Víkurfréttir - 22.09.2021, Page 26
Er ekki bara best að
kjósa Framsókn?
Jóhann Friðrik Friðriksson
Skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Suðurkjördæmi.
Á laugardaginn kemur munu
kjósendur einmitt svara þessari
spurningu og er það mín von að
svarið verði jákvætt. Á undan-
förnum árum hef ég verið þess
heiðurs aðnjótandi að starfa í
bæjarstjórn fyrir íbúa Reykja-
nesbæjar. Ég sækist nú eftir
því að nýta krafta mína á þingi
fyrir svæðið og kjördæmið allt.
Störfum mínum hef ég sinnt
af heilindum og dugnaði enda
mjög mikilvægt að gæta hags-
muna íbúa, leiða mál til sátta
og hafa alltaf í huga þá stað-
reynd að umboðið kemur frá
kjósendum.
Mikilvægt að gæta hagsmuna
íbúa
Á þeim árum sem ég hef starfað
í stjórnmálum hef ég tekist á
við mörg krefjandi verkefni.
Stærst þeirra er eflaust málefni
kísilversins í Helguvík en eins
og bæjarbúar vita best hafnaði
Framsókn alfarið mengandi
stóriðju í Helguvík og talaði
ég þar skýrt þrátt fyrir um-
talsverðan þrýsting frá eig-
endum. Þar sýndi ég og sann-
aði mikilvægi þess að standa
með íbúum. Það er mín von að
framtíðaruppbygging í Helguvík
verði í sátt við íbúa og leiði af
sér fjölbreytt störf hér á svæð-
inu. Hugmyndir af samruna
Kölku og Sorpu voru einnig
stoppaðar eftir að Framsókn
kom inn í nýjan meirihluta.
Sorpa hefur síðan lent í miklum
ógöngum og eigendur þurft að
leggja félaginu til háar fjárhæðir.
Það reyndist því mikið gæfu-
spor fyrir sveitarfélögin á Suð-
urnesjum er snúið var af braut
sameiningar við Sorpu.
Heilbrigðismál stóra kosn-
ingamálið
Flestir eru sammála um það
að heilbrigðismálin séu eitt af
stóru kosningamálunum fyrir
þessar kosningar. Það er gríð-
arlega mikilvægur málaflokkur
sem snertir okkur öll. Ég hef
barist fyrir bættri heilbrigðis-
þjónustu um langt skeið og tel
mjög mikilvægt að við endur-
skoðum áherslur okkar í heil-
brigðismálum og horfum til
fyrirbyggjandi aðgerða. Til þess
þarf að efla forvarnir, heilsuefl-
ingu og heilsugæslur um land
allt. Það er fagnaðarefni að ný
heilsugæsla sé nú komin á dag-
skrá og ráðgert að framkvæmdir
við hana hefjist á næsta ári.
Mikilvægt er að færa þjónust-
una að nýju nær íbúunum, efla
teymisvinnu þvert á stofnanir
og nýta fjarþjónustu í auknu
mæli með þeim tæknifram-
förum sem orðið hafa á undan-
förnum árum.
Jákvæð kosningabarátta
Kæri kjósandi, það hefur því
miður verið raunin að stjórn-
málin hafa oft tekið á sig ljóta
mynd þegar líður nær kosn-
ingum. Einhverjir beita þeim
brögðum að birta greinar í
blöðum rétt fyrir kosningar í
þeirri von að frambjóðendum
gefist ekki kostur á að svara
ávirðingum í sinn garð með
staðreyndum. Framsókn er ekki
þar. Áherslur okkar á jákvæða
og uppbyggjandi kosningabar-
áttu gerir vinnuna skemmti-
legri og gefur okkur tækifæri til
þess að leggja áherslu á okkar
stefnumál og framtíðarsýn.
Þegar á hólminn er komið er
það umhyggjan í samfélaginu og
máttur samvinnunar sem skilar
okkur áfram veginn.
Nýja íslenska nýlendustefnan
Þórólfur Júlían Dagsson
Skipar 10. sæti á lista Pírata í Suðurkjördæmi.
