Víkurfréttir - 22.09.2021, Blaðsíða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Kjósendur í Reykjanesbæ
greiða atkvæði í húsnæði
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Í alþingiskosningunum laugardaginn 25. september 2021 munu
kjósendur í Reykjanesbæ greiða atkvæði í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Jafnframt hefur götum verið deilt á kjördeildir eftir
stafrófsröð og er kjósendum bent á að kynna sér í hvaða kjördeild
þeim ber að kjósa á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is
Kjörskrá miðast við skráð lögheimili kjósenda hjá Þjóðskrá Íslands
þann 21. ágúst 2021. Kjósendum er frjálst að skoða kjörskrána og
liggur hún frammi í þjónustuveri Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12,
Reykjanesbæ og á www.kosning.is.
Kjörfundur í Reykjanesbæ hefst kl 9:00 og lýkur eigi síðar en
klukkan 22:00.
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar
Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir
Magnea Herborg Björnsdóttir
Valur Ármann Gunnarsson
KOSNINGAR
TIL ALÞINGIS
Kjördeildir 4-9
K
jördeildir 1-3
Inngangur fyrir
kjördeildir 1-9
Inngangur 2
Verksamningar hafa verið undir-
ritaðir milli Íslenskra aðalverk-
taka hf og Reykjanesbæjar vegna
framkvæmda við áfanga II Stapa-
skóla. Þá hefur Reykjanesbær jafn-
framt undirritað samning við VSB
Verkfræðistofu ehf. um eftirlit með
framkvæmdum.
Fullbúið íþróttahús með áhorf-
endastúku við Stapaskóla ásamt 25
metra sundlaug og heitum pottum
mun rísa við nýjan Stapaskóla á
næstu fimmtán mánuðum. Íslenskir
aðalverktakar hf. buðu lægst í fram-
kvæmdina. Fullkláraður mun II
áfangi Stapaskóla kosta um 2,4 millj-
arða króna en tilboð verktakans var
um 92% af kostnaðaráætlun.
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur
mun fá nýjan heimavöll í íþrótta-
mannvirkinu við Stapaskóla sem
menn kalla í dag Stapahöllina. Þar
verður löglegur keppnisvöllur með
áhorfendastæðum fyrir um 1.100
manns. Til samanburðar geta innan
við 500 manns rúmast í áhorfenda-
stæðum Ljónagryfjunnar með góðu
móti.
Í minnisblaði byggingarnefndar
Stapaskóla er lögð áhersla á að
horfa til þessarar byggingar sem
hjarta hverfisins sem er í hraðri upp-
byggingu og miðstöð fyrir breiðan
aldurshóp. Þar verði lögð áhersla á
að skapa góða aðstöðu til íþróttaiðk-
unar fyrir unga sem aldna. Tenging
verði við almenningsbókasafn og
skólann þar sem jákvætt og heilbrigt
samfélag blómstrar.
Frá undirritun samninga um byggingu íþróttahúss og sundlaugar við Stapaskóla
á þriðjudag. Fulltrúar körfuknattleiksdeildar UMFN og skólastjóri Stapaskóla eru
á myndinni auk fulltrúa bæjarins og verktakans. VF-mynd: Hilmar Bragi
STAPAHÖLLIN RÍS
VIÐ STAPASKÓLA
Suðurnesjamenn kjósa Víkurfréttir!
2 // vÍKURFRÉttIR á sUðURNesJUM Í 40 áR