Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 3
Hugsa stórt. Akta strax. Allar umsóknir skulu berast í gegnum umsóknarvef Alfreðs I alfred.is
Sjóðstjóri
alþjóðlegra
hlutabréfa
Akta leitar að einstaklingi í teymið til að starfa sem sjóðstjóri alþjóðlegra hlutabréfa. Um er að ræða tækifæri til að ganga til liðs við
ört stækkandi sjóðastýringarfyrirtæki í fremstu röð. Akta er með breitt úrval sjóða og nema eignir í stýringu félagsins yfir 60ma.kr.
Akta er öflugt fjármálafyrirtæki
sem býður fjölbreytt úrval
sjóða sem ávaxta fjármuni
einstaklinga, fyrirtækja og
fagfjárfesta.
Þekking og reynsla
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Víðtæk þekking á alþjóðlegum fjármálamörkuðum
• Víðtæk þekking á fjárfestingum í skráðum eða óskráðum
erlendum hlutabréfum
• Að lágmarki 2 ára starfsreynsla á erlendummörkuðum,
helst í fjárfestingarhlutverki
• Sjálfstæð vinnubrögð og góð færni í mannlegum samskiptum
• Próf í verðbréfaviðskiptumæskilegt en ekki nauðsynlegt
Verkefni
• Fjárfestingar á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum
• Greiningar á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hlutabréfum
• Gjaldeyris- og áhættustýring
• Samskipti við viðskiptavini
• Tilfallandi verkefni
Allar umsóknir skulu berast í gegnum umsóknarvef Alfreðs (alfred.is).
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum er unnt að senda póst á netfangið
umsokn@akta.is. Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem
trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til og með 3. janúar 2022.
Tengir þú við
stafrænan rekstur?
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar. Sótt er um starfið á landsnet.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Valka Jónsdóttir á mannaudur@landsnet.is.
Starfið felst í viðhaldi stafrænna tengivirkja. Það snýst um að stuðla að
hagkvæmum og skilvirkum rekstri stafræns búnaðar í flutningskerfinu
með markvissu eftirliti, viðhaldi og endurnýjun. Stærstu verkefnin snúa
að stjórn- og varnarbúnaði flutningskerfisins.
Þetta er nýtt starf í frábæru netþjónustuteymi okkar þar sem áhersla
er lögð á persónuöryggi á öllum sviðum og örugga afhendingu raforku
í flutningskerfinu.
Við leitum að kraftmikilli manneskju sem tekur breytingum fagnandi, býr
yfir sköpunargleði og vilja til að móta og þróa starfið með okkur og leggja
þannig grunninn að rafmagnaðri framtíð.
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að miðla orku sem drífur áfram lífsgæði og
sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við leggjum áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Við erum
framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem
umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.
Helstu verkefni/verkþættir
• Eftirlit, viðhald og endurnýjun á stafrænum búnaði
• Verkstýring stafrænna verkefna
• Virk þátttaka í verkefnum þvert á svið
• Þátttaka í viðbragðsáætlunum og æfingum
Hæfniskröfur
• Menntun á sviði tækni-, verk- eða tölvunarfræði
• Góð samskiptahæfni, sköpunargleði og frumkvæði
• Lausnamiðuð og gagnrýnin hugsun
• Góð skipulags- og greiningarhæfni
Við leitum að liðsfélaga til að skapa
með okkur spennandi framtíð