Við lifum á skemmtilegum tíma
í mannkynssögunni. Gamaldags
nýlendustefna og arðrán auð-
linda af fátækari ríkjum heims
er að líða undir lok.
Vissulega eru enn þjóðir með
tök á auðlindum annarra landa
en sem betur fer er mannkynið
farið að átta sig á því að það er
ekki siðferðislega rétt að stela
auð úr löndum sem hafa ekki
burðina eða tæknina til þess að
nýta auðlindirnar.
Það sem hefur farið fram hjá
okkur er að arðránið, það sem
við skilgreinum sem nýlendu-
stefnu, hefur aðeins færst frá
því að vera stunduð af gömlu
heimsveldunum og stórfyrir-
tæki hafa tekið við.
Hér á Íslandi er þetta ber-
sýnilegt en virðist þó oft fara
fram hjá mörgum. Við horfum á
innviði okkar samfélags drabb-
ast niður; velferðarkerfið, heil-
brigðiskerfið, jafnvel vegakerfið
að einhverju leyti og svo margt
annað.
En hvað veldur þessu? Jú,
nýlendustefna nútímans.
Sjávarútvegsfyrirtækin hafa
komist upp með það að sjúga
fjármagn úr íslensku hagkerfi
með því að taka hagnaðinn út
með erlendum sölufyrirtækjum
í þeirra eigu.
Þetta fjármagn hefur svo
verið fært aftur til Íslands í
gegnum alls konar krókaleiðir
og notað til þess að kaupa
upp fyrirtæki í öðrum rekstri
á hagstæðum kjörum. Sjávar-
útvegsfyrirtækin - og það sem
ég flokka sem ekkert annað
en fyrirtækjanýlendustefna
þeirra - eru að sjúga fjármagn
út úr hagkerfinu okkar og ekk-
ert hefur verið gert til þess að
stoppa það.
Okkur er sagt að kapítalismi
sé góður og samkeppni sé af
hinu góða en á Íslandi er sam-
þjöppun, einsleitni og verðsam-
ráð ríkjandi ástand.
Ég spyr því: „Hver er mun-
urinn á því að hér komi erlent
ríki og hertaki okkar auðlindir
til þess að hagnast á þeim og
að stórfyrirtæki, sem að stunda
ekki samkeppni heldur samráð,
stundi hvers kyns undanbrögð
á kostnað samfélagsins okkar?“
Í mínum augum er munurinn
enginn, við höfum leyft þessum
innrásarher að hertaka okkar
auðlindir, og svar okkar al-
mennings við þessari árás er ný
stjórnarskrá og róttækar breyt-
ingar í sjávarútvegi.
Kæri kjósandi, þegar þú ferð
inn í kjörklefann og setur x við
listabókstaf, ekki bregðast sam-
löndum þínum.
Ekki setja x við þá flokka sem
að eru flæktir í þessa nýlendu-
stefnu og vilja viðhalda henni.
Settu x við þá flokka sem frelsa
okkur úr ánauð nýlendustefn-
unnar með því að festa nýja
stjórnarskrá í sessi. Flokka eins
og Pírata. Nú er tækifærið, við
skulum ekki bregðast okkur.
Gefðu framtíðinni tækifæri
Guðbrandur Einarsson
Skipar 1. sæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi.
Næ stkomandi laugardag
göngum við til kosninga og
veljum okkur þingmenn sem
eiga að leiða okkur inn í fram-
tíðina. Sjaldan hefur mikilvægi
kosninga verið eins mikið og
núna þó að sjálf kosningabar-
áttan hafi að mati sumra látið
lítið yfir sér. Stóru málin eru
hins vegar mörg en þó eru þeir
til sem gera lítið úr þeim áskor-
unum sem bíða okkar.
Hafandi rætt við fjölda fólks
undanfarnar vikur skynja ég að
mikilvægi breytinga á samfélag-
inu okkar.
Unga fólkið okkar er að veita
okkur áminningu á marga vegu.
