrid)
Audi – BMW– Skoda – VW–M.Benz