Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.09.2021, Page 18

Víkurfréttir - 22.09.2021, Page 18
Leikfélag Keflavíkur 60 ára: Margir þekktir leikarar stigu sín fyrstu leiklistar- skref í Keflavík Leikfélag Keflavíkur á rætur að rekja til ársins 1940 en driffjöðrin að stofnun leikstarfseminnar hér var Helgi S. Jónsson sem lék og starfaði í leikfélaginu einkum á árunum 1940–1950. Draga fór úr starfseminni eftir 1950, enda var þá orðið mikið um að vera í at- vinnulífinu á svæðinu og tími manna minni fyrir vikið. Það var svo á haustdögum árið 1961 að þau tímamót urðu í sögu leiklistar- starfs á svæðinu, þegar nokkrir áhugamenn úr Keflavík og Njarðvík komu saman, og stofnað var sameiginlegt leikfélag, Leikfélagið Stakkur eftir klettadrangnum sem stóð undan Hólmsbergi utan við Keflavík. Leikfélagið Stakkur var stofnað þann 19. september 1961 og hélst svo til 1965 þegar Njarðvíkingar stofnuðu eigið félag. Leikfélagið Stakkur hélt nafninu sínu fram til ársins 1967 þegar Leikfélag Keflavíkur var stofnað og hefur það verið starfrækt allar götur síðan með einhverjum hléum þó. Fyrst um sinn var Stapinn helsti vettvangur leiksýninga en svo bættist Félagsbíó við. Þó gerðist það nokkuð oft að leikhópar þurftu að leita í önnur húsnæði til æfinga og sýninga sem reyndist þreytandi fyrir leikhópa. Stórleikarinn Helgi Skúlason var einn þeirra sem léði félaginu lið á fyrstu starfsárum þess og varð kannski valdur að þeirri velgengni sem alltaf hefur einkennt starfsemina. Árið 1997 afhenti Karlakór Kefla- víkur Reykjanesbæ neðri hæðina á Vesturbraut 17 til eignar gegn því að þar yrði alltaf einhver menn- ingartengd starfsemi. Þáverandi bæjarstjórn Reykjanesbæjar leysti svo húsnæðisvanda leikfélagsins þegar félagið fékk yfirráð yfir hús- næðinu og hefur séð um rekstur þess síðan. Með tilkomu Frum- leikhússins leystist ekki aðeins húsnæðisvandi leikfélagsins heldur varð til fallegt menningarhús sem hefur komið að góðum notum fyrir fjölda viðburða, þó aðallega upp- byggingu öflugs leiklistarstarfs fyrir áhugaleiklistarfólk á öllum aldri. Starfsemi leikfélagsins hefur verið óslitin síðan Frumleikhúsið var opnað og þegar þetta er skrifað hafa verið settar á svið 54 sýningar í Frumleikhúsinu ef rétt er talið og því er Fyrsti kossinn sú 55. og 100. sýning leikfélagsins frá stofnun þess. Leikfélagið gekk í gegnum nokkur dvalatímabil á 7., 8. og 9. áratug síðustu aldar en síðan 1988 hefur leikfélagið sýnt a.m.k. tvær sýningar á ári, að undanteknu leik- árinu 1996–1997 þegar leikfélagar stóðu í framkvæmdum á Frumleik- húsinu. Leikfélag Keflavíkur er og hefur verið eitt öflugasta starf- andi áhugaleikfélag landsins og stendur félagið að baki rekstri og gróskumiklu starfi innan Frumleik- hússins. Starfið byggist eingöngu á áhugafólki og sjálfboðaliðum sem leggur metnað sinn í að bjóða upp á gott leiklistar- og menningarlíf í Reykjanesbæ. Nafnið „Frumleik- húsið“ á Sveindís Valdimarsdóttir en hún sendi félaginu blómvönd stuttu eftir opnun þess með ósk um farsælt starf í Frumleikhúsinu og þar með var nafnið komið. Áður höfðu komið upp hugmyndir eins og Skothúsið og Skjöldur. Margir þekktir leikarar fengu fyrstu reynslu sína af leiklist í Keflavík, bæði fyrir árdaga Leik- félags Keflavíkur sem og innan félagsins. Þónokkrir hafa haldið í leiklistarnám og einhverjir hafa m.a. leikstýrt verkum hjá leikfélaginu eftir útskrift og ein- hverjir jafnvel stigið aftur á svið Frumleikhússins sem leikarar. Leikfélagið setur upp a.m.k. tvær sýningar ár hvert ásamt því að taka þátt í ýmsum viðburðum bæjarins. Frumleikhúsið Frumleikhúsið var opnað form- lega þann 4. október 1997 eftir áratuga baráttu fyrir húsnæði og síðan þá hefur Leikfélag Kefla- víkur aldrei verið virkara. Þar hafa verið haldnar ráðstefnur, tónleikar, fundir og margt fleira. Stóri sal- urinn rúmar í kringum 120 manns í sæti og salurinn frammi rúmar vel leikhúsgesti. Starfsemin er til fyrirmyndar og þeir leikstjórar sem unnið hafa með okkur eru sam- mála um að hvergi finnist betri að- staða áhugaleikfélags en hjá Leik- félagi Keflavíkur. Guðný Kristjánsdóttir og Hulda Ólafsdóttir við opnun Frumleikhússins. 18 // vÍKURFRÉttIR á sUðURNesJUM Í 40 áR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.