Morgunblaðið - 17.03.2022, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
H
undrað nemendur og
þremur betur eru í
Stekkjaskóla á Selfossi;
nýjasta grunnskóla lands-
ins. Starfið hófst í ágúst á síðasta ári
og var fyrstu mánuðina í bráða-
birgðahúsnæði í frístundaheimilinu
Bifröst við Tryggvagötu. Er nú
komið í klasa timburhúsa við Heið-
arstekk á Selfossi sem eru á lóðinni
þar sem verið er að reisa glæsilegt
skólahús. Ráðgert er að taka í notk-
un 1. áfanga nýbyggingarinnar seint
á þessu ári sem verður rúmir 4.000
fermetrar. Áætluð endanleg heild-
arstærð hússins verður um 10.500
fermetrar á tveimur hæðum, en und-
ir þaki verða, auk grunnskólans,
jafnframt frístundaheimili, leikskóli,
tónlistarskóli og íþróttahús.
„Að setja nýjan skóla á laggirnar
er mjög áhugavert og skemmtilegt
starf, en að sama skapi eru áskor-
anirnar margar,“ segir Hilmar
Björgvinsson skólastjóri. Hann á að
baki langan feril sem skólamaður og
tók við núverandi starfi í byrjun síð-
asta árs. Þá var skólinn aðeins áform
og áætlun. Ekki ákveðið hvernig
standa ætti að kennslu og öðru starfi
sem hefjast skyldi haustið 2021.
Slíkt skyldi vera hlutverk Hilmars
og fljótlega var Ástrós Rún Sigurð-
ardóttir ráðin aðstoðarskólastjóri.
Skólastarfið í núverandi mynd er
þeirra útfærsla og eðlilega margra
fleiri.
Nýjungar í þróun
Í dag sækja Stekkjaskóla nem-
endur í 1.-4. bekk, það eru börn
fædd 2012, 2013, 2014 og 2015.
Næsta vetur bætist 5. bekkur við
skólann og svo fleiri á næstu árum.
Árið 2027 er svo ráðgert að skólinn
verði fullsetinn; það er heildstæður
grunnskóli frá 1.-10. bekk.
Skólinn er sem fyrr segir við göt-
una Heiðarstekk, sem er í svonefndu
Björkurstykki sem er nýjasta hverf-
ið á Selfossi og í hraðri uppbyggingu
nú. Einmitt úr þeirri byggð koma
nemendur skólans sem og úr hverf-
um syðst og vestast í bænum.
„Í nýjum skóla, þar sem byrjað er
frá grunni í orðsins fyllstu merk-
ingu, gefst svigrúm til að koma með
ýmsar skemmtilegar áherslur og
nýjungar, þróa þær áfram og gera
að hefðum,“ segir Hilmar Björg-
vinsson. Þannig byggist starfið í
Stekkjaskóla á fjórum stoðum, það
er hópvinna og -kennsla, umhverf-
ismennt, skapandi skólastarf með
áherslu á fjölbreytta kennsluhætti,
nýsköpun, tækni, handverk og listir
og síðast en ekki síst jákvæður
skólabragur þar sem gleði og vellíð-
an nemenda og starfsmanna skiptir
öllu máli.
Samkvæmt þessu er unnið, meðal
annars í sérstöku þróunarverkefni
undir leiðsögn Ingvars Sigurgeirs-
sonar, prófessors hjá mennta-
vísindasviði Háskóla Íslands. Verk-
efnið nýlega fékk styrk úr
Sprotasjóði og hefur það fengið
nafnið Stekkur til framtíðar.
Spjaldtölvur og vélmenni
„Hér í Stekkjaskóla höfum við
einsett okkur að vera framarlega í
allri þróun með skapandi skólastarfi.
Notum hér fjölbreytt kennslugögn,
til dæmis spjaldtölvur, gagnvirka
skjái og forritunarvélmenni með öll-
um þeim skemmtilegu möguleikum
sem slíkum tækjum fylgja. Fjöl-
breytt kennslutæki og teym-
iskennsla hefur frá fyrstu stundu
verið áherslumál hér og þar þurfa
allir að vera með í liði. Út frá því réð-
um við kennara og starfsfólk hingað
inn; fólk í 24 störf sem 167 umsækj-
endur voru um. Við vorum virkilega
lánsöm því við fengum framúrskar-
andi og áhugasamt starfsfólk,“ segir
Hilmar og að síðustu:
„Í hópkennslu eru að jafnaði tveir
til þrír umsjónarkennarar í sam-
starfi með nemendahóp en slíkt fer
eftir fjölda nemenda í árgangi. Ný-
bygging skólans mun taka mið af
slíku starfi, sem eru orðnir viðteknir
kennsluhættir í nútímanum. Annars
erum við á góðum vegi í dag, á fyrsta
starfsári skólans. Í Stekkjaskóla eru
skemmtilegir og glaðir nemendur
sem hafa aðlagast nýjum skóla vel.
Við höfum átt gott og farsælt sam-
starf við foreldra í vetur og hlökkum
til að að byggja upp öflugt starf í
samstarfi við samfélagið.“
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Nú er verið að reisa fyrsta áfanga nýs varanlegs húss fyrir Stekkjaskóla, sem áformað er að verði tekið í gagnið á hausti komanda. Áætluð heildarstærð er 10.500 fermetrar á tveimur hæðum.
Nýjasti grunnskólinn á Íslandi
Landnám í nýju hverfi á Selfossi. 103 nemendur í Stekkjaskóla. Umhverfismennt er áhersla, nýsköpun, tækni og jákvæður bragur.
Hilmar Björgvinsson og Ástrós Rún Sigurðardóttir stýra starfi Stekkjaskóla og móta áherslurnar þar.
Starfsemi Stekkjaskóla sem hófst síðasta haust er nú í klasa timburhúsa og
að því leyti er nokkur frumbýlingsbragur á starfinu, eins og oft vill verða.
Líf og leikur á skólalóðinni á fallegum vetrardegi. Í dag eru nemendur í
1.-4. bekk í Stekkjaskóla, en nýr árangur bætist svo við næsta haust.