Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 7 Samþykkt Deiliskipulags í landi Eyrarkots, Kjósarhreppi Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkti 1. desember 2021 áður auglýst deiliskipulag íbúabyggðar og nágrennis í landi Eyrarkots í Kjósarhreppi og metur það svo, að brugðist hafi verið við umsögnum á fullnægjandi hátt innan uppfærðs deiliskipulags. Deiliskipulag íbúðarbyggðar og nágrennis í landi Eyrarkots í Kjósarhreppi tekur til 20 ha svæðis. Innan svæðisins eru skilgreindar sex íbúðarlóðir, landbúnaðarsvæði þar sem stundað er æðavarp, lóð fyrir smábátahöfn og tvær verslunar- og þjónustulóðir, þ.e. fræðslu- og fuglaskoðunarskála. Uppbygging er hafin á einni íbúðarlóð, þ.e. Snorravík. Skipulagsvæðið hallar til norðurs og er við Hvalfjörð. Aðkoma að íbúðarlóðum er um veginn Blómsturvelli sem tengist Hvalfjarðarvegi (47). Aðkoma að verslun- og þjónustulóðunum verður um nýjan veg Hestaþingshóll sem tengist Hvalfjarðarvegi (47). Skipulagssvæðið afmarkast í suðri af Hvalfjarðarvegi, í austri af Bolaklettavegi (4898), norðri af Hvalfirði og vestri af jarðamörkum Eyrar.. Tillagan var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 7. maí til 25. júní 2021. Athugasemdir bárust og hafa umsagnir sveitarstjórnar um þær verið sendar þeim sem þær gerðu. Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda. Þeir sem óska frekari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Kjósarhrepps. Kjósarhreppur 4. nóvember 2021 Skipulags- og byggingarfulltrúi Kjósarhrepps. Stjórnarráð Íslands Forsætisráðuneytið Kjörtímabil íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu rennur út hinn 31. október 2022. Evrópuráðið hefur því farið þess á leit að tilnefnd verði af Íslands hálfu þrjú dómaraefni en skv. 22. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. lög nr. 62/1994, eru dómarar við Mannréttindadómstólinn kjörnir af þingi Evrópuráðsins af lista með þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir. Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja. Um hæfisskilyrði dómara við Mannréttindadómstólinn er fjallað í 21. gr. mannréttindasáttmálans og kemur þar fram að dómarar skuli vera grandvarir og verði annaðhvort að fullnægja kröfum um hæfi til að gegna æðri dómarastörfum eða vera lögvísir svo orð fari af. Þeir skuli skipa sæti sitt sem einstaklingar og meðan kjörtímabil þeirra varir skuli þeir ekki taka þátt í neinni starfsemi sem sé ósamrýmanleg sjálfstæði þeirra, hlutleysi eða kröfum sem gerðar eru til fulls dómarastarfs. Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skulu umsækjendur vera yngri en 65 ára daginn sem þingið biður um lista með þremur mönnum, sjá nánar í 22. gr. Sú dagsetning er 5. maí 2022. Sérstök athygli er vakin á því að dómstóllinn gerir þá kröfu að dómari hafi gott vald bæði skriflega og munnlega á öðru tveggja opinberra tungumála réttarins, þ.e. ensku og frönsku, og nokkurn skilning á hinu. Dómstóllinn leggur áherslu á að á listanum séu ekki aðeins dómaraefni af einu kyni. Hér með gefst þeim sem áhuga hafa á að vera tilnefnd af Íslands hálfu sem dómaraefni við mannréttindadómstólinn kostur á að senda forsætisráðuneytinu umsókn sína eigi síðar en 14. janúar 2022. Umsóknir og fylgigögn óskast send til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 101 Reykjavík og á netfangið for@for.is. Er þess óskað að umsóknir berist á íslensku, ensku og jafnframt á frönsku ef unnt er á sérstökum umsóknareyðublöðum Evrópuráðsins. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um tilnefningu liggur fyrir. Forsætisráðherra mun skipa fimm manna hæfnisnefnd til að meta umsóknir sem berast. Mun hæfnisnefndin skila umsögn um umsækjendur og gera rökstudda tillögu um hver þeirra teljist hæfust til að vera tilnefnd. Tilnefningar stjórnvalda verða byggðar á þessari tillögu. Frekari upplýsingar veitir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, skrifstofustjóri, í síma 545 8400, netfang: steinunn.valdis.oskarsdottir@for.is. Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni https://www.stjornarradid.is/ efst-a-baugi/auglysingar/auglysing/2021/12/20/Stada-islensks-domara-vid- Mannrettindadomstol-Evropu/ Forsætisráðuneytinu, 21. desember 2021 Staða íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-15.30. Gönguhópur með göngustjóra kl. 10. Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Bíó, sýnum bráðfyndna jólamynd kl. 13. Heitt á könnunni. Kaffi- sala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-15.40. Föndurhornið kl. 9-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9.45- 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Lokum kl. 14. Gleðileg jól. Opnum mánudaginn 27. desember kl. 9.30. Garðabær Jónshús lokað. Hraunsel Lokað í dag. Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut frá kl. 9 til 11.30 alla virka daga. Félags- og tómstundastarf eldri bæjarbúa er komið í jólafrí fram yfir áramót. Byrjum aftur miðvikudaginn 5. janúar. Óskum ykkur öllum gleðilegrar hátíðar, árs og friðar og þökkum samveru og sam- starf á liðnum árum. Raðauglýsingar RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is Þarftu að ráða starfsmann? Ráðum sérhæfir sig í ráðgjöf og ráðningum. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. Félagsstarf eldri borgara Tilkynningar 200 mílur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.