Breiðholtsblaðið - 01.04.2022, Qupperneq 2

Breiðholtsblaðið - 01.04.2022, Qupperneq 2
2 Breiðholtsblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son Um brot: Valur Kristjánsson Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Póstdreifing ehf. 4. tbl. 29. árgangur Breiðholtsblaðið er dreift frítt í öll hús í Breiðholti APRÍL 2022 B reiðholt er fjölmenningarbyggð. Fjölbreyttur félagsauður er einn helsti styrkur hennar. Fólk af ýmsu þjóðerni með margvíslegan bakgrunn myndar nú byggðina sem afmörkuð er með útlínum Breiðholts. Þessi þróun hefur orðið að umliðnum þremur áratugum. Einkum þó það sem af er þessari öld. Atvinnulífið hefur kallað eftir fleira fólki til að leysa ýmis störf af hendi vegna þess að mannfæð Íslendinga nær ekki að leysa þau verkefni af hendi sem skapast í nútíma samfélagi. L íkur eru til að þessi þróun haldi áfram. Ferðaþjónustan er að koma til baka – alla vega að verulegu leyti eftir að hafa þurft að halda að sér höndum vegna kovid faraldursins. Hún kallar á fleiri störf. Á sama hátt mun byggingaiðnaðurinn kalla eftir fleiri vinnandi höndum á næstu árum. Ljóst er að viðvarandi húsnæðisskortur hefur háð landsmönnum og einkum á höfuðborgarsvæðinu. Úr því þarf að vinna. Næstu áratugur mun verða áratugur byggingaframkvæmda. Þótt atvinna sé fyrir hendi og lífsviðurværi sæmilegt eða gott tekur ávallt tíma fyrir fólk að laga líf sitt eftir nýjum heimkynnum. Þar kemur tungumálið við sögu. Margt af aðfluttu fólki kemur frá ólíkum málsamfélögum. Engir tala Íslensku og sumir tala ekki ensku. Í Breiðholti hefur margt verið gert til þess að auðvelda fólki að finna sér flöt í nýjum heimkynnum. Skólasamfélagið og Þjónustumiðstöð Breiðholts hafa stígið mörg skref í þá átt. Það starf mun halda áfram. Félagsauður er styrkur byggðarinnar. Félagsauður er styrkur Þrír hópar verða valdir til uppbyggingar á grænu húsnæði í Breiðholti. Hópur sem standur saman af Vistbyggð, Eflu og Arkís arkitekta verður boðið til samninga við borgina um uppbyggingu við Völvufelli 13 til 23. Þá mun Reykjavíkur­ borg ræða við hóp Arkþings Nordic, Eflu, S8 og Þingvangs um lóðina Völvufell 43. Hópur á vegum Alverks, Grímu, Tendru og VSÓ mun svo koma að borðinu um lóðina að Arnarbakka 6. Með þessu tekur Reykjavíkurborg föst skref í átt að umhverfisvænni markmiðum er kemur að hönnun, húsagerð og framkvæmdum. Mikilvægt er að huga að byggðu umhverfi sem hringrás þar sem samgöngur, skipulag og hús eru hugsað sem heild fyrir fólk. Nú taka við samningaviðræður við vinnings hópana um framþróun þeirra fimm reita sem borgin lagði til í verkefnið. Mark- mið viðræðnanna er semja um útgáfu formlegra lóðavilyrða og í kjölfarið lóðaúthlutun með þeim skilyrðum og kvöðum sem skilgreind verða í hverju tilviki fyrir sig til að markmið verkefnisins náist. Um nokkurt skeið hafa reitirnir við Völvufell og Arnarbakka verið til skoðunar hjá borginni með uppbyggingu fyrir augum. Hefur borgin meðal annars fest kaup á fasteignum til að rýma fyrir nýju umhverfi. Grænar byggðir munu rísa í Breiðholti Hugmynd að nýjum leikskóla við Völvufell. - þrír hópar valdir til að skipuleggja uppbyggingu Þrír ærslabelgir vera settir upp í Breiðholti í sumar. Það er hluti af umhverfisverk­ efni borgarinnar og afleiðing af kosningu í “hverfið mitt” þar sem óskað var eftir uppblásnum ærslabelgjum. Ærslabelgirnir eru þó aðeins brot af þeim rúmlega hundrað verkefnum sem koma til framkvæmda á árinu 2022 í tengslum við lýðræðisverkefnið Hverfið mitt. Reykvíkingar geta verið hoppandi glaðir í sumar þegar ærslabelgjafjöldinn í borginni margfaldast en þrettán nýir ærslabelgir verða settir upp. Ærslabelgirnir verða tveir í Grafarvogi, tveir í Háaleiti og Bústöðum, tveir í Árbæ og Norðlingaholti, og einn í Grafar- holti og Úlfarsárdal, Kjalarnesi, Laugardal og Vesturbæ. Áætlaður kostnaður vegna þessara 111 verkefna er 850 milljónir króna. Áætlaður framkvæmdatími er maí til desember 2022. Þrír ærslabelgir í Breiðholtið Þrír ærsalbelgir verða settir upp í Breiðholti. Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir eða fáðu lyfin send heim Pantaðu á appotek.is eða í síma 568 0990 Garðs Apótek - í yfir 60 ár Sogavegi við Réttarholtsveg Opið 9-18 virka daga. Þangbakka 10 (MJÓDD) • Sími: 557-2053

x

Breiðholtsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.