Víkurfréttir - 22.09.2021, Side 24
Misnotað hælisleitendakerfi
Birgir Þórarinsson
Höfundur er þingmaður og oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, sagði fyrir nokkrum árum
að fjölmenningarstefnan hafi
brugðist. Undir það tóku for-
seti Frakklands og forsætisráð-
herra Bretlands. Þau sögðu að
hælisleitendur sem fá dvalar-
leyfi samlagist ekki gistiþjóð-
inni og verði þjóðarbrot innan
þjóðarinnar, sem skapi síðan
vandamál. Merkel bætti síðan
við að útlendingar sem settust
að í Þýskalandi þyrftu að til-
einka sér ákveðin gildi og við-
mið, læra þýsku og tryggja að
konur þeirra á meðal nytu jafn-
réttis. Í Danmörku og Svíþjóð
er hafið uppgjör við fjölmenn-
ingarstefnuna. Í júní í sumar
var í fyrsta sinn í sænskri sögu
samþykkt vantraust á forsætis-
ráðherrann og er almennt talið
að það eigi rætur til innflytj-
endamála. Ráðherrann viður-
kenndi á blaðamannafundi að
glæpagengi hafi hreiðrað um
sig í landinu sem rekja mætti til
mikils fjölda innflytjenda, sem
komið hafi til landsins á undan-
förnum árum. Ísland verður að
læra af reynslu þessara þjóða.
Við eigum að stýra því sjálf
hverjir koma hingað. Hælisleit-
endakerfið kostar skattgreið-
endur 4,4 milljarða á þessu ári.
Kostnaður við hvern hælisleit-
enda er um sex milljónir á ári.
Að sama skapi má benda á að
ellilífeyrisþegi, sem fær tekjur
sínar frá Tryggingastofnun, fær
um 3,3 milljónir á ári.
Miðflokkurinn eini flokkur-
inn sem ætlar að laga hælis-
leitendakerfið
Hælisleitendakerfið á Íslandi
er óskilvirkt og í ólestri. Dóms-
málaráðuneytið hefur viður-
kennt að það sé misnotað.
Hingað kemur fólk sem á ekki
rétt á hæli en dvelur hér mán-
uðum saman á kostnað skatt-
greiðenda. Miðflokkurinn
hefur margsinnis bent á þetta
á Alþingi en talað fyrir daufum
eyrum. Í raun er stefna allra
flokka á Alþingi nema Mið-
flokksins sú að fjölga hér hæl-
isleitendum. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ekkert gert til að
draga úr fjölda umsókna um
hæli þrátt fyrir að hafa haft
málaflokkinn á sinni könnu um
árabil. Framsóknarflokkurinn
lagði fram frumvarp á Alþingi í
vetur sem hefði stóraukið fjölda
hælisleitenda til Íslands. Það
var ekki síst fyrir baráttu Mið-
flokksins að frumvarpið náði
ekki í gegn. Miðflokkurinn er
eini stjórnmálaflokkurinn sem
hefur það á stefnuskrá sinni
fyrir kosningarnar að laga hæl-
isleitendakerfið og koma í veg
fyrir misnotkun þess. Málið er
brýnt eins og reynsla nágranna-
þjóða okkar sýnir.
Ég fékk tengdamömmu
í heimsókn
Hólmfríður Árnadóttir
Höfundur er oddviti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Suðurkjördæmi.
Hún kom með nýja handprjón-
aða peysu handa mér og eins og
hennar er von og vísa mátti ég
ekki borga fyrir viðvikið. Hún
væri nú ekki of góð að prjóna
fyrir mig, komin á eftirlaun og
hefði nægan tíma en ég ekki.
Svona konur eru gersemar og
uppfullar af þekkingu og færni
sem við margt yngra fólkið
búum ekki yfir.
