Eldhúsbókin - 10.04.1965, Blaðsíða 8
BLÓMAÞÁTTUR
INGÓLFUR DAVÍÐSSON:
Vorverk I garðmum
Hibs er ræktað til skjóls, skrauts og berja-
tekju og þrífst við næsta margvísleg kjör. En
eigi að vænta mikillar berjatekju, þarf það
sólríkan stað og frjósama, vel framræsta mold.
Bezt er að gróðursetja ribsið 1 raðir með IV2
—2 m bili milli runnanna. Plönturnar fást
venjulega keyptar í gróðrarstöðvum á vorin,
en líka er sæmilega auðvelt að fjölga ribsi
heima í garði með græðlingum, það er 20—30
cm löngum ungum greinastúfum, sem eru
teknir áður en ribsið fer verulega að laufgast
og settir skáhallt niður í raka mold, þannig
að mestur hluti þeirra sé hulinn moldu. Síðan
er moldinni þjappað vel að og séð fyrir nægri
vökvun meðan græðlingurinn er að festa ræt-
ur. Klipping runnanna er mikilsvert atriði, sem
alls ekki má vanrækja. Venjulega er hagkvæmt
að laga runnann með klippingu um leið og
gróðursett er. Má stýfa verulega af öllum löng-
um greinum. Nýjar greinar vaxa fljótt neðan
frá í staðinn. Síðan þarf árlega að laga berja-
runnann með hníf eða trjáklippum. Meðan
runnninn er að ná hæfilegum þroska eru aðal-
greinar styttar nokkuð á vorin. Oft þarf líka
að stytta aukagreinar og sníða sumar alveg af
svo runnurinn verði ekki of þéttur. Skemmd-
ar greinar og krosslægjur eru einnig numdar
brott. Runnurinn á að vera allaufgaður neðan
frá rót. Tveggja til þriggja ára gamlar greinar
bera mest og bezt ber, en gamlar greinar
verða smám saman ófrjóar og mosavaxnar.
Þarf að sníða gömlu greinamar af á vorin og
yngja þannig stöðugt upp berjarunnana. Þá
verður uppskeran ríkulegust. — Aðra garð-
runna og garðtré þarf venjulega einnig að laga
með klippingu á vorin. Sníða ber af skemmd-
ar greinar og greinar, sem liggja of þétt saman
Ef tréð á að verða hávaxið, er greinum neðan-
til á bolnum smáfækkað; en ekki of gassalega
mikið í einu, svo tréð bíði ekki hnekki. í stór
sár skal bera olíumálningu, þó aðeins í sárið,
en ekki út á börkinn. Flest tré eru aðallega
klippt til á vorin, en birki þykir samt hag-
kvæmast að klippa á haustin, eftir lauffallið
aðallega. Tré og runnar, sem notuð eru í skjól-
belti, eru auðvitað klippt á allt annan hátt en
venjuleg garðtré. Þau eiga að mynda þéttan,
lifandi vegg og skal haga klippingu samkvæmt
því. Gangið um bæinn og 1 gróðrarstöðvarnar
og lítið á limgerðin. — Páskaliljur blómgast
snemma móti sól og skjóli og varpa gullnum
ljóma á garðana. Þær eru einnig góð afskurð-
arblóm, sem taka má utan úr garði þegar gult
byrjar að sjást í niðurbeygðum blómknappn-
um. Þær eru síðan látnar í vatn alveg upp að
brómknapp og geymdar þannig í skugga í
hlýju herbergi í sólarhring, áður en þær eru
settar í grunnt vatn í blómvasanum. Gott er
að skipta daglega um vatn og skera um leið
smásneið neðan af stönglunum. Perluliljur
(Muscari) haldast og vel afskornar.
T E .r U R
Bananaterta
Tertubotnar: 4 ces. 150 s sykur, 50 s hveiti, 50 s kartöflu-
miöl, 1 tsk lyftiduft.
Fylline: 3 dl mjóik, 2 eggjarauður, 2 tsk hveiti, vanilla. 2 msk
sykur, 2 bananar.
Skreytine: Bananar oe beyttur rjómi.
Eggjarauðumar eru beyttar með sykrinum, bar til bær eru
hvítar. Hveiti, kartöflumjöli og lyftidufti er blandað saman og
bví hraert út í eggjahræruna. Eggjahvítumar em stífbeyttar og
beim blandað varlega saman við, að síðustu. Deiginu er skipt í
tvennt. í annan helminginn er blandað % tsk kanil, % tsk
múskat og Vz tsk negul. Botnamir em bakaðir við góðan hita.
Þegar beir em kaldir er hvomm fyrir sig skipt í tvennt.
Eggjarauður, hveiti, sykur, mjólk er beytt saman og sett í
pott. Hitað að suðu og stöðugt hært í á meðan. Gæta verður
bess að bað sjóði ekki. Hrært í bví, bar til bað er kalt, bá er
bað bragðbætt með vanillu og bananasneiðunum bætt út í.
Tertubotnarnir eru lagðir saman bannig að fyrst er dökkur botn,
bá ljós, síðan aftur dökkur og að lokum ljós. Krem er látið á
milli allra botnanna. Tertan er skreytt með beyttum rjóma og
bananasneiðum.
Marengsterta
125 g smjörlíki. 125 s sykur, 4 eggjarauður, 2 msk rjómi, 125 g
hveiti. 3 tsk lyftiduft.
Smjörlíki og sykur er hrært ljóst og létt, eggjarauðurnar
hrærðar saman við ein í einu, svo og rjóminn. Lyftiduftið er
sett saman við hveitið og bví hrært saman við. Deigið er bakað
í tveim vel smurðum kringlóttum tertumótum, í ca. 20 mín. við
225° hita. 4 eggjahvítur eru stífbeyttar með 8 msk af sykri.
Kökubotnamir eru látnir kóhia og eggjahvítumassanum smurt
ofan á bá. Síðan eru beir settir í ofninn aftur, en nú má ofn-
inn ekki vera heitari en 150°. Bakað bar til marengsinn hefur
fengið lit. Rétt áður en tertan er borin fram er hún lögð saman
með 2 dl af beyttum rjóma, bairnig að marengshliðin snúi upp
á beim báðum.
32