Víkurfréttir - 10.11.2021, Blaðsíða 12
Á yfirstandandi ári hafa línur skýrst hvað varðar stóriðjuáform í Helguvík.
Nú er ljóst að hvorki verður af kísilveri Thorsil né fyrirhuguðu álveri
Norðuráls og mikil óvissa ríkir um framtíð kísilverksmiðju Stakksbergs,
sem eigandinn, Arion banki, er að reyna selja. Á þessari stundu er ekki
vitað hvort kaupandi finnist en öllum má vera ljóst að lítill áhugi er á
meðal bæjaryfirvalda og íbúa að hún verði endurræst á núverandi stað.
Tækifæri eigandans hljóta því að snúa að sölu verksmiðjunar til niður-
rifs og uppsetningar annars staðar, annað hvort hér á landi eða erlendis.
Þetta sagði Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, við fyrri
umræðu um fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árin 2022 til 2025, sem
fram fór í síðustu viku.
„Á móti kemur að mjög margt já-
kvætt er framundan í uppbygg-
ingu atvinnulífs á svæðinu. Má þar
m.a. nefna miklar framkvæmdir á
næstu árum á vegum ISAVIA í og
við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þétt-
ingu byggðar á Ásbrú, áframhald-
andi uppbyggingu Hlíðarhverfis,
áform Samherja um uppbyggingu
laxeldis á landi á Reykjanesi, upp-
byggingu ferðaþjónustu og hótela,
m.a. Marriott og væntanlega fleiri
fyrirtækja sem eru eða munu verða
innan nærsvæðis Keflavíkurflug-
vallar sem til stendur að skipu-
leggja og byggja upp undir merkjum
þess sem kallað er „Airport City“.
Áframhaldandi uppbygging bíla-
leiga og annarrar flugtengdrar
starfsemi og þjónustu í sérstöku
hverfi við Reykjanesbraut efst í
bænum, í daglegu tali nefnt Flug-
vellir. Þá má nefna áform Skipa-
smíðastöðvar Njarðvíkur um nýja
og stærri þurrkví og uppbyggingu
Reykjaneshafnar í Njarðvíkurhöfn,
nýtt hjúkrunarheimili, nýja heilsu-
gæslustöð, áform World Class um
uppbyggingu á Fitjum og svo mætti
áfram lengi telja,“ sagði Kjartan
en þessum verkefnum og fleirum
verða gerð betri skil á sérstöku
framkvæmdaþingi sem ráðgert er
að boða til fimmtudaginn 25. nóv-
ember næstkomandi á vegum at-
vinnuþróunarfélagsins Heklunnar.
Um mánaðamótin október, nóvember árið 2014 þurfti Reykjanesbær
að biðja fyrirtæki, sem þá voru að kaupa lóðir og stefndu að uppbygg-
ingu í sveitarfélaginu, að flýta greiðslum til sveitarfélagsins svo það ætti
fyrir launum. Þetta upplýsti Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, í ræðu
sem hann flutti við fyrri umræðu um fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar
2022–2025 á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í síðustu viku.
„Til upprifjunar vil ég nefna að vegna
gríðarlega erfiðrar fjárhags- og skulda-
stöðu sveitarfélagsins, sem birtist
m.a. í niðurstöðum úttekta Har-
aldar Líndal og KPMG sem kynntar
voru á íbúafundi í Stapa þann 29.
október 2014, voru á kjörtímabilinu
2014–2018 teknar margar erfiðar
en bráðnauðsynlegar ákvarðanir
sem meðal annars fólu í sér auknar
álögur á bæjarbúa árin 2015, 2016 og
2017 ásamt tiltekt og endurskoðun
efnahags Reykjanesbæjar. Það leiddi
m.a. til þess að ákveðið var að ráðast
í niðurskurð, endurskipulagningu
og hagræðingu í þjónustu við hratt
fjölgandi íbúa. Þetta var gert undir
merkjum áætlunar sem bæjarstjórn
á þeim tíma var einhuga um að vinna
eftir og fékk nafnið „Sóknin“, sagði
Kjartan í ræðunni.
Báðu fyrirtæki að
flýta greiðslum
Erfiðum og flóknum viðræðum við
kröfuhafa, sem stóðu yfir í þrjú ár,
lauk með samkomulagi í árslok árið
2017 sem varð til þess að hægt
var að fella niður sérstakar álögur
á útsvar og fasteignaskatt á íbúa
árið 2018. „Það sama ár var allt
komið á fulla ferð. Ferðaþjónustan
blómstraði, umferð um Keflavíkur-
flugvöll var í hámarki, atvinnuleysi
lítið sem ekkert og íbúum hélt áfram
að fjölga langt umfram landsmeð-
altal, ekki síst íbúum af erlendu bergi
sem nú telja um það bil fjórðung allra
íbúa Reykjanesbæjar. Íbúafjölgunin
kallaði hins vegar á uppbyggingu inn-
viða, s.s. byggingu nýs grunnskóla,
fjölgun leikskólaplássa o.fl., sem aftur
reyndist snúið fyrir sveitarfélag sem
var þegar skuldum vafið og átti fullt
í fangi með að greiða niður skuldir
og reka sig frá degi til dags. Ég get
til dæmis upplýst hér og nú að um
mánaðarmótin október, nóvember
2014 þurftum við að biðja fyrir-
tæki, sem þá voru að kaupa lóðir og
stefndu að uppbyggingu í sveitar-
félaginu, að flýta greiðslum til okkar
svo við ættum fyrir launum,“ sagði
Kjartan.