Mörg þeirra óttast um framtíð
sína vegna þeirra loftlagsbreyt-
inga sem nú eru að eiga sér stað
og munu hafa áhrif á líf þeirra
til framtíðar. Þá er heldur ekki
hægt að ganga fram hjá því ákalli
unga fólksins okkar um mikil-
vægi breytinga á samskipta-
mynstri, hvernig við hegðum
okkur, hvernig við tölum hvert
við annað og hvernig við leyfum
okkur að fara yfir persónuleg
mörk hvors annars.
Á þessar raddir þarf að hlusta
og taka tillit til.
Heilbrigðisþjónusta á allra
vörum
Þá eru flestir á einu máli um að
heilbrigðisþjónusta sé í ólestri
og við því verði að bregðast. Ég
hef sem sveitarstjórnarmaður
í langan tíma bent á þetta en
talað fyrir daufum eyrum, því
miður. Rekstrarform er að flækj-
ast fyrir þegar þjónusta við íbúa
á að vera í fyrsta sæti. Fólkið á
ekki að vera fyrir kerfið heldur á
kerfið að vera fyrir fólkið.
Afkomuöryggi skiptir máli
Því miður hafa margir áhyggjur
af afkomu sinni og upplifa erfið-
leika við að ná endum saman.
Við því þarf að bregðast. Ef af-
komuöryggi fólks er ekki tryggt
fer flest annað á hliðina. Stjórn-
málamenn geta brugðist við
þessu, hafi þeir hugrekki til. Það
er á þeirra borði að bæta afkomu
heimilanna og jafna kjörin.
Að forgangsraða rétt
Ég hef sem sveitarstjórnar-
maður í rúma tvo áratugi lagt
mig fram um að sýna ráðdeild í
rekstri en forgangsraða um leið
í þágu þeirra sem þurfa á því að
halda. Ég mun halda því áfram
fái ég til þess stuðning næst-
komandi laugardag. Við þurfum
að rjúfa þá kyrrstöðu sem við-
gengist hefur um árabil.
Framtíðin bíður handan við
hornið sem öllum sínum tæki-
færum og það er okkar að grípa
þau til hagsbóta fyrir komandi
kynslóðir.
Ég er tilbúinn í slaginn og leita
því til ykkar eftir stuðningi.
Gefðu framtíðinni tækifæri.
Kjóstu Viðreisn X-C
Leiðin til
árangurs
Guðrún Hafsteinsdóttir
Höfundur er oddviti D-lista Sjálfstæðisflokks
í Suðurkjördæmi.
„Hvernig dettur þér þetta í
hug, Guðrún?,“ er spurning
sem ég fæ oft frá fólki sem ég
hitti á ferðalagi mínu um okkar
ágæta Suðurkjördæmi nú í að-
draganda kosninga. Er þá fólk
að vísa til þess að maður er
vissulega lítið heima hjá sér,
þeytist milli horna kjördæm-
isins frá morgni fram á nótt
í sífelldu áreiti, ys og þys, og
þegar heim er komið sér maður
hvernig stofublómin fölna
sökum hirðuleysis. Blessuð
blómin fá þó sitt vatn og sína
alúð á endanum.
Svarið við spurningunni
er þó jafnan hið sama: „Ég er
komin til að vinna, takast á við
þau verkefni sem þarf, og gefa
allt mitt í það.“ Ég hef alltaf
verið dugleg, vön því að vinna
mikið og það veitir mér ánægju
að sjá afrakstur vinnu minnar.
Ef ég get orðið fólki að liði líður
mér vel. Það er enda hlutverk
okkar sem störfum í stjórn-
málum, þess vegna gef ég mig
í þetta verkefni.
Ég sé líka orkuna, viljann,
spennuna, styrkinn, fram-
sýnina og fegurðina sem býr
í fólkinu sem byggir og mótar
okkar samfélag í Suðurkjör-
dæmi. Hér er allt til staðar til
að okkur geti gengið vel. Það er
svo undir okkur sjálfum komið
að sjá til þess að svo fari. Til
að okkur takist ætlunarverk
okkar þurfum við kjölfestu í
stað glundroða, stefna ótrauð
áfram og tryggja öllum stöðug-
leika, festu og frelsi til athafna.
