Eldhúsbókin - 10.09.1968, Blaðsíða 2

Eldhúsbókin - 10.09.1968, Blaðsíða 2
1. Salamipylso með sveppasneið. 2. Kavíar og sífróna. 3. Rauðbeður, agúrka og epli fint saxað eða rifið og blandað soman við ma- yonnaise. 4. Smurostur og paprika. 5. Ostsneið með púrruhringjum. 6. Gróðostur hrærður með steinselju og ólíva. 7. Humar- eða krabbasalat. 8. Blaðsalat með gróðosti. 9. Saltkjöt vafið um ost/smjör/stein- selju, skorið í sneiðar. 10. Sildarmauk úr túbu og súr agúrka. Góðostur hrærður með nokkrum dropum af sítrónu og dól. af þeytt- um rjóma. Kúmen eSa kavíar stróð yfir. 12. Hnetusmjör með einni hnetu ofon ó. 13. Eggjahlaup með bitum of reyktum laxi. 14. Rauður kaviar með hróum lauk- hringjum. 15. Agúrkusneið með lifrorkæfu. 16. Mjólkurostur með ólivum. 17. Sítrónusneið með marmelaði. 18. Berjahlaup. 19. Saxaðar rækjur með mayonnaise. Skreytt með einhverju grænu. 20. Smáttsaxaður pickles og að sinnepi. Paprika. epli bland- 21. Camembert. 22. Persiljusmjör og spegepylsa. 23. Bananasneið með chutney. 24. Sinnepssmjör, skinkustrimlar og mandarínubátar. 25. Egg og ansjósa með kapers. 26. Smátt skorið saltkjöt smjör. og sinneps- 27. Lifrarkæfa og ólívur. 28. Smátt skorin skinka í Paprikaduft. mayonnaise. y PINNAMATUR framh. af forsíðu. 11. GRÆNMETISNEYZLA framh. af bakáðu. Karótínið í grænmeti nýtist bet- ur, ef grænmetið er soðið í ein- hvers konar fitu, eða fita borðuð með, t. d. rjómasósu hellt yfir sal- at úr rifnum gulrótum. Æskilegt er að hafa einn græn- metisrétt á borðum á hverjum degi, hann getur ýmist verið aðal- réttur eða fylgiréttur. Útbúa má hina fjölbreytilegustu rétti úr soðnu nýju grænmeti, svo nefnd grænmetisföt, margs konar græn- metisbakstra (gratin og soufflé), grænmetissúpur og hrá salöt, sem borðuð eru með kjöti, fiski eða brauði. Gott er að hafa fjölbreytni í vali á grænmeti jafnt sem mat- reiðsluaðferðum til að fá sem mesta fjölbreytni í fæðið og þau næringarefni, sem grænmetið hef- ur að geyma. GRÆNMETISF AT 1 blómkálshöfuð 250 g gulrætur y4 kg dós niðursoðnar grænar baunir 2—3 tómatar salatblöð steinselja. Sjóðið blómkál og gulrætur hvort fyrir sig. Hitið grænu baunirnar. Skerið tómatana í báta. Raðið þessu á fat, þannig að litirnir fari vel saman, skreytið fatið með nokkrum salatblöðum og stráið saxaðri stein- selju yfir grænmetið. Berið fatið fram sem sjálfstæðan rétt til há- degis- eða kvöldverðar. Berið hrært smjör með: Hrærið lint smjör út með köldu vatni, setjið lítið í einu, þar til smjörið er orðið Ijóst og létt. Krydda má með ýmsu smátt söxuðu b/að- kryddi, einnig er gott að blanda smurostum saman við smjör og bera fram með grænmetisfatinu. PAPRIKURÉTTUR 300 g saxað kjöt 2 msk smjör eða smjörl. 4 ný paprikuhulstur 4 tómatar 3 laukar 1 i/2cil vatn 2—3 msk tómatkraftur 1 y2 tsk salt 1 dl klippt steinselja. Brúnið kjötið í smjöri (eða smjörl.). Takið kjarnann úr piparhulstrunum. Dýfið tómötunum S heitt vatn, takið hýðið af þeim og flysjið laukinn. Skerið allt grænmetið í sneiðar og brúnið það nokkra stund með kjöt- inu. Hellið vatninu yfir og bragð- bætið með salti og tómatkrafti. Sjóðið réttinn við vægan hita i lukt- um potti eða pönnu ca. 15 mín- útur. Stráið saxaðri steinselju yfir og berið soðnar kartöflur eða soðin hrísgrjón með. MINESTRONE-SÚPA 150 g reykt flesk 2 msk hrísgrjón 1 I vatn 2 gulrætur 1 blaðlaukur 400 g hvítkál, skorið í ræmur 4 kartöflur 