Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.08.2021, Side 32
SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 2021 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,- LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- STAN model 3035 L 170 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,- L 206 cm Leður ct. 15 Verð 449.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 15 Verð 379.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla LEVANTE model 3187 L 204 cm Leður ct. 15 Verð 409.000,- L 224 cm Leður ct. 15 Verð 429.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Netflix tilkynnti á fimmtudag að unnið sé að heim- ildaþáttum fyrir streymisveituna um Inspiration4, fyrstu geimferðina sem eingöngu er mönnuð óbreyttum borg- urum. Þættirnir verða sýndir í september og sýna frá því er fjögurra manna áhöfnin undirbýr sig fyrir leiðangurinn og síðan þegar henni er skotið út í geiminn. Geimskotið er dagsett 15. september svo þættirnir sýna framvind- una nánast jafnóðum og hún á sér stað. Jared Isaacman, 38 ára stofnandi greiðslufyrirtæk- isins Shift4 Payments, fer fyrir ferðinni og fylgir því í fótspor annarra milljarðamæringa eins og Jeffs Bezos og Richards Branson sem hyggjast hasla sér völl í geim- ferðamannaiðnaðinum. Isaacson hefur boðið þremur ein- staklingum með sér í ferðina; heilbrigðisstarfsmanni, há- skólaprófessor og verkfræðingi. Þau eru Hayley Arceneaux, Sian Proctor og Chris Sembroski. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ferðamenn fara í geim- inn en verður í fyrsta skipti sem áhöfn geimferðar inni- heldur engan atvinnugeimfara. Þættirnir munu kallast Countdown: Inspiration4 Mission To Space og „fara með áhorfendur á bak við tjöldin með fjögurra manna áhöfninni - frá óhefðbundnu vali þeirra og erfiðri mánaðarlangri geimfaraþjálfun, í gegnum náin og tilfinningaþrungin augnablik í aðdrag- anda geimskotsins,“ eins og segir í tilkynningu Netflix. Isaacson með flaug SpaceX sem mun skjóta honum og áhöfn út í geim 15. sept- ember næstkomandi. AFP Geimþættir Netflix Netflix fylgist með fyrstu áhöfninni sem skotið er út í geim án atvinnugeimfara. Áhöfnin heldur út í geim um miðjan næsta mánuð. Uppnám yfir því hvernig ætti að leysa latneska orðið „video“ af hólmi var tilefni fjögurra dálka baksíðufréttar í Morgunblaðinu í september árið 1981. „Jú, þetta orð er okkur þyrnir í augum og ég tel, að ekki verði undan því vikist að finna orð í staðinn, en hingað til hefur bara staðið á því að mönnum dytti jafn snjallt orð í hug og til dæm- is útvarp og sími í stað orðanna radio og telefon,“ hafði blaðið eftir Gísla Jónssyni, mennta- skólakennara á Akureyri. Gísli sagði að orðið video merkti einfaldlega ég sé á latínu og eðlilegt að mynda nýyrði út frá því. Sér hefði dottið í hug sjónband þar til annað fyndist. Blaðið ræddi einnig við Hall- dór Halldórsson prófessor, sem kvaðst mikið hafa hugsað málið. Sagði hann að orðið mynd- segulband hefði verið notað, en best litist sér á orðið mynd- band. Baldur Jónsson, formaður málnefndar, sagði að orðinu víðsjá hefði verið gaukað að sér. Sér litist einnig vel á myndband og myndbandstæki, en mál- nefndin myndi líklega taka mál- ið fyrir á sínum næsta fundi. GAMLA FRÉTTIN Myndband varð ofan á „Myndband, sjónvarp, víðsjá, myndvarp?“ sagði í fyrirsögn blaðsins 27. september 1981 á frétt um hvernig ætti að leysa orðið „video“ af hólmi. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins ÞRÍFARAR VIKUNNAR Harrison Ford leikari Nick Faldo golfari Brynjar Níelsson stjórnmálamaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.