Breiðholtsblaðið - 01.04.2022, Side 11

Breiðholtsblaðið - 01.04.2022, Side 11
Grunnskólaganga hvers nemanda er mót andi fyrir framtíðarmöguleika við komandi. Það er því brýnt að starfsemi grunn skólanna gangi vel. Stjórnendur, kennarar og annað starfslið grunnskóla samtímans standa hins vegar frammi fyrir marg víslegum áskorunum, m.a. vegna örra breytinga í samfélaginu og tækniframfara. Skapa þarf vandaða umgjörð svo að grunnskólarnir séu vel í stakk búnir til að takast á við þennan flókna og síbreytilega veruleika. Í þessari grein verður kastljósi beint að tveim snúnum viðfangsefnum sem hafa töluverð áhrif á starfsemi grunnskóla Reykjavíkur. Staða grunnskólanemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn Í ársbyrjun 2019 var fólk af erlendu bergi brotið 14,1% af heildarfjölda íbúa hér á landi en sambærileg tala árið 1995 var 1,8%. Fjölgun íbúa á Íslandi á meðal erlendra ríkisborgara er mun meiri og hraðari en sem nemur fjölgun íslenskra ríkisborgara og er því spáð að svo verði áfram (Mann- fjöldaspá 2020–2069, Hag tíðindi, 17. desember 2020, bls. 6). Þessi þróun hefur um langa hríð haft töluverð áhrif á starfsemi grunnskólanna í Reykjavík, ekki síst þeirra sem eru í Breiðholti. Þetta stafar m.a. af því að í sumum hverfum Breiðholts er verulega hátt hlutfall grunnskólanemenda með annað móðurmál en íslensku. Almennt má segja að í framkvæmd sé erfiðleikum bundið að skipuleggja skóla- og frístundastarf þannig að þörfum nemenda með ólíkan menningar- og tungumálabakgrunn sé mætt (sjá Drög að stefnu – Menntun barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, maí 2020, bls. 12). Í upphafi þessa kjörtímabils, haustið 2018, lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn að Reykjavíkurborg „beiti sér fyrir því að minnka eða útrýma þeim mismun sem myndast hefur á milli barna innflytjenda og annarra barna hvað varðar námsárangur og þátttöku í íþróttum og tómstundum“. Þrátt fyrir að tillagan fengi farsælan meðbyr verður ekki framhjá því horft að mikið verk er enn óunnið. Að okkar mati er t.d. mikilvægt að gripið verði til sértækra aðgerða í Efra Breiðholti, svo sem að auknu fjármagni sé varið til að fá sem flesta grunnskólanemendur til að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi. Staða drengja í grunnskólakerfinu Í október 2020 lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn til að gerði yrði úttekt á kynbundnum mun á námsárangri í leik- og grunnskóla, með sérstakri áherslu á læsisfærni á íslensku. Tillögunni var vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs og eftir hér um 18 mánaða málsmeðferð var tillögunni vísað frá af núverandi meirihluta borgarstjórnar, sbr. fundargerð sviðsins, dags. 22. mars síðastliðinn. Þessi afgreiðsla varpar ljósi á þá forgangsröðun sem meirihlutinn stendur fyrir. Til þess verður að líta að samkvæmt PISA könnun frá 2018 geta 34% drengja ekki lesið sér til gagns við lok grunnskóla hér á landi á meðan sama hlutfall fyrir stúlkur er 19% (sjá t.d. https:// mms.is/frettir/nidurstodur-pisa- 2018-liggja-fyrir). Ástæða er til að ætla að þessi staða hafi ekki farið batnandi undanfarin ár (sjá t.d. meistararitgerð Svövu Þórhildi Hjaltalín: Hvernig verða börn læs?, febrúar 2022). Full þörf er á því að námsárangur drengja í grunnskólum Reykjavíkur sé tekinn til sérstakrar skoðunar og fundnar séu markvissar leiðir til að bæta árangur þeirra í grunnskólakerfinu. Leiðin fram á við Þótt stjórnendur grunnskóla og starfslið þeirra, sé sjálfsagt allt að vilja gert til að sinna sínum verkefnum af kostgæfni, þá þarf skynsamlega pólitíska forgangsröðun til að starfsemi grunnskóla í Reykjavík taki framförum. Í þeim efnum eru opinberar stefnur, sem og skýrslur samdar af sérfræðingum, vissulega góðra gjalda verð. Hins vegar skiptir efnið meira máli en umbúðirnar. Að okkar mati á að taka meira tillit til ráða þeirra starfsmanna sem sinna þessum verkefnum á hverjum degi, svo sem hjá kennurum, starfsmönnum frístundaheimila og einnig þeirra sem bera hitann og þungann af íþrótta- og tómstundastarfi sem fram fer nálægt einstaka grunnskólum Reykjavíkur. Þau stjórnmál eru nefnilega vænlegust til árangurs, sem byggð eru á samráði við þá, sem þurfa á hverjum degi að lifa með afleiðingum pólitískrar stefnumótunar. Helgi Áss skipar 7. sæti og Jórunn Pála 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar sem haldnar verða 14. maí 2022. 11BreiðholtsblaðiðAPRÍL 2022 Helgi Áss Grétarsson. Helgi Áss Grétarsson og Jórunn Pála Jónasdóttir Er maginn í steik? 20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki Omeprazol Actavis – Við brjóstsviða og súru bakflæðiT ev a 0 2 8 0 6 2 -1 Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fastandi maga. Kynnið ykkur notkunar- leiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi Actavis Group PTC ehf. Grunnskólar Reykjavíkur og snúin viðfangsefni þeirra J ó r u n n P á l a Jónasdóttir.

x

Breiðholtsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.