Samherjinn : frétta- og tilkynningablað Stórstúku Íslands - 01.11.1937, Side 1
4Cemu\' út JzmLL súwl í mánuðí.
Frétta- og tilkynningablað Stórstúku íslands.
Ritstjóri: Stórgæslumaður fræðslumála.
HVERT LR VERKEPNI pESSA BLAÐS?
Á síðasta þingi Storstuku íslands var svohljóðandi tillaga sam-
þykkt fra bindindisritanefnd:
"Storstukuþingið felur framkvæmdanefnd sinni að sjá um að öllum
stukum landsins verði sent f^ölritað bindindisfrjettablað,eins
°g,Þe§ar hefur verið byrjað a,eigi sjaldnar en manaðarlega,frá
l.oktober til l.maí".
lins og fjelagar munu minnast og getið er um 1 framangreindri
tillögu,þa var í fyrra gerð tilraun með slíkt tilkynninga og bindindis-
frjettablað,og voru nokkur blöð af slíku tagi send út til stúknanna.
Samkvæmt þeim vilja,sem kom fram á síðasta Stórstúkuþingi um að
halda svipuðu fyrirkommlagi áfram,þar sem tillagan sem að framan getur,
var samþykkt í einu hljóði,má ætla að slíkt frjettablað sge ekki með
öllu þyðingarlaust.
í samráði við br.Stórritara^hefir verið breytt til um ytra út-
lit og form blaðsins^og því gefið^akveðið heiti,en fyrirkomulag og
sfni öðru leyti litt breytt fra þvi sem aður var,tilkynningar frá
embættismönnum framkvæmdarnefndar Stórstúkunnat og skrifstofu hennar
erlendar og innlendar frjettir varðandi bindindismálið,frjettir frá
einstökum stukum,sem gætu orðið til örfunar og eftirbreytni og til efl—
ingar heildarstarfi Reglunnar og bindindismálsins,auk þess stuttar og
gagnorðar greinar um starfið og annað,sem viðkemur málefnum vorum.
pess er vænst að stúkur sendi skrifstofu Stórstúkunnar eöa Stórgæslu-
manni fræðslumála frjettapistla um starfsemi sína og ástand áfengis-
málanna í byggðalagi sínu.
------- Vonandi verður þess ekki langt að bíða,að jafnfjölmennur,vax-
andi og traustur fjelagsskapur,sem Regla Good-Templara er í landinu,
hverfi frá fjölrituðum innanfjelags smá blaðsnepli til voldugs almenns
vikublaðs,sem geti orðið máttugtr boðberi kenninga hennar með hinni
íslenzku þjóð.
Með ósk um vaxandi áhrif og velgengni í störfum yðar.
Bróðurlegast.
Einar Björnsson (St.g.fr.)
VERDSKEÁ STÓRSTÚKUNHAR
________________________ verður send með þessu blaði.Hvetjið fjelag-
anna til að kaupa bækur og rit Stórstúkunnar.------------------------