Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.09.2021, Page 22

Víkurfréttir - 22.09.2021, Page 22
Hlustum á hugmyndir drengja og gefum svigrúm fyrir ólík áhugamál og námsleiðir í lestrarnámi þeirra Umræðan um drengi og lestur hefur verið fyrirferðamikil í samfélaginu undanfarin ár. Virðist vera að drengir hafi síður ánægju af bóklestri, að lesskilningur þeirra sé slakari nú en áður, fyrir utan það að þeim virðist ekki líða nægilega vel í skólanum. Það er áskorun fyrir alla skóla og foreldra að bregðast við þessum upplýsingum en í október verður gerð tilraun til að koma betur til móts við drengi með lestrarupp- lifun sem ber heitið Skólaslit og er það styrkt af Sprotasjóði. Hugmynd að verkefninu kviknaði hjá kennsluráð- gjöfum í Reykjanesbæ sem vildu koma betur til móts við drengi og var því farið út í það að gera spurningalista sem sendir voru til foreldra og gerð rýnisamtöl við drengi með það að markmiði að nýta upplýsingarnar í verkefninu. Sáu kennsluráðgjafarnir, sem hófu þessa vinnu, tæki- færi til að gera meira úr verkefninu sem hafði alla burði til að geta orðið afar spennandi og skemmtilegt, og buðu skólum í Suðurnes- jabæ og Vogum að taka þátt, ásamt félagsmiðstöðvum og bókasöfnum. Hinn skemmti- legi og skapandi Ævar Þór Benediktsson gekk til liðs við hópinn og voru niðurstöður kannana og rýnisamtala sendar til hans og byggir verk- efnið, sem er í formi lestrar- upplifunar og birtist á vefnum https://www.skolaslit.is/, á hugmyndum, upplifunum og áhuga drengja þó svo að allir nemendur á mið- og unglinga- stigi komi til með að taka þátt og njóta góðs af. Er óhætt að segja að Ævar Þór hafi gripið hugmyndir drengjanna því að lestrarupplifunin er í formi spennandi hrollvekju sem margir drengir höfðu nefnt í könnuninni sem áhugavert lesefni. Ef við rýnum í áhugamál umræddra drengja þá eru þau afar fjölbreytt og má þá helst nefna alls kyns íþróttir, tónlist, náttúrufræði, stærð- fræði, spila tölvuleiki ásamt hefðbundnum spilum og að eiga samverustundir með fjölskyldu, svo eitthvað sé nefnt. Það sem þeir nefna að þeim þyki skemmtilegast að lesa um er meðal annars spennusögur, fræðsluefni, matreiðslubækur, efni tengt íþróttum og tónlist og síðast en ekki síst hrollvekjur. Þegar drengir eru spurðir um hvað gæti mögulega aukið áhuga þeirra á lestri, þá nefna þeir ýmsa þætti sem snúa að vali á lesefni. Þeir vilja fá að ráða sjálfir, bæði hvað þeir lesa og í hvaða formi. Þeir nefndu til dæmis lestur í tölvum eða iPad, lestur á öðrum tungu- málum, að bækur eða lesefni sé spennandi eða fyndið, að vinna á skapandi hátt með lesefnið sjálft eins og að búa til bíómyndir úr því, að þeir hafi frelsi til að lesa fréttir af vef og nýta sér Storytel eða hlaðvörp. Einnig óska þeir eftir notalegra lestrarum- hverfi. Þegar þeir voru að lokum spurðir um heima- lestur þá vilja þeir almennt fá meira frelsi um leiðir til lesturs, eins og að nota Seesaw til að skila heimalestri og fá stundum að hlusta á efni í stað þess að lesa. Könnun var send til for- eldra og var henni meðal annars beint til feðra. Í henni komu einnig fram afar áhuga- verð svör um lestur og lestrar- áhuga drengja. Spurt var um áhugasvið drengjanna og voru svör foreldra afar svipuð svörum þeirra. For- eldrar nefndu að auki áhuga á samfélagsmiðlum, ásamt tækni og stjörnufræði. For- eldrar telja yfir höfuð þátt- töku sína í lestrarnámi barna sinna afar mikilvæga og að góð lestrarfærni sé mikilvæg fyrir framtíð þeirra. Það sem foreldrar töldu vera bestu leiðirnar til að auka lestrar- áhuga var aðallega að rýna í áhugasviðin og vinna með þau, að drengir hefðu eitt- hvað um nám sitt að segja, að minnka vægi á lestrarhraða en að auka vægi lesskilnings. Að lokum þegar foreldrar voru spurðir um hvernig þeir gætu mögulega stutt betur við lestrarnám barna sinna þá nefndu þeir þætti eins og hvatningu, að sýna áhuga á lesefninu, gefa þeim meiri umbun fyrir heimalesturinn og að lesa meira með þeim. Er því óhætt að segja að drengir og foreldrar hafi áhugaverðar skoðanir varð- andi lesefni og lestraraðferðir sem nýttar eru í skólum og í heimalestri. Drengir geta lesið en niðurstöðurnar benda til þess að þeir vilji hafa meiri áhrif á lestrarnámið sitt, að þeir vilja styðjast við efni sem tengist áhugasviðum þeirra og þeir vilja vinna með læsistengt efni á fjöl- breyttan hátt. Er mikilvægt að bregðast við niðurstöðum úr umræddum könnunum og verður sérstök áhersla lögð á það á mið- og unglingastigi í októbermánuði. Það er öllum frjálst að taka þátt í lestrar- upplifuninni með skólum í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum og hvetjum við sem flesta, sérstaklega foreldra, til að taka þátt. Heiða Ingólfsdóttir, kennsluráðgjafi í Suður­ nesjabæ og Vogum. Slökkviliðsstjóri Grindavík er vinalegur 3600 manna sjávarútvegsbær á suðvesturhorni landsins. Í bænum eru leik-, grunn- og tónlistarskólar ásamt öflugu íþrótta- og tómstundastarfi. Sjávarútvegur og fiskvinnsla hefur verið burðarás atvinnulífs í Grindavík og er bærinn ein öflugasta verstöð landsins. Í Grindavík er einnig öflug ferðaþjónusta, mörg veitingahús, gistihús, hótel og fjögurra stjörnu tjaldsvæði, góð útisundlaug með heitum pottum, heilsuræktarmiðstöð, verslanir, banki og öll nauðsynleg þjónusta. Nánari upplýsingar má finna á: www.grindavik.is Umsókn gildir í 6 mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Menntunar- og hæfniskröfur: Grindavíkurbær leitar að metnaðarfullum einstaklingi í framtíðarstöðu slökkviliðsstjóra Grindavíkurbæjar. Slökkviliðsstjóri ber ábyrgð á rekstri og starfsemi slökkviliðs Grindavíkur og að unnið sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Mikil áhersla er lögð á áreiðanlega þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. • Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun slökkviliðs • Ábyrgð á faglegri starfsemi, menntun og þjálfun slökkviliðsmanna • Stjórn slökkvistarfs við eldsvoða og á vettvangi mengunaróhappa á landi • Eldvarnareftirlit, skipulag, úttektir, umsagnir og eftirfylgni • Umsjón með öllum tækjum slökkviliðs og ábyrgð á virkni þeirra • Áætlanagerð og stefnumótun • Samskipti við íbúa, fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila • Situr í almannavarnanefnd Helstu verkefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Einnig skal fylgja afrit af leyfisbréfi og prófskírteini. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. • Löggilding sem slökkviliðsmaður sbr. 17. gr. laga nr. 75/2000 og að lágmarki eins árs reynsla í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður • Menntun sem nýtist í starfi • Menntun til eldvarnareftirlits er kostur • Stjórnunarreynsla og þekking á rekstri • Þekking á yfirferð og eftirliti tækja og búnaðar æskileg • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi • Geta til að vinna undir miklu álagi • Leiðtogafærni, þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum • Áhugi og vilji til þess að tileinka sér nýjungar í starfi • Góð almenn tölvukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Vegna eðli starfs og viðbragðs utan dagvinnutíma er æskilegt að viðkomandi sé búsettur í Grindavík eða innan 15 mínútna akstursfjarlægðar 22 // vÍKURFRÉttIR á sUðURNesJUM Í 40 áR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.