Tengdamamma mín var
verkakona alla sína tíð og lengi
vel einstæð með sex börn á
framfæri. Hún hefur þurft að
telja krónur og aura alla sína
tíð en samt telur hún ekki
eftir sér að gefa tíma sinn til
að sinna barnabörnum, baka
fyrir fjölskylduna og prjóna
kynstrin öll af flíkum sem við
fjölskyldumeðlimir skörtum
við flest tækifæri. Hún er eitt
stórt hjarta og einstaklega flink
í höndunum.
Fyrir hana og fyrir alla aðra í
hennar stöðu vil ég berjast með
félagslegt réttlæti að vopni. Það
er réttlætismál að hún fái mann-
sæmandi lífskjör, njóti félags-
legra réttinda og lifi við mann-
lega reisn. Að hún hafi efni á að
kaupa lyfin sín og garn í flíkur
fyrir ættingja utan þess að eiga
í sig og á. Fyrir hana þarf að ein-
falda bótakerfið sem hefur vaxið
um of í augum flestra í hennar
sporum. Fyrir hana er einnig
afar mikilvægt að ellilífeyrir fylgi
lágmarkslaunum og að haldið
sé áfram að lækka lyfjakostnað
með hagkvæmari innkaupum til
dæmis í samvinnu við Norður-
löndin eða kanna möguleika á að
aftur verði til lyfjaframleiðsla á
vegum hins opinbera með hag
aldraðra og öryrkja að leiðarljósi.
Tengdamamma mín er ern og
heldur heimili og myndi njóta
góðs af því að fá heimaþjónustu
sérstaklega þegar hún á níræð-
isaldri á erfiðara með að sinna
öllum heimilisverkum líkt og
áður. Þegar hún vill njóta heils-
dags þjónustu eða jafnvel fara
á hjúkrunarheimili þá á slíkt í
boði. Við í Vinstrihreyfingunni
- grænu framboði viljum setja af
stað vinnu við að endurskoða
þjónustulíkan í öldrunarþjón-
ustu með áherslu á þverfag-
lega samvinnu heilsugæslu og
félagsþjónustu. Það er nefni-
lega skýlaus réttur þeirra sem
mótað hafa landið og lagt sitt af
mörkum við að byggja það upp
að lifa með reisn óháð efnahag.
Við sem yngri erum eigum að
hugsa til þeirra með virðingu
og gæta að réttindum þeirra í
okkar baráttu fyrir betra sam-
félagi. Þau eiga það sannarlega
skilið.
Er virkilega til
of mikils mælst?
Sigrún Berglind Grétarsdóttir
Höfundur skipar 4. sætið á framboðslista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi.
Það virðist ætíð vera viðkvæðið
að ekki séu nægir fjármunir til
að rétta efnahag þeirra sem
hvað lökustu kjörin hafa í okkar
vellauðuga landi þar sem stjórn-
völd státa sig samt af heimsins
mestu velferð. Sumir efast um
að þetta misrétti verði nokkru
sinni lagfært. Jafnvel hið svo-
kallaða góðæri síðustu ára
virðist bara vera fyrir hluta
þjóðarinnar, hina útvöldu! Ég vil
minna á að kjörnir fulltrúar eiga
að vinna þjóðinni allri til gagns,
ekki bara hluta hennar.
Fjármálaráðherra talar um
að jöfnuður hafi aldrei verið
jafn mikill og nú og aldrei hafi
verið eins mikið gert fyrir þessa
þjóðfélagshópa. Þetta er ótrú-
legt sjónarspil með tölur enda
blasir allur annar veruleiki við
því fólki sem varla á til hnífs og
skeiðar út mánuðinn.
Við hljótum öll að sjá að
ekki er hægt að lifa á 256.500
krónum sem eru 221.000
krónur eftir skatt. Um það þarf
varla að ræða, hvað sem meðal-
töl í tölvukerfum segja.
Við krefjumst réttlætis fyrir
alla í ríku landi!
