Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.09.2021, Síða 10

Víkurfréttir - 22.09.2021, Síða 10
Alexandra Chernyshova sópran söngkona og tónskáld er þessa dagana að leggja lokahönd á sína þriðju óperu og um leið að gera hana klára fyrir konsertuppfærslu þann 23. október. Alexandra hefur þegar samið og flutt tvær óperur áður, annars vegar „Skáldið og biskupsdóttirin“ við handrit Guðrúnar Ásmundsdóttur og hins vegar „Ævin- týrið um norðurljósin“, handrit byggt á barnabók móður hennar, Evgeniu. Báðar þessar óperur hafa fengið alþjóð- leg verðlaun fyrir tónsmíði. Af hverju ópera um frú Vigdísi Finnbogadóttur? „Þegar ég las viðtal við frú Vigdísi í blaði fyrir mörgum árum þá heill- aðist ég strax af henni, svo einlæg og áhugaverð kona að mínu mati. Þegar ég fluttist til Íslands fyrir átján árum þá vissi ég ekki að fyrsti kvenforseti í heiminum hafi verið hér á Íslandi, ég er reyndar fædd ári áður en hún varð forseti en aldrei varð ég vör við fréttir af henni á mínum skólaárum í Úkraínu og Rússlandi, það litla sem ég vissi um Ísland þegar ég flutti hingað var Björk og Geysir. Fyrir um fimm árum fannst mér meira vera í fréttum um kvenréttindi og jafnréttindi kynjanna og í þeirri umræðu kom nafn Vigdísar oft upp þannig að ég fór að lesa meira um hana og kynna mér sögu hennar og áhugi minn á því að skrifa óperu um hana kviknaði sagði Alexandra.“ Til að afla sér heimilda um Vig- dísi hefur Alexandra lesið ævi- sögu hennar, lesið ýmis viðtöl og greinar um hana auk þess að fá að skoða heimildir sem eru til á safni hjá RÚV um hana. Alexandra fékk síðan formlegt leyfi hjá Vígdísi til að skrifa óperuna um hana. „Í óperunni legg ég áherslu á það sem heillar mig mest í fari og lífi Vigdísar sem kona og tónskáld.“ Vigdís er fædd á merkilegum tíma, var unglingur þegar Ísland fær sjálf- stæði árið 1944. Hún var alin upp við það að vera stolt af menningu sinni, uppruna og tungumáli. Síðar vildi hún sjá meira af heiminum og fór erlendis til Frakklands að læra. Henni var minnistætt þegar hún var barn og vildi þá verða skipstjóri þegar hún yrði stærri en fékk að heyra það að konur gætu ekki verið skipstjóri. Það var ekki sjálfgefið að konur gætu sinnt stjórnunarstöðum á þeim tíma – en það átti eftir að breytast. Krefjandi verkefni „Á tímabili langaði mig að hætta við verkefnið, ég missti trú og hafði efasemdir um verkið. Ég fékk síðan mikinn innblástur þegar ég fann í viðtali við Vigdísi umræðu um al- þjóðlega kvenráðstefnu sem hafði verið haldin í Japan fyrir um tuttugu árum, eingöngu fyrir konur og sömu- leiðis eingöngu með konur sem héldu fyrirlestra og í boði fyrir konur um allan heim. Ég fór að leita fyrir mér og athuga hvort þessi ráðstefna væri haldin og fann upplýsingar um fyrirhugaða ráðstefnu, World Women Summit, sem vera átti aftur í Tókýó í Japan fyrir fimm árum síðan. Ég bókaði mig á ráðstefnuna og fékk mikinn innblástur og hvatningu frá öðrum konum hvaðanæva úr heim- inum þegar ég sagði þeim frá óper- unni og efni hennar. Konsertuppfærsla 23. október í Grafarvogskirkju Konsertuppfærsla af óperunni verður sýnd í Grafarvogskirkju daginn fyrir merkilegan kvenrétt- indadag í sögu Íslands 24. október en þá lögðu konur niður vinnu í einn dag árið 1975. Frá þeim degi má segja að baráttu- konur landsins hafi farið að horfa til Vigdísar sem verðandi forseta í fram- tíðinni. Konsertuppfærslan er stór í sniðum. Hljómsveitarstjórinn, Garðar Cortes, er goðsögn í óperu- heiminum og kemur hann til með að stýra einvalaliði tuttugu hljóðfæra- leikara og tólf einsöngvara sem koma fram auk tveggja kóra, annars vegar Kvennakórs Suðurnesja undir stjórn Dagnýjar Jónsdóttur og hins vegar Karlakórs Grafarvogskirkju undir stjórn Írisar Erlingsdóttur. Óperan er í þremur þáttum. Alexandra vann mikið með Sigurði Ingólfssyni, ljóð- skáldi, sem samdi mörg ljóð í óper- unni auk ljóða frá Hannesi Hafstein, Ástu Björk Sveinbjörnsdóttur, Þór- halli Barðasyni, Elísabetu Þorgeirs- dóttur og Alexöndru Chernyshovu. „Þetta er tilvalið tækifæri fyrir karlmenn landsins að bjóða konum sínum á þessa metnaðarfullu tón- leika,“ sagði Alexandra að lokum og brosir. Þegar ég fluttist til Íslands fyrir átján árum þá vissi ég ekki að fyrsti kven- forseti í heiminum hafi verið hér á Íslandi ... Jón Hilmarsson ungo@simnet.is Á tímabili langaði mig að hætta við verkefnið, ég missti trú og hafði efasemdir um verkið. Ég fékk síðan mikinn innblástur þegar ég fann í viðtali við Vigdísi umræðu um alþjóðlega kvenráðstefnu ... KJÓSUM GUÐBRAND Á ÞING VELJUM ÖFLUGAN BARÁTTUMANN 1. sæti Suðurland Guðbrandur Einarsson Guðbrandur Einarsson er Suðurnesjamaður í húð og hár og þekkir hagsmuni íbúa í Suðurkjördæmi afar vel. Hann er forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og fyrrum formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja. Hann brennur fyrir eflingu grunnþjónustu og réttlátari skiptingu á gæðum landsins og hefur sýnt að hann er reiðubúinn að berjast fyrir hugsjónum sínum. Gefðu framtíðinni tækifæri Víkurfréttir - 255x185mm (Topp 1 - reynd n sveitast- jórnarmann á þing) Góðan daginn, frú forseti 10 // vÍKURFRÉttIR á sUðURNesJUM Í 40 áR

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.