Morgunblaðið - 17.03.2022, Page 5
FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022 MORGUNBLAÐIÐ 5
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
H
estamennskan heillaði
mig sem barn. Ég hef
verið lengi í sportinu og
langaði að vinna við eitt-
hvað sem tengdist því. Þar lá
söðlasmíðin nokkuð beint við, úr
því tækifærið bauðst,“ segir Anna
Linda Gunnarsdóttir, sem starfar
hjá hjá Baldvin og Þorvaldi ehf. á
Selfossi. Hún er eins og sakir
standa eini neminn á landinu í
söðlasmíði og starfar þar undir
handleiðslu Guðmundar Árnasonar
sem er meistari í faginu.
„Iðnin er skapandi og starfið
fjölbreytt,“ segir Anna Linda um
söðlasmíðina. Hnakkar sem lagðir
eru á hesta eru nánast alfarið inn-
flutt vara, en annað sem þarf er
gjarnan framleitt hér heima. Þar
má nefna tauma, höfuðleður, múla
og teymingargjarðir svo eitthvað
sé nefnt. Einnig töskur – litlar sem
stórar – fyrir nesti eða annað slíkt
sem festar við hnakkinn í útreiðat-
úrum eða lengri hestaferðum.
Anna Linda er Vestfirðingur að
uppruna, en flutti suður fyrir
margt löngu. Bóklegu greinarnar í
söðlasmíðafaginu tók hún við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands fyrir rúm-
um áratug og fór svo að vinna hjá
Baldvin og Þorvaldi fyrir rúmum
fjórum árum. Hefur lokið verk-
námstíma sínum og bíður nú eftir
að komast í sveinsprófið, sem verð-
ur haldið um leið og færi gefst.
Hún býr nú með sínu fólki í Flóan-
um, hvar þau halda hross og
nokkrar kindur.
Reiðtygi eins og við þekkjum
þau eru yfirleitt úr nautshúðum,
sniðin til með þar til gerðum verk-
færum sem fagfólk notar af leikni.
„Eins og í öðrum iðngreinum þarf
söðlasmiður að hafa góða tilfinn-
ingu fyrir hlutunum og kunna
réttu handtökin, sem í þessu fagi
hafa reyndar verið hin sömu í
hundruð ára. Kannski bara alla
tíð,“ segir Anna Linda og að síð-
ustu:
Margt spennandi
í hestamennskunni
„Framleiðslan er eitt en annars
eru viðgerðir á reiðtygjum annars
stór hluti af mínu starfi hjá Bald-
vin og Þorvaldi. Við finnum líka vel
fyrir því þessa dagana að fólk er
að byrja að ríða út, enda er daginn
farið svo vel að lengja. Þá er
Landsmót hestamanna á dag-
skránni í sumar og mjög margt er
spennandi í hestamennskunni.“
Taumar, múlar
og höfuðleður
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Hafa tilfinningu fyrir hlutunum og kunna réttu handtökin, segir söðlasmiðurinn Anna Linda hér í viðtalinu.
Skapandi iðn og fjölbreytt starf. Anna Linda Gunn-
arsdóttir er eini nemandinn á landinu í söðlasmíði.
Vildi skapa sér starf tengt hestamennskunni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hestmennskan er vinsæl á Suðurlandi og gaman að fara á útreiðar.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Nokkur af verkfærum söðlarans.