Fylkir - 02.05.2022, Síða 1
°
°
Sköpunarhús fyrir ungt fólk
Segjum að þú búir í Eyjum og í
þér kraumar sköpunarkraftur. Þig
langar að stofna hljómsveit, koma
listinni þinni í grafískt form, búa
til kvikmynd eða tölvuleik! En því
miður er aðstaðan af skornum
skammti. Það er enginn ákveðinn
staður þar sem þú getur fengið
hjálp og leiðbeiningar eða kynnst
fólki með svipuð áhugamál og
þú. Við Eyjamenn höldum eina
stærstu tónlistarhátíð landsins en á
sama tíma erum við ekki að skapa
aðstæður fyrir okkar unga fólk
svo að það geti orðið eitt af stóru
flytjendunum á hátíðinni. Þessu
viljum við breyta og opna til þess
Sköpunarhús þar sem ungt fólk
getur sameinað krafta sína og leyft
sköpunareldunum að leika lausum
hala.
Fáum fólkið okkar heim
Segjum að þú viljir flytja til
Eyja með fjölskylduna og hefur
möguleikann á að taka vinnuna
þína með þér. Til þess þarftu
húsnæði í góðu standi fyrir
fjölskylduna, háhraða internet og
aðstöðu til þess að geta unnið
fjarvinnu en samt búið „heima“.
Allt þetta er af skornum skammti
í Vestmannaeyjum og það viljum
við laga.
Við viljum auka aðgengi að
fjarvinnu aðstöðu og skapa fram-
úrskarandi farveg fyrir brottflutta
Eyjamenn, og aðra sem eru áhuga-
samir um að búa hér, til að geta
flutt störf sín til Vestmannaeyja.
Nauðsynlegt er að skipuleggja
nýja íbúðabyggð sem samræmist
væntingum og þörfum fjölskyldu-
fólks. Þar horfum við til Löngulágar
(malarvöllurinn) og sjáum þar
fyrir okkur fjölskylduvænan og
grænan reit.
Við viljum setja ljósleiðaravæð-
ingu í algjöran forgang og flýta
fyrir lagningu en það er ein helsta
forsenda vaxtar í samfélögum
nútímans.
Fjölgum
nýsköpunarfyrirtækjum
Segjum að þig langi til að stofna
fyrirtæki í Eyjum í kringum frábæru
hugmyndina þína en þú veist ekki
hvar þú átt að byrja. Það er mjög
líklega vegna þess að þig skortir
aðstöðu, aðgengi að fjármagni og
jafnvel þekkingu.
í Eyjum þarf að vera staður þar
sem þú færð ráðgjöf og þjálf-
un, fáir upplýsingar um hvar er
vænlegast fyrir þig að sækja styrki,
hjálp við tengslamyndun við fólk í
þínum geira og fáir aðstöðu til að
þróa þína hugmynd með stuðningi
frá samfélaginu.
Fyrir framsækið ungt fólk,
því hér eigum við heima.
Gísli Stefánsson, Jón Þór
Guðjónsson, Valur Smári
Heimisson, Arnar Gauti Egilsson
og Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Vestmannaeyjum 7. maí 202274. árgangur 3. tölublað
Við ætlum...
Hún vill...
• aðstöðu fyrir
hljómsveitina
• aðgang að hjálp
og leiðbeiningum
• stað til að kynnast
fólki með svipuð
áhugamál til að
skapa með
Oddgeir
Eyjapeyji sem býr í
borginni en vill flytja
aftur heim til Eyja.
Margrét og Heimir
eru par sem langar að
stofna fyrirtæki í Eyjum
en þau vita ekkert hvar þau
eiga að byrja.
Vilborg
býr í Eyjum og í henni
kraumar sköpunarkraftur.
Hana langar að kunna að koma
teikningum sínum á grafískt
form og stofna hljómsveit
Þau vilja...
• þjálfun
• aðgengi að
fjármagni
• aðstöðu ?
Hann vill...
• háhraða internet
• fasteign í góðu standi
fyrir fjölskylduna
• aðgengi að aðstöðu
til fjarvinnu
takmarka
ð
framb
oð
neibb!
Því hér á ég heimaÞað á að vera framúrskarandi fyrir
alla aldurshópa að búa í Eyjum
að byggja upp framúrskarandi farveg
svo að brottfluttir Eyjamenn og aðrir
geti tekið störf sín til Vestmannaeyja
•
að setja háhraðanetvæðingu Eyjamanna
í forgang.
•
að stofna sköpunarhús fyrir ungt fólk
með aðstöðu og stuðningi fagaðila til
þess að útbúa margmiðlunarefni á
fjölda sviða s.s. tónlistarsköpun,
myndvinnslu og tölvuleikjagerð.
•
að ráðast í sókn varðandi tengslamyndun,
styrkumsóknir, fræðslu og ráðgjöf til að
hjálpa Eyjamönnum að hefja fleiri
skemmtileg nýsköpunarverkefni sem
skarað geta fram úr.
•
að byggja upp öfluga fjarvinnuaðstöðu
sem getur tekið við vaxandi fjölda Eyja-
manna sem vilja flytja störfin sín heim.
•
sóknaráætlun fyrir ungt fólk
Sóknaráætlun fyrir ungt fólk
Það á að vera framúrskarandi að búa í Eyjum
Mundu að kjósa D
hjá sýslumanni
í utankjörfundi.
Opið til kl. 17:00 alla
daga í næstu viku.