Alþýðublaðið - 15.01.1920, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
jftálgagn sannteikans
08
lanðsverzluntn.
Sumir krakkar eru svo ódælir
og heimskir, að sannleikurinn
verður ekki inn í þá barinn með
nokkru móti, hvorki með góðu
né illu. Þeir hafa engin skilyrði
til að geta þekt sannleikann.
Morgunblaðið virðist ekki hafa þá
hæfileika, enda þótt það sé nefnt
„málgagn sannleikans", að minsta
kosti ber það, að ritstjörninni skuli
ekki vera farið að skiljast, að ein-
okun sé annað en einkasala, ekki
vott um að þessi hæfileiki sé
þroskaður.
En ritstjórarnir eru 5, og eitt-
hvað verða þeir að gera, og þá er
venjulega ráðið, að ráðast á lands-
verzlunina eða að skrifa ritdóma.
Svo verða þeir líka að gera eitt-
hvað til þess að þóknast húsbænd
um sínum, heildsölunum.
Morgunblaðið lætur það í veðri
vaka, að landsverzlunin sleppi nú
kolaverzluninni í hendur kaup-
manna sökum þess, að mjög erfitt
sé orðið með flutning á kolum
hingað til landsins, og einnig sök-
um þess, að þau séu orðin dýrari.
En nú segir Mgbl., að lands-
verzlunin ætli samt að halda á-
fram sjálf að hafa kolaverzlun. Þá
hlýtur hún að sæta sömu erfið-
leikum og kaupmenn. Þeir ættu
því að geta selt vöruna jafnódýrt
og landsverzlunin, og meira að
segja ódýrara, eftir því sem þeir
segja sjálfir. Ekki ætti ólesturinn
og reiðileysið að vera á verzlun-
inni hjá þeim, sbr. Vísi og Mgbl.,
málgögnum þeirra.
Grrein sú, sem birtist í Mgbl. í
gær, er því skrifuð eingöngu til
að „vernda hagsmuni“ kaupmanna,
en alls ekki til þess að bera sann-
leikanum vitni.
Hugsandi menn eru hættir að
taka til greina það, sem Mgbl. og
Vísir segja um landsverzlunina.
Menn vita alment, að þau eru
bæði í vasanum á kaupmanna-
klíkunni.
Morgunblaðið ætti heldur, að
Hslá sér upp“ á því, að skrifa um
fossamálið, því þar gengur ritstjór-
inn þó hinn þrönga veginn, sem
leiðir til lífsins.
En sumir eru nú svo illgjarnir,
að halda að það muni ekki fara
saman með hagsmunum 1. þm.
Beykvíkinga, ráðunauts fossafélags-
ins ísland.
En skárrra væri nú samt, ef
ekkert annað væri til, að fylla
blaðið með ritdómum eftir Jón
Björnsson, eða „interviewunum"
frægu. X
Verkamannaskýli.
(Niðurl.).
Töluverðar umræður urðu um
þetta mál í bæjarstjórn, og var
það afgreitt með svo hljóðandi
tillögu frá Jóni Þoiiákssyni:
„Bæjarstjórn skorar á hafnar-
nefnd, að gera sem fyrst tillögur
um skýli til bráðabirgða fyrir
verkamenn við höfnina*.
(Síðari hl. till, um sjómanna-
hæli einnig samþ.).
Mál þetta mun fljótlega koma
fyrir bæjarstjórn aftur.
r
/ „Whitakers Almanac“
árg. 1919, stendur að Einar Arn-
órsson sé forsætisráðherra og eitt
með því helzta sem vér flytjum
inn séu vínföng. Það má segja að
Bretinn fylgist með 1 íslenzkri
pólitík. Hann ætti að hafa fleiri
„legáta* hér. 1 X
Stærsta mótorskip ieimsins
hleypur af stokkunum hjá Bur-
meister & Wain i Kaupmannahöfn.
í desembermánuði hljóp stærsta
mótorskip heimsins „Afrika* af
stokkunum hjá Burmeister & Wain
í Kaupmannahöfnn.
Síðan „Selandia*, fyrsta diesel-
mótorskip heimsins hljóp af stokk-
unum fyrir 5—6 árum hafa Danir
staðið fyrir byggingu mótorskipa
og verk það, sem verkfræðingar
og verkamenn Burmeister & Wains
hafa unnið með byggingu stærsta
nfótorskips heimsins, gefur von
um að Danir standi eftirleiðis
fremst hvað viðvíkur þessu atriði-
„Afrika* er 445 feta löng, 60
feta breið og lestar 14000 smá-
lestir. Hún verður fullbúin í önd-
verðum feþrúar.
Skipið er smíðað handa „0st-
asiatisk Kompagni*, sem auk þess
hefir pantað 6 önnur mótorskip
jafnstór hjá Burmeister & Wain,
og kjölurinn undir eitt þeirra er
þegar fullbúinn.
Um dagiim 09 Teginn.
Bæjarstjórnarfundur er í dag
kl. 5 í Good-Templarahúsinu.
Húsaleigunefnd vill fá dýr-
tíðaruppbót fyrir árið 1919. Pjár-
hagsnefnd leggur til að meðlim-
um hennar verði veitt 50 °/o upp-
bót af launum hennar frá 1. júlí
að telja. Formaður húsaleigunefnd-
ar er Einar Arnórsson fyrv. pró-
fessor. Málið kemur fyrir bæjar-
stjórn í dag.
Lesstotnrnar. Enn hefir ekkert
heyrst um það, að farið sé að
hugsa til þess, að koma upp les-
stofum í sambandi við skólana
hér í bæ, nema við Háskólann-
Hvað er gert með t. d. lesstofuna
í íþöku ? Hvers vegnð er hún ékki
gerð dálítið vistleg og hituð upp?
svo að nemendur Mentaskóians-
þurfi ekki að sitja á Landsbóka-
safninu, í óþökk þeirra, sem verða
að hverfa frá lestrarsalnum vegna
þess, að þeir og aðrir fylla sætin f
Skólapiltar, takið ykkur saman,
hver í sínum skóla, og krefjist
þessa sjálfsagða réttar ykkar! —*
Gangist sjálfir fyrir því, að þetta
verði framkvæmt, eins og há-
skólastúdentar gerðu. i.
Titamálastjórinn hefir sótt um
leyfi til þess að reisa bráðabirgða-
smíðahús, 229,7 frm. að grunnfleti á
lóð landssjóðs néðanvert við Klapp*
arstíg, og á lóðarmörkum á tvo
vegu. Mál þetta kom fyrir bygg'
inganefnd bæjarins 10. jan. og
vildi nefndin ekki mæla með pví
að undanþága verði veitt. Málið
kemur fyrir bæjarstjórn í dag.