Breiðholtsblaðið - 01.04.2022, Side 14

Breiðholtsblaðið - 01.04.2022, Side 14
14 Breiðholtsblaðið APRÍL 2022 Fimm drengir úr fjórða flokki Leiknis hafa verið kallaðir til æfinga í hæfileikamótun KSÍ. Um er að ræða hópæfingar þar sem knattspyrnu­ sambandið fær tækifæri til að skoða hvaða leikmenn eru að koma upp í uppeldis­ starfi félaganna og gætu mögulega verið klárir í U­landsliðsumhverfið á næstu árum. Það voru þeir Karan, Egill Ingi, Steinn Aziz, Adam og Axel Örn sem fengu kallið að þessu sinni og eru þeir á myndinni. Fimm kallaðir í hæfileikamótun Þegar líður að lokum skóla ársins þurfa foreldrar, börn og unglingar að huga að þátttöku í sumar í uppbyggilegu íþrótta- og frí- stundastarfi. Þátttaka í slíku sumarstarfi er mikilvæg fyrir öll börn og unglinga sem geta komið því við að taka þátt. Fátt er skemmti - legra en að fást við skemmti- leg og áhugaverð verkefni á sumar námskeiðum t.d. í íþróttum, tónlist eða leiklist í góðum félagsskap undir stjórn fullorðinna leiðbeinenda. Þá má ekk i g leyma mik i lvægi sumarnámskeiðanna í forvörnum en rannsóknir hafa sýnt að þeir unglingar sem taka þátt í skipulögðu íþrótta­ og frístundastarfi yfir sumartímann eru síður líklegir til að reykja, verða ölvaðir eða neyta fíkniefna en þeir sem ekki taka þátt í slíku starfi á sumrin. Foreldrar eru því hvattir til að gefa börnum sínum og unglingum tækifæri og hvatningu til þátttöku. Sú hvatning á einnig við vegna þess hve erfitt þetta skólaár hefur verið vegna Covid, veðurs ofl. Virkni barna krefst hvatningar eftir þá félagslega ládeyðu sem hefur dunið yfir okkur. Fjöldi námskeiða á vegum frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs, íþróttafélaganna ÍR, Leiknis og Ægis standa til boða í Breiðholtinu auk námskeiða annarra aðila. Upplýsingar um sumarnámskeið er að finna á vefnum www.fristund.is Öllum unglingum í 8.­10. bekk í Reykjavík stendur til boða að skrá sig í Vinnuskólann. Þar stunda unglingarnir vinnu í ákveðinn tíma á dag og í ákveðinn vikufjölda yfir sumarið undir stjórn fullorðinna flokkstjóra. Unglingarnir fá laun fyrir sína vinnu sem getur verið allt frá garðyrkju yfir í að vera aðstoðarleiðbeinendur á sumarnámskeiðum yngri barna. Upplýsingar um skráningu í Vinnuskólann er að finna á vefnum: www.vinnuskoli.is Gleðilegt sumar Jóhannes Guðlaugsson Frístundatengill hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts Skemmtileg sumarnámskeið og vinnuskóli Heilsueflandi BreiðHolt Jóhannes Guðlaugsson. GETRAUNIR.IS GETRAUNIR.ISGETRAUNANÚMER LEIKNIS ER 109 www.leiknir.com Samstarfshópur um forvarnir

x

Breiðholtsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.