Víkurfréttir - 22.09.2021, Side 32
Slagorðaslagur
Hækkum barnabætur um 900.000
fyrir einstætt foreldri með tvö börn.
Fólkið fyrst svo allt hitt. Alvöru að-
gerðir í loftslagsmálum. Róttækni
ekkert kjaftæði. Þjónustuvæðum
heilbrigðiskerfið. Það skiptir máli
hver stjórnar. Orku á alla staði.
Gefðu framtíðinni tækifæri. Land
tækifæranna. Grænir hvatar eru
framtíðin. Notum hreina orku.
Hættum að nota olíu. Lægri vextir
eru framtíðin. Lægri skattar betri
lífskjör. Sanngjarn sjávarútvegur er
framtíðin. Heilbrigðiskerfið er dýr-
mætt. Burt með biðlistana. Stuttir
biðlistar eru framtíðin. Jafnrétti óháð
búsetu. Meiri mannúð. 60.000 kr.
vaxtarstyrkur fyrir öll börn. Enn
fleiri friðlýsingar. Fjárhagslegt ör-
yggi fyrir fjölskylduna. Við styðjum
lítil og meðalstór fyrirtæki. Þjóðin
kýs almannaþjónustu. Lýðræði
ekkert kjaftæði. Velsæld. Betra og
réttlátara lífeyriskerfi. Mannrétt-
indi. Stórbætum kjör eldra fólks.
Við erum rétt að byrja. Hækkum
barnabætur um 77.000 á mánuði
fyrir einstætt foreldri með tvö börn.
41,8% þjóðarinnar vill Katrínu áfram
í embætti forsætisráðherra. Það
hefur aldrei verið mikilvægara að
setja X við M. Er ekki bara best að
kjósa Framsókn? Fjárfestum í fólki.
Framtíðin ræðst á miðjunni. Eyðum
biðlistum í heilbrigðiskerfinu. Gefum
framtíðinni tækifæri. Tækifæri eiga
ekki að vera forréttindi. Réttlátara
skattkerfi. Enginn afsláttur í lofts-
lagsmálum. Heilbrigðisskimun fyrir
alla. Lækkum kostnað heimilanna.
Lækkum skatta á barnafólk.
Blanda af slagorðum í kosninga-
baráttu stjórnmálaflokkanna. Endur-
vinnsla gamalla loforða sem ekki
stendur til að standa við. Þau verða
öll fórnarlömb í stjórnarmyndunar-
viðræðna. Undanfarin tvö ár höfum
við lútið stjórn sóttvarnarlæknis.
Íslandi er stjórnað af embættis-
mönnum og því má spyrja hvort
kosningar skipti í raun máli. Eru
kosningar lýðræðisveisla eða kapp-
leikur um hverjir komast til valda?
Þegar barátta flokkanna er skoðuð
gaumgæfilega má finna mikinn
samhljóm um mörg mál. Til dæmis
um heilbrigðiskerfið. Það vilja allir
útrýma biðlistum. Af hverju er þá
ekki búið að því fyrir löngu? Allir
lofa grænni framtíð. Af hverju er þá
framtíðin ekki grænni nú þegar?
Það virkar vel í kosningabaráttu
að lofa að gefa fólki peninga. Pen-
inga sem eru sóttir úr vösum ein-
hverra annarra. Það skiptir þá engu
máli hvort menn kunni að reikna
eða ekki. Bara að slagorðin hljómi
vel. Gefins peningar eru góðir. Það
þekkja kennararnir í Reykjanesbæ
sem áttu að fá 500.000 kr. ein-
greiðslu að loknum síðustu sveitar-
stjórnarkosningum.
Kosningabaráttan er nú í há-
marki og niðurstöður liggja fyrir
um helgina. Ég tók sjálfur þátt í
lýðræðisveislunni fyrr í vor og skít-
tapaði. Viðurkenni fúslega að ég
hafði ekki áttað mig á því að menn
sökkva miskunnarlaust mörgum
milljónum í prófkjörsbaráttu bara til
að halda sæti sínu á Alþingi. Hversu
þungt vegur eigin sannfæring stjórn-
málamanns sem eyðir þremur til tíu
milljónum í kosningabaráttu innan
eigin flokks og þiggur styrki frá ein-
staklingum og fyrirtækjum til að
fjármagna baráttuna. Er viðkomandi
stjórmálamaður eða málaliði?
Það er vitlaust gefið í samfélaginu
okkar á margan hátt. Stjórnmála-
flokkar voru í eina tíð reknir af
frjálsum framlögum þeirra sem í
flokkunum voru. Þeir voru frjáls lýð-
ræðissamtök. Í dag þiggja flokkarnir
milljarða úr ríkissjóði. Helsta starfs-
semi kerfisins er að moka undir sig
sjálft – en á laugardaginn er komið
að þátttöku almúgans. Einu sinni á
fjögurra ára fresti. Að greiða atkvæði.
Lýðræði, ekkert kjaftæði? Fyrir
framtíðina. Lýðræðisveisla.
Þingmaður á að vera þjónn
fólksins. Þjónn samfélagsins. Ekki
öfugt. Því er gott að hafa í huga
þegar gengið er í kjörklefann að sá
eða sú sem þið kjósið mun á næsta
kjörtímabili þiggja um 100 milljónir
úr sameiginlegum sjóðum þjóðar-
innar fyrir að vera þingmaður. Þið
eruð að kjósa fólk til þeirra eigin
velmegunar. Er viðkomandi að fara
tryggja þína?
Ég hvet alla til að mæta á kjörstað
og kjósa. Kjósið þann einstakling
sem þið teljið að muni helst gera
samfélagi ykkar gagn og á raun-
verulegan möguleika að komast að
á þing. Ef ykkur líst ekki á neinn.
Skilið þá auðu. Það væri vit ef auð
atkvæði myndu telja til að fækka
þingmönnum.
Mundi
Ég kýs:
„Betri bíla,
yngri konur,
eldra viskí,
meiri pening.“
Flokkur fólksins krefst þess að yfirvöld
hætti strax að veikja heilbrigðisþjónustuna
á landsbyggðinni.
Elín FanndalGeorg Eiður Arnarson Sigrún Berglind Grétarsdóttir
2. sæti í Suðurkjördæmi 3. sæti í Suðurkjördæmi 4. sæti í Suðurkjördæmi
Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Oddviti í Suðurkjördæmi
Brjótum múra
bætum þjónustu!
Nýtum fullbúnar skurðstofur!
Leyfum konum að fæða í heimabyggð!
Burt með biðlista!
Settu X við F - fyrir þína framtíð!
LO
KAO
RÐ
MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR