Sjálfsbjörg - 29.11.1995, Page 2

Sjálfsbjörg - 29.11.1995, Page 2
2 E MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ - AUGLÝSING „Hollvinir Sjálfsbjargar" eru um 2 þúsund og fjölgar stöðugt Ánægjuleg þróun í fjáröflun - segir Sigurður Einarsson, framkvœmdastjóri Sjálfsbjargar Margs konar starfsemi fer fram í Sjálfs- bjargarhúsinu í Hátúni 12. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, hefur skrifstofu sína hér. Sjálfsbjörg leigir út 36 íbúðir til fatlaðra, og þeim íylgir engin aðstoð eða hjúkrun. Hér er Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar og skrifstofur þess. Heimilið hýsir fólk sem þarfnast mikillar umönnunar og ýmiskonar aðstoðar. Hér er líka svokölluð skammtíma- vistun, þ.e. möguleiki á að taka inn fólk sem á í tímabundnum vandræðum vegna skorts á umönnun. Loks er í húsinu starfsemi Sjálfsbjargar í Reykjavík, sem er eitt aðildar- félaga landssambandsins. Félagið hefur hér skrifstofu sína og samkomusal. Það er Sigurður Einarsson, framkvæmda- stjóri Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, sem hefur orðið. Við erum að forvitnast um þá starfsemi sem fram fer í Sjálfs- bjargarhúsinu og Sigurður heldur áfram að lýsa henni: - Gestarými er líka hér í húsinu og það er mikið nýtt, sérstaklega af fólki utan af landi, sem kemur t.d. til að leita sér læknishjálpar í Reykjavík. Við erum með þrjú herbergi og tvær íbúðir til þessara nota. Fólk getur líka komið hingað á sumrin og nýtt sér slíka íbúð í sumarleyfi sínu, en mest er um að fólk sem er að leita sér lækninga dveljist í þessu hús- næði. í tengslum við Vinnu- og dvalarheimilið er rekin sundlaug, sjúkraþjálfun og dagvist, þar sem um 60 manns koma vikulega og fást við ýmislegt, eins og lestur, söng og föndur. Langur biðlisti - Er alltafbiðlisti eftir ibúðunum hér í hús- inu? - Já, það er alltaf langur listi. Tvær af þessum 36 íbúðum eru gestaíbúðir og síðan er endurhæfingaríbúðin, sem hefur nokkra sérstöðu. Á sínum tíma var safnað fyrir innréttingum í hana meðal almennings. Þessi íbúð er ætluð fötluðum, sem þurfa á endurhæfingu að halda í ákveðinn tíma, e.t.v. nokkra mánuði í einu. Þá eru eftir 33 íbúðir, sem leigðar eru til langframa. Sumir hafa búið hér í yfir 20 ár, eða alveg frá því að húsið var byggt. Biðlistar eftir þessum íbúðum eru langir og aldrei skortir fólk í þær. Frekar hefðum við þurft að hafa helmingi fleiri íbúðir, ég er viss um að við gætum leigt þær allar út. Ástæðan er kannski fyrst og fremst sú, að skortur er á ódýru leiguhúsnæði fyrir fatlað fólk og þó að Öryrkjabandalagið reki margar íbúðir hefur það ekki dugað til. Við leggjum líka sérstaka áherslu á það hér, að þessar íbúðir séu hentugar fyrir hreyfihamlaða, þ.e. að öll aðstaða sé fyrir hendi fyrir fólk sem þarf að nota hjólastóla eða önnur hjálpartæki. Húsið er að vísu bam síns tíma. Sem dæmi má nefna, að í íbúðunum voru yfirleitt baðker, en það hent- ar yfirleitt ekki fyrir hreyfihamlaða. Við eram því smám saman að breyta þessu og bæta allt sem ekki var í lagi í byijun. En fyrst og fremst er það nú aðgengið, sem hér er verulega gott og slíkt finnst ekki viða í íbúðum fyrir ör- yrkja á almennum markaði. Happdrætti og hollvinir - Hvemig erfjáröflun háttað? - Við viljum gjarna útrýma þeim mis- skilningi, sem maður verður sums staðar var við, að Sjálfsbjörg hafi hagnað af íslenskri getspá. Það er Öryrkjabandalagið og íþrótta- hreyfingin sem skiptir með sér hagnaðinum af lottóinu og annarri fjáröflun íslenskrar getspár. Að vísu fær Sjálfsbjörg, sem eitt af aðildarfélögum Öryrkjabandalagsins, árlegan styrk, sem er ekki stór upphæð, um 600 þúsund krónur. Við dreifum honum síðan að hluta til út í félögin, sem eru aðilar að landssambandinu. Þessi styrkur er ætlaður til ákveðinna verkefna, t.d. námskeiða eða tækjakaupa. En styrkurinn frá Öryrkja- bandalaginu er óverulegur, miðað við það fé sem við þurfum til að reka starfsemi okkar. Við byggjum fjárhag okkar fyrst og fremst á happdrætti Sjálfsbjargar, sem er tvisvar á ári. Síðan fáum við ríkisstyrk til félagsmála- starfsemi og að auki höfum við staðið fyrir ýmsum fjáröflunum og reynt að leita leiða til að afla fjár með öðrum hætti. Happdrættið dugir ekki til að reka starfsemi Sjálfsbjargar og þar að auki hafa slík happdrætti verið að dragast saman. Sífellt færri kaupa þessa hefðbundnu happdrættismiða, menn vilja fá vinningana strax í hendur. Helsta fjáröflunarleiðin eru svokallaðir „Hollvinir Sjálfsbjargar.“ Þetta styrktar- mannakerfi var sett á laggimar vorið 1993. Þá voru send bréf til dyggustu stuðningsmanna okkar og þeir beðnir að leggja okkur til fé, ákveðna upphæð einu sinni, tvisvar eða oftar á ári, allt eftir efnum og aðstæðum. Þetta kerfi hefur síðan stækkað og er farið að hafa æ meiri áhrif. Það er nú mun meiri stoð undir starfsemi Sjálfsbjargar en það var í upphafi og við stefnum að því að styrkja það enn meir. Kostnaðurinn við þetta kerfi er lítill. Til dæmis þarf Sjálfsbjörg ekki að standa í þeim kostnaði sem fylgir rekstri happdrættis, - prenta miða, borga út vinninga o.s.frv. Þvi finnst okkur það afskaplega ánægjuleg þróun, ef þetta getur orðið stærri hluti af fjáröfluninni. Fólk leggur með þessu fram fé til að styrkja starfsemi Sjálfsbjargar án þess að fá nokkuð á móti nema hlýhug okkar og þakkir. - Hve margir eru ,,HoUvinir Sjálfs- bjargar?" - Um 2000 manns eru fastir hollvinir, en við stefnum að þvi á næstu þremur til fjórum árum að fjölga þeim upp í 5 til 6 þúsund. Fjárhæðimar eru mjög mismunandi, allt frá 350 krónum á ári upp 1 3000 kr. eða meira á mánuði. Öll framlög eru vel þegin, jafnt stór sem smá. Árleg klemmusala Árlega erum við svo með klemmusölu á hinum gamla fjáröflunardegi Sjálfsbjargar. Áður fyrr var merkjasala á þessum degi, en hún datt upp fyrir, var reyndar farin að ganga illa. í fyrra byrjuðum við svo að selja klemm- ur á þessum degi, með ápTentuðum hvatningarorðum. Þetta verður vonandi í framtíðinni allgóð fjáröflunarleið, fyrir utan það að minna á starfsemi og baráttumál Sjálfsbjargar. Salan hefur aukist frá í fyrra og við vonum að hún eigi eftir að aukast enn meira og þetta eigi eftir að verða fastur liður á hverju hausti. Einnig höfum við selt penna og litlar skrifblokkir með áritun Sjálfsbjargar. