Víkurfréttir - 22.09.2021, Side 15
Birgir Þórarinsson hefur átt sæti
á Alþingi fyrir Miðflokkinn síðan
2017. Hann hefur síðustu sex vik-
urnar verið á fleygiferð í undirbún-
ingi kosninganna en hann notaði
sumarið líka til nokkurra vrka,
m.a. að ljúka byggingu á Knarrar-
neskirkju sem er í túninu heima
hjá honum. Við ræddum við Birgi
á lokaspretti kosningabaráttu.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
„Ferðaðist um hið fallega Suður-
kjördæmi. Sinnti svolítið áhuga-
málinu sem er grjóthleðsla. Megin-
hluti sumarsins fór hins vegar í að
ljúka við byggingu Knarrarneskirkju
hér í túninu heima og undirbúa
vígslu hennar. Ég tók á móti úkran-
ískum listamanni og túlki hans. Þeir
dvöldu hjá mér um nokkurn tíma og
settu upp alla listmuni kirkjunnar,
sem gerðir voru í Úkraínu. Kirkjan
var síðan vígð 8. ágúst síðastliðinn.
Það var stór dagur hjá okkur fjöl-
skyldunni. Karl Sigurbjörnsson,
biskup, vígði kirkjuna og að lokinni
athöfn vorum við með kirkjukaffi í
hlöðunni.“
Hvað kom skemmtilega á óvart í
sumar?
„Áhugi almennings á Knarrarnes-
kirkju og vígslu hennar. Brúðkaup
elsta sonar okkar í kirkjunni.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja
heim innanlands?
„Skaftárhreppur og Vestmanna-
eyjar draga mig alltaf til sín. Annars
er ég svolítið heimaríkur, sumrin hér
á Vatnsleysuströnd við sjóinn með
fuglalífinu og sólsetrinu næra mann
ríkulega, til andar og sálar.“
Hver er helstu afrek þín á heimilinu
í hverri viku?
„Uppvaskið. Síðan gríp ég nú svo-
lítið í ryksuguna og sé svo um matar-
innkaupin að stórum hluta.“
Uppáhaldsmatur?
„Það er að sjálfsögðu lambahrygg-
urinn.“
Hver er þinn styrkur í matreiðsl-
unni?
„Ætli það sé ekki bara að hvetja
húsfrúnna til góðra verka! Annars er
þetta svona þegjandi samkomulag
okkar í milli um að ég sé liðtæk-
astur í uppvaskinu. Þegar kemur að
beikoni og eggjum, þá er ég góður.“
Notaðir þú sumarfríið eitthvað til
að undirbúa kosningabaráttuna?
„Hluti sumarins fór í að ganga frá
framboðslistunum og leggja megin
línurnar. Við vorum síðan með
landsþing í júní og framhaldslands-
þing í ágúst.“
Hver er tilfinningin fyrir komandi
alþingiskosningum og kosninga-
baráttunni?
„Okkur gengur vel hér í Suðurkjör-
dæmi. Við erum búin að fara mjög
víða og verið nánast stanslaust á
ferðinni í sex vikur. Ég er með tvær
öflugar konur með mér í 2. og 3. sæti.
Við höfum haft gleðina að leiðarljósi
enda skemmtilegasti tíminn í stjórn-
málum að hitta kjósendur. Ég er
bjartsýnn á gott gengi Miðflokksins
hér í Suðurkjördæmi.“
Hver eru stærstu málin fyrir Suður-
nesin sem þú setur í forgang?
„Frá því að ég var kosin á þing
fyrir fjórum árum hef ég setið í fjár-
laganefnd. Ég setti mér strax það
markmið að rétta hlut Suðurnesja
þegar kemur að fjárveitingum til op-
inberra stofnana, eins og Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja, lögreglunnar
og Fjölbrautaskólans. Tillögur mínar
um auknar fjárveitingar til Suður-
nesja voru því miður allar felldar
í þinginu af Sjálfstæðismönnum,
Framsókn og Vinstri grænum. Það
voru mikil vonbrigði. Kannski var
ég svona grænn að halda að tillögur
frá stjórnarandstöðuþingmanni yrðu
samþykktar. Ég komst síðan fljótt
að því að það er ekki sama hvaðan
góðar tillögur koma í þinginu.
Ég gefst ekki upp og mun halda
áfram að berjast fyrir Suðurnesin
á Alþingi fái ég umboð til þess í
kosningunum. Ég legg líka áherslu
á að flytja eigi opinber störf til
Suðurnesja. Í því sambandi hef ég
t.d. nefnt Útlendingastofnun en þar
starfa 86 manns. Ég legg áherslu á
heilbrigðismálin, atvinnumálin og að
Suðurnesin fái það sem þeim ber í
fjárveitingum ríkisins.“
Hvert er draumaríkisstjórnarsam-
starf þitt?
„Ég hef átt gott samstarf við alla
flokka á Alþingi enda hef ég ávallt átt
gott með að vinna með fólki. Ég legg
að sjálfsögðu áherslu á að málefnin
sem við í Miðflokknum stöndum
fyrir fái brautargengi þegar kemur að
ríkisstjórnarsamstarfi. Mér hugnast
hins vegar ekki fjölflokka vinstri
stjórn. Stjórnmálasagan hefur kennt
okkur að þeim fylgir óstöðugleiki í
efnahagsmálum aukin ríkisútgjöld og
skattahækkanir. Það þarf að halda
vel utan um ríkisfjármálin á næsta
kjörtímabili það skiptir okkur öll
máli. Ég vona að sjálfsögðu að Mið-
flokkurinn fái þann styrk sem þarf í
kosningunum til að hafa áhrif. Við
leggjum áherslu á framfarastjórn
með stöðugleika í efnahagsmálum
að leiðarljósi. Í stjórnmálum á aldrei
að útiloka samstarf flokka fyrirfram.
Á Íslandi búum við við samsteypu-
stjórnir sem byggjast á málamiðl-
unum og samstarfi flokka þótt ólíkir
séu.“
„Sumrin á Vatnsleysuströnd
við sjóinn næra mann ríkulega“
Ding, ding, ding
Ernu á þing !
KJARKUR FYRIR KONUR !
Erna Bjarnadóttir er baráttukona sem hefur
sýnt að hún nær árangri fyrir bættri heilsu kvenna.
X-M
Hún er stofnandi aðgerðahópsins
,, Aðför að heilsu kvenna. ,,
Miðflokkurinn Suðurkjördæmi
Birgir Þórarinsson er oddviti Miðflokksins
og hefur átt sæti á Alþingi frá 2017
vÍKURFRÉttIR á sUðURNesJUM Í 40 áR // 15