Vísbending


Vísbending - 08.04.2022, Page 4

Vísbending - 08.04.2022, Page 4
Ritstjóri: Jónas Atli Gunnarsson Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir Útgefandi: Kjarninn miðlar ehf., Fiskislóð 31 B, 101 Reykjavík Sími: 551 0708 Net fang: visbending@kjarninn.is Prentun: Kjarninn Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita án leyfis út gef anda. Aðrir sálmar á menntun og prófskírteinum (83/1993) og þannig mætti lengi telja. Á fyrstu 13 árunum eftir aðilda að EES voru alls sett 1656 lög á Alþingi og af þeim voru 358 undir beinum eða óbeinum áhrifum af EES aðildinni.3 Það er erfitt að ímynda sér að ráðandi flokkar á Íslandi hefðu að eigin frumkvæði komið fram með samkeppnislög og stofnað öflugt samkeppniseftirlit. Hér á landi tíðkuðust helm- ingaskipti í bankastarfsemi, rekstri tryggingafyr- irtækja, sölu á eldsneyti (bæði smásölu og svo flokkun stórra viðskiptavina), framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli, skipaflutningum og þannig mátti lengi telja. Þau fyrirtæki sem voru öflugust voru þau sem höfðu bestu tengingarnar inn í ráðandi stjórnmálaflokka. Það þurfti Evrópu- sambandið til að minnka óheilbrigt samkrull viðskipta og stjórnmála þótt slíkt virðist enn vera töluvert vandamál. Breytt heimsmynd Innrás Rússa í Úkraínu hefur breytt umhverfi okkar bæði efnahagslega og þegar kemur að varnarmálum. Þau samgæði sem felast í landvörnum skipta nú meira máli heldur en fyrir aðeins nokkrum vikum síðan. Evrópuþjóðirnar hafa stóraukið framlög til varnarmála til þess að geta staðið sem mest á eigin fótum andspænis þeirri ógn sem stafar af Rússlandi. Sjálfstæði í varnarmálum skiptir meira máli vegna þess að reynslan af ríkisstjórn Donald Trump hefur kennt álfunni að Bandaríkjunum er ekki eins vel treystandi til að koma Evrópuríkjunum til bjargar og áður var talið. Alþjóðavæðingin gengur nú hratt til baka. Efnahagsleg tengsl Bandaríkjanna og Kína fara minnkandi. Bandaríkin færa framleiðslu frá Kína til þess að stytta framleiðslukeðjur og vera minna háð Kína um ýmis aðföng og framleiðslu. Í Evrópu er kerfisbundið verið að slíta viðskiptatengslum við Rússland og ekki fyrirséð að Rússland verði aftur velkominn viðskiptafélagi Evrópuríkjanna á næstu árum. Af þessum sökum hefur mikilvægi Evrópu- sambandsins aukist til muna fyrir Ísland. Á næstu árum verða Evrópuríkin mun öflugri en síðustu áratugi þegar kemur að landvörnum og lega Íslands gerir það nauðsynlegt fyrir þau og Bandaríkin að koma í veg fyrir að landið fari á áhrifasvæði Rússa. Markaður ríkjanna verður enn mikilvægari en áður fyrir okkar útflutnings- greinar. Á varasömum tímum er mikilvægt að eiga bandamenn og smáríki innan Evrópusam- bandsins mega sín meira en utan þess. En Evrópusambandið hafði þegar sannað mikilvægi sitt fyrir átökin í Evrópu þegar 3 Sjá https://www.stjornarradid.is/media/forsaetisraduneyti-media/media/Ymislegt/Altingi_-_EES_tengd_ loggjof.pdf. 4 Sjá https://hringbraut.frettabladid.is/sjonvarp/mannamál/olafur-ragnar-grims- son-fyrri-thattur/og https://hringbraut.frettabladid.is/sjonvarp/mannam%C3%A1l/ olafur-ragnar-grimsson-seinni-thattur/ annars konar ógn steðjaði að landsmönnum. Íslendingar voru hvað fremstir í því að bólusetja gegn farsóttinni og bóluefnin komu hingað frá Evrópusambandinu. Það eru samgæði að geta haft hemil á farsótt og innan samtakanna er tryggt öll ríki, smá og stór, hafi sem jafnastan rétt. Lokaorð Ýmsir stjórnmálaleiðtogar hér á landi hafa gert lítið úr Evrópusamstarfinu, talað um ESB sem logandi hús vegna skuldavanda Grikklands og fleiri ríkja í Suður Evrópu, talið hagsmunum Íslands betur borgið utan sambandsins og talað upp samskipti við Kína og stundum einnig Rússland. Þegar bankarnir féllu var farið til Put- ins og hann beðinn um fjármagn sem hefði haft ófyrirsjáanleg áhrif á stöðu landsins. Spyja má af hverju Putin bauð fram fé og af hverju íslensk