Ójöfnuður er staðreynd hér á
landi. Aldraðir, öryrkjar og fólk
í láglaunastörfum eiga ekki að
vera afgangsstærð í þjóðfélag-
inu. Þetta eru einstaklingar sem
eiga að njóta þeirrar virðingar
að fá að lifa mannsæmandi
lífi og njóta einhvers af því
sem lífið hefur upp á að bjóða,
a.m.k. þannig að þeir þurfi ekki
að hafa áhyggjur af næstu mál-
tíðum er líða tekur á mánuðinn.
Er virkilega til of mikils
mælst?
Því miður virðist það vera við-
tekin venja að þessum þjóð-
félagshópum skuli úthlutað
eins naumt og hægt er á meðan
þeir sem eru á jötu ríkisins
sleikja út um í bæði munnvikin
með bólgin launaumslögin og
sjálfkrafa hækkanir með vissu
millibili án þess að það þyki til-
tökumál. Stóra spurningin sem
kjósendur þurfa að spyrja sig
er hvort við ætlum að viðhalda
slíku þjóðfélagi eða brjóta múr-
ana og bæta kjörin í krafti sam-
takamáttar okkar.
Látum ekki glepjast eina
ferðina enn!
Fólkið fyrst, svo allt hitt
Flokkur fólksins er ekki með
loforðaflaum í aðdraganda
kosninga en heldur ótrauður
áfram með sín baráttumál um
að jafnara verði gefið af þjóðar-
kökunni og að raddir allra fái
hljómgrunn á Alþingi.
Flokkurinn hefur barist
kröftuglega og látið hátt í sér
heyra um ýmis réttlætismál
fyrir hönd þeirra sem höllustum
fæti standa og vissulega hefur
verið við ofurefli að tefla.
Sú barátta bar árangur þegar
samþykkt var á síðustu dögum
þingsins að stofna embætti
hagsmunafulltrúa aldraðra og
að blindum og sjónskertum
stæði til boða leiðsöguhundar
þeim að kostnaðarlausu. Einnig
hefur flokkurinn lagt fram tugi
þingmála og er það vel með að-
eins tvo þingmenn innanborðs.
Kjósandi góður!
Ef þú vilt sjá réttlátara samfélag
þar sem allir getað tekið þátt en
ekki setið á hliðarlínunni, þá er
það í þínum höndum að knýja
fram um breytingar sem svo
margir kalla eftir.
Opnum augun og setjum x
við Flokk fólksins sem hefur að
leiðarljósi fólkið fyrst, svo allt
hitt.
Að láta verkin tala
fyrir atvinnulífið
Ásmundur Friðriksson, alþingismaður.
Það er sorglegra en tárum tekur
að horfa upp á það að loks þegar
atvinnutækifærin bjóðast í þús-
undavís skortir verulega á að at-
vinnulaust fólk skili sér til baka
í gömlu störfin. Það voru allir
miður sín yfir stöðunni á vinnu-
markaði þegar störfunum fækk-
aði vegna kórónuveirufarald-
ursins. Ríkisstjórnin kom með
hvert úrræðið af fætur öðru til
að milda tekjumissi heimila og
fyrirtækja. Margt var mjög vel
gert og heppnaðist vel en eðli-
lega hittu ekki allar aðgerðir í
mark. Oft var skammur tími og
mikill hraði í öllum viðbrögðum.
Tala fyrir störfum
Störfin sem töpuðust í kórón-
uveirufaraldrinum voru verð-
mæt, gjaldeyrisskapandi störf.