Þetta er leiðin til árangurs.
Ég hef sagt við fólk að ég
vilji sjá nærsamfélagið fá
meira vægi í ákvarðanatöku
um hvernig hlutirnir þróast
heima fyrir. Fólkið í héraðinu
lúti ekki boðvaldi ríkisins í
málum sem stendur því nærri,
svo sem í þjónustu heilbrigð-
isstofnana, menntamálum,
þróun atvinnuuppbyggingar
eða skipulagsmálum svo fátt
eitt sé nefnt. Hættan er sú að
þeir stjórnmálaflokkar sem
hallir eru undir miðstýringu
komi sér fyrir við stjórn lands-
mála og blási út kerfi sem
þrengir að hugmyndaríku og
duglegu fólki með regluger-
ðafargani og ofurskattheimtu.
Slíkt er ekki líklegt til árangurs
og hugmyndafræðin á bak við
þannig stjórnarhætti situr á
ruslahaugum sögunnar.
Verkefnin framundan kalla
á sterka leiðtoga, traust í
samstarfi og trúverðugleika
í orðum og athöfnum. Ég er
komin á svið stjórnmálanna til
að láta til mín taka. Ég finn vel-
vild og traust hjá fólkinu sem
ég hef hitt á förnum vegi og ég
ætla mér að standa undir því
trausti og vel það. Ég ætla mér
líka, í samvinnu við kjósendur
og Sunnlendinga alla að efla
og styrkja stöðu Suðurkjör-
dæmis strax á komandi kjör-
tímabili, vinna landinu okkar
gagn og útbúa frjóan jarðveg til
framtíðar, íslenskri þjóð til far-
sældar og heilla.
Ég biðla til þín að taka þátt í
þessari vegferð með mér með
því að setja x við D á kjördag.
Hverjum er treystandi?
Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og oddviti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi.
Núna lofum við sem erum í framboði öllu
fögru. Það er ekki nema von að margir
hristi hausinn og velti fyrir sér af hverju
ástandið er eins og það er á Íslandi ef allir
vilja svona vel.
Persónulega vil ég trúa því að lang-
flestir fari út í stjórnmál af góðum hug
en svo fer fólk að rekast á veggi og áttar
sig á því að það þarf að taka þátt í ein-
hverjum „leikjum“ til að spila með og vera
gjaldgengt í „hópinn“.
Það er þá sem virkilega reynir á. Hefur
„bláeygi“ frambjóðandinn styrkinn sem
þarf, til að standa á sínu og taka lang-
hlaupið? Eða gefst hann upp gegn of-
ureflinu, hvort sem það er flokksræðið,
embættismannakerfið, þrýstingur sér-
hagsmunafla eða þetta allt og meira til,
samanlagt?
Flestir sem fara út í stjórnmál eru
óskrifað blað hvað þetta varðar og erfitt
að segja til um staðfestu þeirra þegar þeir
eru komnir að kjötkötlunum. Aðrir hafa
þegar sýnt sitt rétta andlit eftir mörg ár
á Alþingi.
Það er bæði hlægilegt og sorglegt í
senn að hlusta á fólk sem hefði fyrir lif-
andis löngu getað verið búið að útrýma
fátækt á Íslandi, afnema verðtryggingu
lána heimilanna, bæta hag aldraðra, bæta
hag öryrkja og byggja upp heilbrigðis-
þjónustu, svo að nokkuð sé nefnt, tala
fjálglega um þessi mál – enn einu sinni,
eftir margra ára svik.
Að standa við stóru orðin
Það er látið eins og þessi mál séu flókin
en þau eru það ekki. Þessi mál snúast
fyrst og fremst um forgangsröðun og ef
fólk en ekki fjármagn og sérhagsmunir
hefðu einhvern tímann verið í forgangi
hjá þessu fólki og flokkum, væri löngu
búið að gera þetta allt.
Það er óafsakanlegt að læsa fólk, eins
og öryrkja og aldraða, í fátækragildru og
hana þarf að opna. Á meðan einhver á
ekki til hnífs og skeiðar á Íslandi, þá á það
að vera algert forgangsmál áður en farið
er í nokkur önnur mál. Það ætti ekki einu
sinni að þurfa að ræða það!