sendinefnd var boðin velkomin til Moskvu til þess að semja um slíkan stuðning! Í nýlegu viðtali við fyrrverandi forseta lýð- veldisins lýsir hann því yfir að Evrópa eigi í miklum erfiðleikum vegna úrsögn Bretlands úr ESB, að Bandaríkin séu klofin og varla stjórntæk á meðan stórkostlegur árangur hafi náðst í Kína þar sem betur hafi tekist að stjórna misleitri þjóð. Asía verði álfa tuttugustu og fyrstu aldar.4 Sjaldan er þess getið að áfallið 2008 stafaði ekki af óvild Vesturlanda heldur innlendri svika- myllu; að innlenda velsæld megi að miklu leyti að rekja til Evrópusamstarfsins; og að ekki megi leggja að jöfnu lýðræði og einræði. Lýðræði er ekki fullkomið og í lýðræðis- ríkjum verða oft og reyndar stöðugt deilur og sundrung. En með því að leyfa mismunandi sjónarmiðum að koma fram kemur lýðræði í veg fyrir verstu stjórnvaldsmistökin og gefur þjóðum möguleika á að skipta um stjórnvöld á friðsamlegan hátt. Markaðshagkerfi er einnig ekki fullkomið en ekkert annað kerfi hefur reynt betur að lyfta lífskjörum og þá hjálpar velferðarkerfi eins og þau sem þekkjast í Evrópu. Vel skilgreindur og varinn eignaréttur, óspillitir dómstólar og sam- félag sem byggist á lögum og rétti eru forsendur þess að markaðshagkerfi dafni. Þær er ekki að finna í Kína! Hugmyndirnar um alþjóðlega fjármálamið- stöð sem ekki nyti þeirra samgæða sem felast í traustri mynt, fjármálaeftirliti og sterkum seðla- banka reyndust byggðar á sandi. Hugmyndir um að gefa Evrópu á bátinn og bjóða Kína velkomið eru byggðar á sama sandi. Skoðana- skipti og deilur í lýðræðisríkjum eru einmitt styrkleiki þeirra. Það er tími til að velja hvar í þessu nýja landslagi stórvelda Ísland verður. Vonandi verður það á meðal lýðræðisríkja Evrópu. 4 V Í S B E N D I N G • 1 4 . T B L . 2 0 2 2 Annars konar aðgerðir Hörmulegar fréttir vikunnar af líklegum stríðsglæpum rússneska hersins í Úkraínu hafa aukið þrýsting á Vesturlönd um að herða efnahagslegar refsiaðgerðir sínar gegn Rússlandi. Nú þegar hefur Evrópusambandið samþykkt bann á öllum innflutningi kola frá landinu, auk þess sem það stefnir að frekari takmörkunum á olíuinnflutningi á næstunni. Líkt og áður hefur verið minnst á í Vísbendingu eru efnahagsþvinganir lélegt vopn til að draga úr milliríkjaspennu. Engar vonir standa hins vegar til þess að hægt verði að draga úr spennunni þessa stundina, þar sem augljóst er af atburðum síðustu vikna að forseti Rússlands, Vlad- imír Pútín, muni ekki hætta við innrásina í Úkraínu vegna viðskiptahagsmuna. Meginmarkmiðið núna er að svelta ríkis- stjórn Rússlands fjárhagslega og draga úr möguleikum hennar á að geta háð stríð í öðru landi. Hingað til hefur þetta markmið ekki tekist. Enn streymir gjaldeyrir inn til Rúss- lands, þökk sé skörpum vaxtahækkunum seðlabankans þar í landi og áframhaldandi orkuútflutningi rússneskra ríkisfyrirtækja. Skilvirkasta leiðin fyrir Evrópusam- bandið til að valda rússneska hagkerfinu skaða er með því að banna innflutning á verðmætustu útflutningsvörum Rússa, olíu og jarðgasi. Sambandið er þó hikandi við að beita slíkum aðgerðum í náinni fram- tíð, þar sem stór hluti álfunnar reiðir sig á rússneska orku til að geta hitað húsin sín. Því er ólíklegt að Evrópa geti haft afgerandi áhrif á gang stríðsins með efnahagslegum refsiaðgerðum á allra næstu vikum. Til lengri tíma er aftur á móti vel hægt að draga úr efnahagslegum mætti Rúss- lands á alþjóðasviðinu, en Evrópusam- bandið gerir nú ráð fyrir að verða orðið óháð olíu og jarðgasi frá landinu innan fárra ára eftir því sem orkuskiptum vindur fram í álfunni. Sennilega munu því aðgerðirnar ná að draga úr getu Pútíns til að herja á önnur lönd og borgara þeirra eftir nokkur ár. Til þess að stöðva yfirstandandi innrás í Úkraínu er hins vegar þörf á annars konar aðgerðum til viðbótar við þær sem eru nú fyrirhugaðar. framh. af bls. 1

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.