Þetta eru störfin sem standa
undir tekjum þjóðarinnar
og skipta okkur gríðarlega
miklu máli. Þess vegna er það
áhyggjuefni að fólkið skili sér
ekki til baka í þau störf. Greiðsla
atvinnuleysisbóta er neyðarráð-
stöfun í hverju tilfelli og á aldrei
að koma í veg fyrir að fólk taki
aftur við störfum sínum þegar
þau bjóðast á ný. Gjaldeyris-
skapandi störf eru undirstaða
velmegunar í landinu. Ég hef
alla tíð talað fyrir verðmæta-
skapandi störfum í landinu og
hef í ræðum og greinum fjallað
um þau mál. Ég hef bent á leiðir,
komið fram með tillögur um
ný störf og verkefni sem geta
skapað störf. Það er verkefni
þingmannsins að benda á leiðir
og tala fyrir nýjum störfum.
Suðurnesjalína 2
Trúr þeirri sannfæringu minni
að verðmætaskapandi störf
séu grunnur að velferð heim-
ilanna og samfélagsins lagði
ég fram lagafrumvarp um að
framkvæmdaleyfi fyrir Suður-
nesjalínu 2. Það er lykillinn að
frekari uppbyggingu atvinnulífs
á Suðurnesjum og eina leiðin
til að fjölga hér atvinnutæki-
færum. Ekkert eitt verkefni er
mikilvægara um þessar mundir
fyrir fjölbreyttara atvinnulíf og
orkuskipti á Suðurnesjum en að
Suðurnesjalína 2 rísi sem fyrst.
Það er verkefni okkar allra að
vinna saman að bættum kjörum
og betra lífi fyrir okkur öll. Það
gerum við með því að fjölga
atvinnutækifærum á Suður-
nesjum og manna þau störf sem
þegar eru laus. Tökum höndum
saman og setjum kraft í at-
vinnulíf svæðisins á ný.
Framsókn fyrir Suðurnes
Sigurður Ingi Jóhannsson,
formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Þau eru þung höggin sem Suð-
urnesin hafa orðið fyrir á síð-
ustu árum. Fyrst var það fall
Wow air og síðan heimsfarald-
urinn sem hafði ekki hvað síst
mikil áhrif á atvinnutækifærin
á Suðurnesjum þar sem ferða-
þjónusta, flutningar og fleira
sem tengist fluginu er stærsti
atvinnuvegurinn. Það hefur
verið lærdómsríkt og veitt inn-
blástur að fylgjast með baráttu
Suðurnesjafólks síðustu mán-
uðina og ár þar sem eldmóður
og bjartsýni hefur verið mikið
hreyfiafl góðra hluta.
Fjölbreyttari atvinnutækifæri
Ríkisstjórnin hefur tekið þátt í
því að skapa ný tækifæri með
Suðurnesjafólk með stuðn-
ingi við uppbyggingu nýrra at-
vinnutækifæra og menntun
á svæðinu þar sem Keilir er
mikilvæg uppspretta. Suður-
nesjafólk hefur í þeirri vinnu
sýnt mikla framsýni og þau eru
mörg fræin sem þar hefur verið
sáð sem munu veita heimafólki
ríkulega uppskeru þegar fram í
sækir. Þá er einnig rétt að minn-
ast á stækkun Njarðvíkurhafnar
gefur færi á þurrkví fyrir stærri
skip sem mun skapa fjölmörg
störf í þessu fornfræga sjó-
sóknarbyggðarlagi. Þá mun sú
uppbygging sem stendur fyrir
dyrum í Helguvík skapa fjöl-
breytt atvinnutækifæri á næstu
árum.
Græn atvinnuuppbygging
Saga Helguvíkursvæðisins
hefur ekki verið neinn dans á
rósum. Heimamenn hafa mátt
sætta sig við erfið áföll í upp-
byggingu svæðisins en nú
horfum við fram á mikil tæki-
færi á svæðinu sem tengist
náið hugmyndafræði hringrás-
arhagkerfisins. Við í Framsókn
höfum verið áfram um að sorp-
brennslustöð fyrir Ísland rísi í
Helguvík og verði hluti af þeim
grænu iðngörðum sem eru á
teikniborðinu. Það er nefnilega
svo að mikil atvinnutækifæri
eru fyrir Suðurnesin í nýju og
grænu hagkerfi.