2—3 msk tómatkraftur 1 tsk mejram 1—2 súputeningar salt rifinn ostur, steinselja. Skerið fleskið í teninga og brúnið í potti ásamt hrisgrjónunum. Hreins- ið rótarávextina og skerið i sneiðar eða rífið á rifjárni. Blandið öllu grænmetinu í pottinn ásamt vatn- inu, tómatkraftinum og mejrami. Sjóðið við vægan hita um það bil ý2 klst. Setjið þá súpukraftinn sam- an við og bragðið súpuna til með salti, rifnum osti og steinselju. Berið súpuna fram vel heita. PRESSU GERSB AKSTUR framh. af bls. 67. Velgið rjómann (mjólkina) að- eins og hrærið gerið út. Bætið út í næstum öllu hveitinu og slá- ið deigið með sleifinni þar til það Iosnar frá skálinni. Þó er það sett á hlýjan stað og látið hefast. Á meðan er eggið og eggja- rauðurnar hræðar með smjöri, sykri og salti. Bætið vanillusykri, sítrónuhýði, rúsínum, súkkati, appelsínuhýði í ásamt gróft söx- uðum möndlunum. Blandið þessu öllu í hefað deigið og bætið því sem eftir var af hveitinu saman við. Síðan látið hefast aftur. Deigið er mjög laust í sér og er hellt beint í 2 smurð form sem hafa verið hveiti stráð. ATHUGIÐ Að allt góðgætið í þessari köku gerir deigið þungt í sér og orsakar að það hefast hægt. Formin fyllist aðeins að hálfu. Penslið deigið með hrærðri eggjarauðu og dálitlu vatni og skreytið með gróft söxuðum möndlum. Bakið kökurnar við ca. 200-225° (400-440° F) í ca. 20 mínútur. Kökurnar kólni í formunum áður en þær eru teknar úr. SKÓLATÖSKUR Framh. af bls. 69. ætti hann helzt að vera vætuvarinn. Málmplötur, lásar og pinnar verða að vera úr ryðfríu efni. Brúnir töskunnar ættu að vera styrkt- ar# sérstaklega á loki, botni, og gott er að hafa hornin, sérstaklega þau neðri, úr leðri eða sterku plasti. Saumarnir eru mjög varhugaverðir, gætið þess að sporin séu ekki saumuð of þétt, því að þá vill frekar slitna út úr þeim. Reimar á loki ættu að vera festar með nöglum eða pinnum. Séu þær saumaðar getur kant- bandið brostið, og þá líður ekki á löngu, þar til efnið sjálft rifnar. Splittnaglar eiga ekki að vera festir í pappa, heldur í málmplötu eða þar, sem efnið hefur verið styrkt með sterku plasti. Þetta á sérstaklega við um festingar við spenn- ur, hanka og ólar. Skólataskan á að vera létt og einföld. Henni er venjulega læst með lás eða bara spennu. í síðara til- vikinu er hægt að ráða, hve þétt tösk- unni er lokað og gefa eftir, ef barnið vill geyma t. d. sundföt undir lokinu. Að lokum þetta: Foreldrar! Vandið vel valið á skólatösku barnsins og gætið þess að það beri töskuna rétt, af hvaða gerð sem hún er. Barnið ber skólatösku næst- um hvern dag vikunnar í a. m. k. 8 vet- ur og jafnvel lengur. Sé skólataskan þannig útbúin að hægt sé að bera hana á víxl á baki, á öxl og í hendinni, þá látið barnið notfæra sér þá kosti. Sé ætlazt til að taskan sé borin á öxlinni, er gott að barnið skipti um og beri tösk- una til skiptis á vinstri og hægri öxl. Sé taskan borin á bakinu, gætið þess þá að hún sé rétt staðsett, þ. e. að hún liggi að bakinu, ekki of hátt, heldur þannig að neðri brún hennar nemi við lendarn- ar. Sjá mynd nr. 2. Stúlkan á mynd nr. 1 aftur á móti stendur ekki rétt. Og að end- ingu: Fyglist með því að barnið hafi ekki meira í töskunni en nauðsynlegt er 1 2

x

Eldhúsbókin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eldhúsbókin
https://timarit.is/publication/1667

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.