Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.09.2021, Síða 12

Víkurfréttir - 22.09.2021, Síða 12
Páll Ketilsson pket@vf.is Þú stefndir lengi að því að komast á Ólympíumót og draumurinn rættist. Hvað situr eftir þegar þú ert kominn heim eftir þessa ferð? „Ég er ennþá að átta mig á að þessa sé búið. Þetta var búið að vera í kortunum í rosalega langan tíma. Þetta mót átti að vera í fyrra en það varð bið í eitt ár í viðbót. Það er búið að ganga á ýmsu undanfarin þrjú ár. Það sem situr eftir er að hafa klárað þetta og ég er stoltur af því. Það var ekkert víst að mér hefði tekist þetta og það var oftar en einu sinni sem ég næstum gugnaði á þessu en er feginn að það gerðist ekki.“ Stóra markmiðið var að komast út og var þá ekki næsta markmið að ná einhverjum árangri? „Algjörlega og ég horfði á það að reyna að ná verðlaunum í 100 metra baksundi, sem ég átti gríðarlega góða möguleika á. Ég var eina sekúndu frá gullverðlaunum í sundinu og endaði fimmti. Þetta var algjört grísadæmi og mjög jöfn keppni – en ég kem samt heim með Íslandsmet og það er ekki sjálfgefið að fara á stóra sviðið og bæta sig, sem ég gerði, þannig að ég get ekki kvartað.“ Var samkeppnin harðari en þú áttir von á? „Þetta sport er alltaf að stækka og ég vissi alveg að þetta yrði tæpt. Það var alveg borðleggjandi.“ Án efa skemmtilegasta keppnisferðalagið Már dvaldi í Japan í þrjár vikur en ferðalagið þangað er einnig langt. „Þú ferð ekki til Tókýó í helgarferð, því get ég lofað þér,“ segir Már og hlær. Hvernig var þetta ferðalag og þátt- takan í Ólympíumótinu? Hvernig varstu að upplifa þetta? „Þetta var langt ferðalag en gott veður allan tímann. Maturinn var ekkert sérstakur. Covid setur svaka strik í reikninginn. Það voru ótelj- andi reglur um hvað mátti og mátti ekki gera. Maður var hitamældur oft á dag og Covid-test tekið á hverjum degi. Það voru grímur út um allt og þetta tók á. Mér leiddist samt aldrei á þessum þremur vikum og þetta er án efa skemmtilegasta keppnisferð sem ég hef farið í.“ Var margt sem kom þér á óvart? „Já. Japanir eru sniðugir að mörgu leyti. Þeir eru með fullt af litum og sniðugum lausnum á hinu og þessu. Ég var mikið að sýna á mínum sam- félagsmiðlum hvað var að gerast þarna og hvaða undratæki maður rakst á. Til dæmis augnspúlarinn eða sjálfspúlandi klósettin, sjálfsalarnir þar sem þurfti ekki að borga og fullt af skemmtilegum hlutum þarna.“ Hvernig var spennustigið? Það er eitt að komast á leikana og svo er löngun til þess að ná góðum árangri. Hvernig var andlega hliðin? „Ég verð að segja að minn helsti galli sem íþróttamaður er að ég verð alveg rosalega stressaður að synda. Ég verð miklu stressaðri að synda 100 metra baksund en að spila á tónleikum fyrir framan 16.000 manns og 40 milljónir í sjónvarpi. Á Ólympíumótinu var ég mjög góður varðandi spennustigið. Ég var búinn að vinna í því á undan að verða ekki stressaður og ég varð bara mjög lítið stressaður á leikunum.“ Með allt sitt besta fólk á staðnum Már segir að það hafi líka skipt máli að hann var með allt sitt besta fólk með sér á leikunum. Faðir hans, Gunnar Már Másson, var í hópi að- stoðarmanna og þá kom þjálfarinn hans, Steindór Gunnarsson, á leikana. „Maður finnur mun á því að hafa yfirþjálfarann með eða að vera í landsliðsverkefnum þar sem hann er ekki með. Það er svo margt sem við erum að skoða í upphitun og á æfingum.“ Þegar Már er spurður út í mat- aræði á leikunum og hvort það hafi verið áskorun, því hann lýsti því fyrr í spjallinu að maturinn hafi ekki verið neitt sérstakur, þá segir hann: „Í Ólympíuþorpinu voru matar- hallir með tíu eða tólf veitinga- stöðum þar sem hægt var að fara á hvaða tíma sólarhringsins sem er og fengið eins mikið að borða og þig langaði til. Gallinn var að þetta var ekki vel eldað og mötuneytisbragur á þessu. Maturinn var búinn að standa lengi, var þurr og bragðlítill. Það bjargaði þó málum að staðirnir voru margir og ef þú fékkst eitthvað sem var vont, þá gastu farið annað og fundið eitthvað skárra. Ég var feginn þegar ég kom út á flugvöll Már Gunnarsson er kom- inn heim til Keflavíkur eftir langt og strangt ferðalag á Ólympíumót fatlaðra sem fram fór í Tókýó í Japan. Þar var Már í þrjár vikur og náði góðum árangri þar sem hann synti t.a.m. til úrslita í tveimur greinum. Þegar Már kom svo heim tók á móti honum nýr fé- lagi, leiðsöguhundurinn Max, sem mun fylgja Má hvert fót- mál næstu árin. Már og Max eru núna í samþjálfun þar sem þeir fara um bæinn ásamt hundaþjálfara. Max lærir að þekkja umhverfi Más og Már lærir að þekkja inn á Max. Það er annars að frétta af Má að hann er núna í fríi frá sundinu og er byrjaður í tónlistarskóla í Reykjavík, þar sem hann leggur áherslu á að bæta enn færni sína á tónlistarsviðinu, enda margt framundan. Tón- leikahald í lok október og svo er verið að leggja grunn að lagi til þátttöku í forkeppni Eurovision árið 2022. MÁR & MAX Már við einn af fjölmörgum sjálfsölum í Ólympíuþorpinu þar sem hann sótti sér drykk. Már og Max eru þessa dagana í samþjálfun þar sem Max lærir helstu gönguleiðir Más. Hér eru þeir á strandleiðinni í Reykjanesbæ sem er skemmtileg gönguleið með sjávarsíðunni. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is 12 // vÍKURFRÉttIR á sUðURNesJUM Í 40 áR

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.