Sókn - 04.10.1933, Blaðsíða 4
142
S ó K N
„Sókn"
kemur út einu sinni i viku. Árg.
kostar 4 krónur. Gjalddagi erl.april.
Afgreiðsla Hafnarstræti 10, Rvik.
Utanáskrift: »Sókn« Box 14 Rvik.
Sölulaun 20“/« af minnst 5 eint.
Bannmaður —
Ðaráttumaður!
Viltu gefast upp?
Allt undanhald er uppgjöf.
Mundu það, þegar greiða á
atkvæði um áfengislögin.
Það hefir verið sýnt og
sannað með skýrum rökum,
að i Noregi og Finnlandi voru
það lögbrjótarnir og áfengis-
auðvaldið, sem í sameiningu
réðu bannlögunum bana. Sama
sagan er nú að gerast í Ame-
ríku. Og hér á landi hefir lengi
verið stór hópur manna, sem
hlakkað hafa yfir, að lögbrjót-
arnir sigruðu, og að landið
yrði á ný lagt undir ok
áfengisveldisins að fullu og
öllu. — Þeir sjá ekki, eða
vilja ekki sjá, að með þvi yrði
þjóðin lögð svo marilöt í
niðurlægingu, sem frekast
mætti verða, þegar lögbrjót-
arnir væru látnir hrósa sigri
og troða allt velsæmi hennar
undir fótum, um leið og er-
lendu auðvaldi væri tryggður
réttur til að sjúga úr henni
blóð og merg.
— Ætlar þú nú að láta
undan lögbrjótunum?
Langar þig til þess að greiða
áfengisauðvaldinu nýja og
blóðugri skatta en áður?
Hver sá, er ekki greiðir hik-
laust atkvæði móti brennivín-
inu, hann gefst upp — lætur
undan lögbrjótunum, og styður
sameiginlegan sigur þeirra og
áfengisauðvaldsins erlenda.
Baráttan við þessa samein-
uða aðila er langt frá því að
vera vonlaus enn hér á landi.
Enn er mikill og ósvikinn vilji
meðal þjóðarinnar til þess að
halda sér uppi, til þess að
byggja upp, í stað þess að
brjóta niður, til þess að láta
ekki ofurselja sig aukinni
eymd og áþján.
— En mundu það, að úr-
slitin eru komin undir þér og
atkvæði þínu, hvar sem þú
ert á landinu. Alpýðumaðar.
Ekki víst um faðernið ?
Sumir þykjast hafa veitt þvi
eftirtekt, að margir andbann-
ingar bregðist reiðir við, ef
rætt sé við þá um sannfær-
ingarmál þeirra, ogfinnstþeim
það benda í þá átt, að sam-
vizkan segi til sín; en þaðætti
að vera óþörf samvizka, sem
er svo aum, ef mennirnir eru
sannfærðir um réttlæti og á-
gæti málstaðar síns. En það er
líka gamalt orð, sem segir: »Ef
þú gerir ekki rétt, þá liggur
syndin við dyrnar«. — —
En hvað sem því líður, þá
þótti mörgum skrítið og höfðu
orð á því í bænum á dögun-
um, þegar blað andbanninga
var borið í hús ásamt »Morg-
unblaðinu«, að þar stóð eng-
inn útgefandi, enginn ritstjóri
né ábyrgðarmaður. Var það
líka af því að samvizkan segði
til sín, og engum hafi þótt fýsi-
legt að gangast við faðerninu ?
— Þeirn hefði þó átt að vera
það ljóst hvílíkur ábyrgðar-
hluti það gat verið að senda
veslinginn svona föðurlausan
út i heiminn, því það hefði
mátt gera hann upptækan sem
hvern annan ómerking, ef
nokkrum hefði fundist hann
þess virði. Ari.
Takið eftir.
F*eir sem ekki eiga heima
hér í bænum, eða verða ekki
i bænum fyrsta vetrardag, geta
greitt atkvæði um áfengislögin
í skrifstofu lögmanns í Arnar-
hvoli alla virka daga kl. 10—
12 f. h. og kl. 1—4 e. h. Látið
það ekki undir höfuð leggjast,
þið sem viljið stemma stigu
fyrir auknu áfengisflóði yfir
landið, farið sem fyrst á lög-
mannsskrifstofuna og skrifið
nei á atkvæðaseðilinn.
Skrifstofa bannmanna er í
fundahúsinu i Bröttugötu 2,
litla salnum, opinn daglega frá
kl. 4 e. h. — Allir, sem vilja
vinna á móti brennivínsinn-
streyminu, ættu að koma þang-
að og aðstoða við starfið, sem
þar er unnið.
Orðsending. Sökum ýmsra
anna hefur enn ekki verið hægt
að skipuleggja fyrirlestrastarf-
semina i stúkunum á komandi
vetri. En nú verður farið til
þess, og takist að fá nægilega
marga til þess að flytja erindi
munu þau hefjast í nóvember
n. k. — Þetta eru stúkurnar
beðnar að athuga, þegar þær
ráðgera vetrarstörfin.
Frceðslustj.
}jpy Munið, að málefni
Reglunnar er göfugt mál-
efni. — Útbreiðið hugsjónir
hennar.
Rikiaprentim. Gutenberg.