Afnám verðtryggingar er ein lítil laga-
breyting sem tekur enga stund að vinna,
leggja fram og samþykkja. Flokkur fólks-
ins á það frumvarp tilbúið.
Heilbrigðisþjónustan er flóknara mál
en þar er engu að síður hægt að gera svo
miklu betur strax með nokkrum ein-
földum aðgerðum, eins og t.d. að auka
heimaþjónustu við aldraða svo þeir geti
farið heim að spítölum og fjölga þannig
rúmum fyrir aðra þjónustu. Á sama tíma
þarf að fara í uppbyggingu hjúkrunar-
heimila, þar sem öldruðum væri sýnd
virðing og þeir ekki sviptir fjárhagslegu
sjálfstæði vegna búsetu á þeim.
Að eyða biðlistum er einfaldlega verk-
efni sem þarf að ganga í, því það er engan
veginn ásættanlegt að fólk þjáist að
óþörfu í einu ríkasta landi heims. Þján-
ingar og skerðing lífsgæða verður aldrei
metin til fjár en þetta myndi þetta fljótt
borga sig fyrir ríkið. Annar kostnaður
vegna fólks á biðlistum er svo sannarlega
meiri en sá sem nemur einni eða tveimur
aðgerðum.
Þetta eru bara dæmi um það sem
verður gert ef fólk en ekki fé, er sett for-
gang.
Hvernig geta kjósendur „mælt“ stað-
festu og trúverðugleika frambjóðenda?
Stutta svarið við þessari spurningu er
að það er ekki hægt en þó má oft finna
einhverjar vísbendingar.
Við vitum öll að það er sorglega sjald-
gæft að frambjóðendur standi við loforð
sín. Það er hins vegar þekkt að það er
fyrst undir pressu sem þinn innri maður
kemur í ljós.
Ég ætla að leyfa mér að vitna í Dr. Phil,
sem hefur stundum rétt fyrir sér. Hann
segir oft að besti mælikvarðinn á það
hvernig þú bregst við í framtíðinni, sé
hvernig þú hefur brugðist við í fortíðinni.
Engin veit hvað framtíðin ber í skauti
sér þannig að í mínum huga snýst spurn-
ingin um trúverðugleika frekar um hvað
við höfum séð til frambjóðenda í fortíð-
inni frekar en einstök mál.
Margir frambjóðendur eru óskrifað
blað en aðrir hafa sýnt úr hverju þeir eru
gerðir, hvort sem það er með jákvæðum
eða neikvæðum hætti.
Þekkt fyrir baráttu og að gefast aldrei
upp
Ég get stolt lagt fyrir kjósendur „for-
tíð“ mína og Flokks fólksins. Inga Sæland
og Guðmundur Ingi hafa barist eins og
ljón fyrir hagmunum öryrkja, aldraðra
og fátækra inni á Alþingi og aldrei gefið
tommu eftir. Á síðasta vetri lögðu þau
fram hátt í 40 mál, sem er sennilega met
hjá þingflokki og alveg klárlega ef miðað
er við höfðatölu hans.
Þau komu þremur þessara mála í gegn
en hinum var öllum hafnað af sama fólk-
inu og hefur nú sett þau á loforðalistann
sinn!
Hvað mig sjálfa varðar þá hef ég staðið
í framlínu baráttunnar fyrir hagsmunum
heimilanna, gegn einum sterkustu sér-
hagsmunaöflum landsins, fjármálakerf-
inu sjálfu.
Ég hef sýnt að ég tekst algjörlega
óhrædd á við þau og ég muni aldrei gefa
neitt eftir, hvorki í baráttu við þau né
fyrir öðrum réttlætismálum.
Ég og Flokkur fólksins bjóðum fram
krafta okkar fyrir þig og þína hagsmuni.
Hvern vilt þú hafa í þínu liði?
Settu X við F fyrir þína framtíð!
26 // vÍKURFRÉttIR á sUðURNesJUM Í 40 áR