Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.09.2021, Page 15

Víkurfréttir - 22.09.2021, Page 15
Birgir Þórarinsson hefur átt sæti á Alþingi fyrir Miðflokkinn síðan 2017. Hann hefur síðustu sex vik- urnar verið á fleygiferð í undirbún- ingi kosninganna en hann notaði sumarið líka til nokkurra vrka, m.a. að ljúka byggingu á Knarrar- neskirkju sem er í túninu heima hjá honum. Við ræddum við Birgi á lokaspretti kosningabaráttu. Hvernig varðir þú sumarfríinu? „Ferðaðist um hið fallega Suður- kjördæmi. Sinnti svolítið áhuga- málinu sem er grjóthleðsla. Megin- hluti sumarsins fór hins vegar í að ljúka við byggingu Knarrarneskirkju hér í túninu heima og undirbúa vígslu hennar. Ég tók á móti úkran- ískum listamanni og túlki hans. Þeir dvöldu hjá mér um nokkurn tíma og settu upp alla listmuni kirkjunnar, sem gerðir voru í Úkraínu. Kirkjan var síðan vígð 8. ágúst síðastliðinn. Það var stór dagur hjá okkur fjöl- skyldunni. Karl Sigurbjörnsson, biskup, vígði kirkjuna og að lokinni athöfn vorum við með kirkjukaffi í hlöðunni.“ Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar? „Áhugi almennings á Knarrarnes- kirkju og vígslu hennar. Brúðkaup elsta sonar okkar í kirkjunni.“ Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands? „Skaftárhreppur og Vestmanna- eyjar draga mig alltaf til sín. Annars er ég svolítið heimaríkur, sumrin hér á Vatnsleysuströnd við sjóinn með fuglalífinu og sólsetrinu næra mann ríkulega, til andar og sálar.“ Hver er helstu afrek þín á heimilinu í hverri viku? „Uppvaskið. Síðan gríp ég nú svo- lítið í ryksuguna og sé svo um matar- innkaupin að stórum hluta.“ Uppáhaldsmatur? „Það er að sjálfsögðu lambahrygg- urinn.“ Hver er þinn styrkur í matreiðsl- unni? „Ætli það sé ekki bara að hvetja húsfrúnna til góðra verka! Annars er þetta svona þegjandi samkomulag okkar í milli um að ég sé liðtæk- astur í uppvaskinu. Þegar kemur að beikoni og eggjum, þá er ég góður.“ Notaðir þú sumarfríið eitthvað til að undirbúa kosningabaráttuna? „Hluti sumarins fór í að ganga frá framboðslistunum og leggja megin línurnar. Við vorum síðan með landsþing í júní og framhaldslands- þing í ágúst.“ Hver er tilfinningin fyrir komandi alþingiskosningum og kosninga- baráttunni? „Okkur gengur vel hér í Suðurkjör- dæmi. Við erum búin að fara mjög víða og verið nánast stanslaust á ferðinni í sex vikur. Ég er með tvær öflugar konur með mér í 2. og 3. sæti. Við höfum haft gleðina að leiðarljósi enda skemmtilegasti tíminn í stjórn- málum að hitta kjósendur. Ég er bjartsýnn á gott gengi Miðflokksins hér í Suðurkjördæmi.“ Hver eru stærstu málin fyrir Suður- nesin sem þú setur í forgang? „Frá því að ég var kosin á þing fyrir fjórum árum hef ég setið í fjár- laganefnd. Ég setti mér strax það markmið að rétta hlut Suðurnesja þegar kemur að fjárveitingum til op- inberra stofnana, eins og Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja, lögreglunnar og Fjölbrautaskólans. Tillögur mínar um auknar fjárveitingar til Suður- nesja voru því miður allar felldar í þinginu af Sjálfstæðismönnum, Framsókn og Vinstri grænum. Það voru mikil vonbrigði. Kannski var ég svona grænn að halda að tillögur frá stjórnarandstöðuþingmanni yrðu samþykktar. Ég komst síðan fljótt að því að það er ekki sama hvaðan góðar tillögur koma í þinginu. Ég gefst ekki upp og mun halda áfram að berjast fyrir Suðurnesin á Alþingi fái ég umboð til þess í kosningunum. Ég legg líka áherslu á að flytja eigi opinber störf til Suðurnesja. Í því sambandi hef ég t.d. nefnt Útlendingastofnun en þar starfa 86 manns. Ég legg áherslu á heilbrigðismálin, atvinnumálin og að Suðurnesin fái það sem þeim ber í fjárveitingum ríkisins.“ Hvert er draumaríkisstjórnarsam- starf þitt? „Ég hef átt gott samstarf við alla flokka á Alþingi enda hef ég ávallt átt gott með að vinna með fólki. Ég legg að sjálfsögðu áherslu á að málefnin sem við í Miðflokknum stöndum fyrir fái brautargengi þegar kemur að ríkisstjórnarsamstarfi. Mér hugnast hins vegar ekki fjölflokka vinstri stjórn. Stjórnmálasagan hefur kennt okkur að þeim fylgir óstöðugleiki í efnahagsmálum aukin ríkisútgjöld og skattahækkanir. Það þarf að halda vel utan um ríkisfjármálin á næsta kjörtímabili það skiptir okkur öll máli. Ég vona að sjálfsögðu að Mið- flokkurinn fái þann styrk sem þarf í kosningunum til að hafa áhrif. Við leggjum áherslu á framfarastjórn með stöðugleika í efnahagsmálum að leiðarljósi. Í stjórnmálum á aldrei að útiloka samstarf flokka fyrirfram. Á Íslandi búum við við samsteypu- stjórnir sem byggjast á málamiðl- unum og samstarfi flokka þótt ólíkir séu.“ „Sumrin á Vatnsleysuströnd við sjóinn næra mann ríkulega“ Ding, ding, ding Ernu á þing ! KJARKUR FYRIR KONUR ! Erna Bjarnadóttir er baráttukona sem hefur sýnt að hún nær árangri fyrir bættri heilsu kvenna. X-M Hún er stofnandi aðgerðahópsins ,, Aðför að heilsu kvenna. ,, Miðflokkurinn Suðurkjördæmi Birgir Þórarinsson er oddviti Miðflokksins og hefur átt sæti á Alþingi frá 2017 vÍKURFRÉttIR á sUðURNesJUM Í 40 áR // 15

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.