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, vill vekja athygli almennings á aðstæðum hreyfihamlaðra. Þrátt fyrir margs konar umbætur í þágu fatlaðra á síðustu árum er enn langt i land með að jafnrétti sé náð. Enn er t.d. verið að hanna byggingar sem eru óaðgengilegar fyrir hreyfi- hamlaða, þrátt fyrir byggingarreglugerð sem kveður á um að allar opinberar bygg- ingar og þjónustubyggingar skuli vera öllum færar. Allt of margar eldri bygg- ingar eru með slæmu aðgengi og erfiðlega gengur að fá því breytt. Þegar talað er um slæmt aðgengi er átt við stiga, tröppur, þröskulda, dyr, handrið og margt fleira sem hentar ekki hreyfihömluðu fólki. Aðgengi - húsnæði Veist þú hvemig það er að eiga erfitt með að komast leiðar sinnar? >■ Örfáar opinberar byggingar eru aðgengilegar hreyfihömluðu fólki. >■ Mjög fáir vinnustaðir eru aðgengilegir öllum. >- Sund er sú íþrótt sem hreyfihamlaðir eiga auðveldast með að stunda, en þó eru aðeins örfáir sundstaðir færir hreyfi- hömluðu fólki. >• Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er sá eini á landinu, þar sem gert er ráð fyrir að hreyfihamlað fólk komist leiðar sinnar að nokkru marki. >■ Flest félagsheimili og guðshús landsins eru óaðgengileg hreyfihömluðu fólki. Menntun Veist þú að samkvæmt lögum eiga allir rétt á menntun? Víðast hvar er aðgengi menntastofnana verulega áfátt. fr' í mörgum tilvikum geta hreyfihömluð böm ekki stundað nám í hverfisskóla sínum. I lögum um framhaldsmenntun era Við reynum að hafa allar klær úti til að standa undir rekstri okkar. Allur rekstur er dýr. Við erum með fjár- málafulltrúa og starfsmann sem sinnir félags- málum og aðstoð við skjólstæðinga okkar. Á skrifstofunni eru fjórir fastir starfsmenn, en fleiri eru á launaskrá vegna húsrekstrarins, svo sem húsvörður og ræstingafólk. ákvæði sem eiga að tryggja öllum aðgang að framhaldsskólum. >■ Vegna óaðgengilegs húsnæðis verður hreyfihamlað fólk að nota útilokunar- aðferðina við val á framhaldsmenntun. Atvinna Veist þú að það eru sjálfsögð mannréttindi að hafa atvinnu? r Menntun er hreyfihömluðu fólki lífs- nauðsyn, vegna takmörkunar á starfsvali. y Fjölmargt fólk verður að hætta fyrra starfi sínu þegar það fatlast. >■ Margir sem fatlast verða að mennta sig að nýju til þess að fá atvinnu. r Atvinnumöguleikar hreyfihamlaðra takmarkast allt of oft af óaðgengilegum vinnustöðum. Margt fatlað fólk kemst aldrei út á vin- numarkaðinn. Félagsleg þjónusta og félagslíf Veist þú hvort heimili þitt er öllum aðgengilegt? Margir fatlaðir verða að flytja úr heimabyggð sinni vegna skorts á nauðsynlegri þjónustu. &■ Heimaþjónusta og heimahjúkrun tak- markast víðast hvar við virka daga. > Ferðaþjónusta fyrir hreyfihamlaða býðst einungis í örfáum sveitarfélögum á landinu. Það er erfitt fyrir margt hreyfihamlað fólk að komast í ferðalög, kvikmyndahús, leikhús, á dansstaði eða matsölustaði. >■ í mörgum tilvikum kemst hreyfi- hamlað fólk ekki í heimsókn til vina sinna vegna óaðgengilegs húsnæðis. fr' í nýjasta upplýsingabæklingi frá Ferðaþjónustu bænda er ekki eitt einasta hús merkt aðgengilegt hreyfihömluðum. •■ Þeir sem búa á stofnunum eru nær útilokaðir frá þátttöku i lífinu því að tekjur þeirra, svokallaðir vasapeningar, eru aðeins óveruleg fjárhæð. Þjódfélag án þröskulda

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.