Kraftur náttúru og manna
Síðasta vetur heimsótti ég Suð-
urnesin nokkrum sinnum. Jörð
ýmist skalf eða gaus. Það er
virkilega aðdáunarvert hvernig
Suðurnesjafólk hefur tekið
öllum þessum hamförum með
yfirvegun og dugnaði. Eldgosið
hefur dregið athygli heimsins
að sér og einnig dregið fjöl-
marga landsmenn á svæði sem
er ríkt af stórkostlegri náttúru
og krafti. Á þessum krafti nátt-
úru og manna verður hægt að
byggja blómlegt mannlíf og öfl-
ugt atvinnulíf á næstu árum.
Eflum heilbrigðisþjónustu
á Suðurnesjum
Erna Bjarnadóttir
Skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
#dingdingdingernuaþing
Undanfarnar vikur hef ég
ferðast um Suðurkjördæmi
með Birgi Þórarinssyni, al-
þingismanni af Suðurnesjum.
Okkur hefur hvarvetna verið
vel tekið og reynt að hlusta eftir
því sem brennur á íbúum. Ákall
Suðurnesjamanna um eflingu
heilbrigðisþjónustu á svæðinu
stendur þar upp úr. Það verður
að teljast með ólíkindum að
framlög hins opinbera til heil-
brigðisþjónustu eru lægri á
íbúa en almennt gerist á lands-
byggðinni og úr öllum takti við
fólksfjölgun á svæðinu. Aðeins
ein heilsugæslustöð er í Reykja-
nesbæ, engin í Suðurnesjabæ
og engin í Vogum á Vatns-
leysuströnd. Hvert eiga íbúar
að snúa sér til að fá nauðsyn-
lega þjónustu? Bið eftir síma-
tíma í Reykjanesbæ getur verið
margir dagar hvað þá annað.
Allt þetta veldur síðan auknu
álagi á sjúkraflutninga á svæð-
inu þegar fólk veit að sé það
flutt með sjúkrabíl á bráðamót-
töku LSH kemst það beint undir
læknishendur. Önnur afleiðing
er svo aukið álag á bráðamót-
tökuna. Enginn þarf heldur að
vera í vafa um að þetta veldur
óþarfa álagi á læknavaktina,
þar er jú hægt að fá viðtal sam-
dægurs leggi fólk á sig að bíða
í einn til tvo klukkutíma. Stað-
reyndin er sú að komur á bráða-
móttökuna og læknavaktina eru
milli 700–800 á sólarhring. Það
sem hér er lýst má einnig kalla
aðflæðisvanda þessarar mikil-
vægu bráðaþjónustu. Enginn
vafi er á að fjármunum og tíma
fólks væri betur varið með því
að byggja upp nauðsynlega
heilsugæsluþjónustu nær not-
endum, í þessu tilviki á Suður-
nesjum. Það er með ólíkindum
að tillögur Birgis Þórarinssonar,
alþingismanns Miðflokksins,
um auknar fjárveitingar til
opinberra stofnana á Suður-
nesjum, þar með talið til Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja,
hafi allar verið felldar á liðnu
kjörtímabili. Aftur og aftur eru
Suðurnesin sniðgengin í fjár-
veitingum.
Fyrirliggjandi fjármálaáætlun
fráfarandi ríkisstjórnar gerir ráð
fyrir niðurskurði næstu árin og
eykur því ekki líkurnar auknum
fjárframlögum til Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja. Nýja rík-
istjórn þarf til þess að svo verði.
Settu X við M á kjördag.
sKIL á AðseNdU eFNI
Greinar og annað aðsent efni sem
óskað er að birtist í Víkurfréttum þarf
að hafa borist ritstjórn fyrir hádegi
mánudags á netfangið vf@vf.is
24 // vÍKURFRÉttIR á sUðURNesJUM Í 40 áR