Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.09.2021, Síða 32

Víkurfréttir - 22.09.2021, Síða 32
Slagorðaslagur Hækkum barnabætur um 900.000 fyrir einstætt foreldri með tvö börn. Fólkið fyrst svo allt hitt. Alvöru að- gerðir í loftslagsmálum. Róttækni ekkert kjaftæði. Þjónustuvæðum heilbrigðiskerfið. Það skiptir máli hver stjórnar. Orku á alla staði. Gefðu framtíðinni tækifæri. Land tækifæranna. Grænir hvatar eru framtíðin. Notum hreina orku. Hættum að nota olíu. Lægri vextir eru framtíðin. Lægri skattar betri lífskjör. Sanngjarn sjávarútvegur er framtíðin. Heilbrigðiskerfið er dýr- mætt. Burt með biðlistana. Stuttir biðlistar eru framtíðin. Jafnrétti óháð búsetu. Meiri mannúð. 60.000 kr. vaxtarstyrkur fyrir öll börn. Enn fleiri friðlýsingar. Fjárhagslegt ör- yggi fyrir fjölskylduna. Við styðjum lítil og meðalstór fyrirtæki. Þjóðin kýs almannaþjónustu. Lýðræði ekkert kjaftæði. Velsæld. Betra og réttlátara lífeyriskerfi. Mannrétt- indi. Stórbætum kjör eldra fólks. Við erum rétt að byrja. Hækkum barnabætur um 77.000 á mánuði fyrir einstætt foreldri með tvö börn. 41,8% þjóðarinnar vill Katrínu áfram í embætti forsætisráðherra. Það hefur aldrei verið mikilvægara að setja X við M. Er ekki bara best að kjósa Framsókn? Fjárfestum í fólki. Framtíðin ræðst á miðjunni. Eyðum biðlistum í heilbrigðiskerfinu. Gefum framtíðinni tækifæri. Tækifæri eiga ekki að vera forréttindi. Réttlátara skattkerfi. Enginn afsláttur í lofts- lagsmálum. Heilbrigðisskimun fyrir alla. Lækkum kostnað heimilanna. Lækkum skatta á barnafólk. Blanda af slagorðum í kosninga- baráttu stjórnmálaflokkanna. Endur- vinnsla gamalla loforða sem ekki stendur til að standa við. Þau verða öll fórnarlömb í stjórnarmyndunar- viðræðna. Undanfarin tvö ár höfum við lútið stjórn sóttvarnarlæknis. Íslandi er stjórnað af embættis- mönnum og því má spyrja hvort kosningar skipti í raun máli. Eru kosningar lýðræðisveisla eða kapp- leikur um hverjir komast til valda? Þegar barátta flokkanna er skoðuð gaumgæfilega má finna mikinn samhljóm um mörg mál. Til dæmis um heilbrigðiskerfið. Það vilja allir útrýma biðlistum. Af hverju er þá ekki búið að því fyrir löngu? Allir lofa grænni framtíð. Af hverju er þá framtíðin ekki grænni nú þegar? Það virkar vel í kosningabaráttu að lofa að gefa fólki peninga. Pen- inga sem eru sóttir úr vösum ein- hverra annarra. Það skiptir þá engu máli hvort menn kunni að reikna eða ekki. Bara að slagorðin hljómi vel. Gefins peningar eru góðir. Það þekkja kennararnir í Reykjanesbæ sem áttu að fá 500.000 kr. ein- greiðslu að loknum síðustu sveitar- stjórnarkosningum. Kosningabaráttan er nú í há- marki og niðurstöður liggja fyrir um helgina. Ég tók sjálfur þátt í lýðræðisveislunni fyrr í vor og skít- tapaði. Viðurkenni fúslega að ég hafði ekki áttað mig á því að menn sökkva miskunnarlaust mörgum milljónum í prófkjörsbaráttu bara til að halda sæti sínu á Alþingi. Hversu þungt vegur eigin sannfæring stjórn- málamanns sem eyðir þremur til tíu milljónum í kosningabaráttu innan eigin flokks og þiggur styrki frá ein- staklingum og fyrirtækjum til að fjármagna baráttuna. Er viðkomandi stjórmálamaður eða málaliði? Það er vitlaust gefið í samfélaginu okkar á margan hátt. Stjórnmála- flokkar voru í eina tíð reknir af frjálsum framlögum þeirra sem í flokkunum voru. Þeir voru frjáls lýð- ræðissamtök. Í dag þiggja flokkarnir milljarða úr ríkissjóði. Helsta starfs- semi kerfisins er að moka undir sig sjálft – en á laugardaginn er komið að þátttöku almúgans. Einu sinni á fjögurra ára fresti. Að greiða atkvæði. Lýðræði, ekkert kjaftæði? Fyrir framtíðina. Lýðræðisveisla. Þingmaður á að vera þjónn fólksins. Þjónn samfélagsins. Ekki öfugt. Því er gott að hafa í huga þegar gengið er í kjörklefann að sá eða sú sem þið kjósið mun á næsta kjörtímabili þiggja um 100 milljónir úr sameiginlegum sjóðum þjóðar- innar fyrir að vera þingmaður. Þið eruð að kjósa fólk til þeirra eigin velmegunar. Er viðkomandi að fara tryggja þína? Ég hvet alla til að mæta á kjörstað og kjósa. Kjósið þann einstakling sem þið teljið að muni helst gera samfélagi ykkar gagn og á raun- verulegan möguleika að komast að á þing. Ef ykkur líst ekki á neinn. Skilið þá auðu. Það væri vit ef auð atkvæði myndu telja til að fækka þingmönnum. Mundi Ég kýs: „Betri bíla, yngri konur, eldra viskí, meiri pening.“ Flokkur fólksins krefst þess að yfirvöld hætti strax að veikja heilbrigðisþjónustuna á landsbyggðinni. Elín FanndalGeorg Eiður Arnarson Sigrún Berglind Grétarsdóttir 2. sæti í Suðurkjördæmi 3. sæti í Suðurkjördæmi 4. sæti í Suðurkjördæmi Ásthildur Lóa Þórsdóttir Oddviti í Suðurkjördæmi Brjótum múra bætum þjónustu! Nýtum fullbúnar skurðstofur! Leyfum konum að fæða í heimabyggð! Burt með biðlista! Settu X við F - fyrir þína framtíð! LO KAO RÐ MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.