Ytri skilyrði féllu
með bænum
Hann sagði að sem betur fer var
töluvert til af þegar tilbúnum
lóðum undir íbúðarhúsnæði í Innri-
Njarðvík og Ásahverfi auk þess
sem einkaaðilar keyptu og brutu
nýtt land undir svokallað Hlíðar-
hverfi á svæði sem áður tilheyrði
varnarsvæðinu ofan byggðarinnar
í Keflavík og Njarðvík. Auk þess
var ráðist í að skipuleggja þéttingu
byggðar víðsvegar í sveitarfélaginu,
m.a. á því svæði sem áður var íbúða-
byggð Varnarliðsins og nú heitir
Ásbrú. Þar er gert ráð fyrir allt að
fimmtán til átján þúsund manna
byggð á næstu árum.
Gerði Reykjanesbæ kleift
að ganga hnarreistum
frá samningum
„Þessu til viðbótar féllu ytri skil-
yrði með okkur. Meðal annars seldi
Reykjanesbær hlut sinn í HS Orku
á mjög góðu verði eftir að fyrri sala
til annarra kaupenda gekk til baka
þegar þeir ákváðu að nýta ákvæði í
kaupsamningi, falla frá kaupunum og
skila hlutabréfunum til baka. Seinni
salan gerði Reykjanesbæ kleift að
ganga hnarreistum frá samningum
við kröfuhafa þar sem allir fengu sitt
og enginn þurfti að gefa neitt eftir
að öðru leyti en því að vextir voru
lækkaðir og lengt í lánum,“ sagði
bæjarstjórinn.
Þessum hluta endurskipulagn-
ingarinnar lauk svo í byrjun þessa
árs, 2021, með endurfjármögnun 8,4
milljarða skulda og skuldbindinga
Eignarhaldsfélagsins Fasteignar sem
nú er alfarið í eigu Reykjanesbæjar.
„Sú endurfjármögnun mun skila sér
í verulegri lækkun fjármagnskostn-
aðar næstu árin, frá því sem annars
hefði orðið,“ sagði Kjartan Már Kjart-
ansson, bæjarstjóri, í ræðunni.
reykjanesbær átti
ekki fyrir launum
tækifæri hljóta að snúa að sölu
verksmiðjunnar til niðurrifs
– mikil óvissa ríkir um framtíð kísilverksmiðju Stakksbergs
Jólahlaðborð og harmonikkuball
fyrir eldri borgara
verður haldið á Hótel Selfossi, þriðjudaginn 30. nóv. nk.
og dvalið eina nótt á hótelinu.
Farið verður frá Nesvöllum sama dag kl.14:00
og farið frá hótelinu 1. des. kl. 11:00
Jólahlaðborð, gisting og morgunverður
fyrir tvo kr. 28.000, fyrir einn kr. 22.000.
Félagið greiðir rútuna og hver og einn greiðir fyrir hótelið
og það sem því fylgir.
Skráning hjá Ingu s: 8633443 og Guðrúnu s: 8990533.
Skráningu lokað 22. nóvember!
ORLOFSHÚS Á SPÁNI
Starfsmannafélag Suðurnesja auglýsir orlofshús félagsins á
Spáni laust til umsóknar fyrir páska og sumar 2022
Búið er að opna fyrir tímabilið 1. janúar 2022 – 12. apríl 2022
á orlofshúsi okkar á La Marina á Spáni, einnig er opið
frá deginum í dag fyrir umsóknir um páska og sumar 2022,
eða frá 12/4 – 26/4 og sumar frá 26/4 til 11/10 2022.
Hver úthlutun er tvær vikur sem kostar kr. 80.000.
Umsóknarfrestur er til 10. desember 2021.
Úthlutað verður 13. desember 2021.
Einnig er búið að opna fyrir orlofshúsin okkar hér heima
frá áramótum fram að páskum.
Hægt er að sækja um á skrifstofu félagsins eða á www.stfs.is
Orlofsnefnd STFS
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Óskum að ráða rafvirkja til starfa.
Vinnuvélaréttindi og meirapróf er
mikill kostur. Góð laun í boði.
Upplýsingar gefur Guðmundur
í síma 892-2422 eða mundi@bergraf.is
Ert þú í stuði?
12 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár