Nesfréttir - 01.04.2022, Side 8
Ársreikningur Seltjarnarnesbæjar fyrir árið
2021, sem undirritaður var af bæjarstjóra og vísað
til fyrri umræðu í bæjarstjórn á fundi bæjarráðs
fimmtudaginn 7. apríl, sýnir verulegan bata á
rekstri og sterka fjárhagsstöðu bæjarins. Rekstur
A hluta bæjarins fyrir afskriftir og fjármagnsliði
skilaði 82 mkr. afgangi samanborið við 53 m.kr.
halla árið 2020. Er þetta bati upp á 135 mkr. Þá
er grunnreksturinn 129 mkr. betri en áætlanir
fyrir 2021 gerðu ráð fyrir.
Rekstrarniðurstaða af A sjóði fyrir breytingu
á lífeyrisskuldbindingu er halli upp á 128 mkr.
en áætlun gerði ráð fyrir 194 mkr. hallarekstri
vegna yfirstandandi Covid faraldurs sem nú sér
loks fyrir endann á. Betri rekstrarniðurstaða en
áætlun gerði ráð fyrir skýrist af hærri tekjum,
einkum útsvarstekjum sem voru 200 mkr. yfir
áætlun. Skatttekjur A hluta námu 3.615 mkr.
og hækkuðu um 6,2% frá síðasta ári. Laun og
launatengd gjöld námu um 2.823 mkr. og hækkuðu
um 2,5%. Annar rekstrarkostnaður var töluvert
hærri en áætlun gerði ráð fyrir, nam 1.799 mkr.
og hækkaði um tæp 8,6%. Skýrist kostnaður
umfram áætlun að miklu leyti af aðgerðum
vegna Covid faraldursins og má þar nefna m.a.
lokun sundlaugar, aukin þrif og launakostnað.
Rekstrarhalli A og B sjóðs nam tæpum 530 mkr.
á síðasta ári en gert var ráð fyrir 136 mkr. króna
halla samkvæmt fjárhagsáætlun. Afkoma af
grunnrekstri er góð og fer batnandi, en 455 mkr.
einskiptis gjaldfærsla á lífeyrisskuldbindingu í
ársreikningi samkvæmt reikningsskilareglum
gefur ekki rétt mynd af niðurstöðu. Gjaldfærslan
hefur ekki áhrif á sjóðstreymi og þ.a.l. ekki áhrif
á útgjöld bæjarins tilgrunnþjónustu. Ef sleppt er
að taka tillit til hækkunar á lífeyrisskuldbindingu
nam halli A og B sjóðs rúmlega 73 mkr. en spáð
var halla upp á 106 mkr. þar sem tekið var tillit til
kostnaðar vegna Covid.
Veruleg hækkun lífeyrisskuldbindingar
Í þessu sambandi er ástæða til þess fara yfir hvað
eru lífeyrisskuldbinding? Lífeyrisskuldbinding
eru uppsöfnuð áunnin réttindi þess fólks sem
starfað hefur hjá sveitarfélaginu á undanförnum
áratugum og koma til greiðslu á næstu
áratugum. Skuldbindingin var uppreiknuð af
tryggingastærðfræðingi um áramótin og lagði hann
til að skuldbinding myndi hækka um rúmar 500
mkr. þar sem réttindi fólks höfðu hækkað meðal
annars vegna breytinga á lífslíkum, launahækkana
og verðbóluspá næstu ára. Því varð hækkunin um
áramótin svona há, rúmar 500 mkr. sem gjaldfærð
var í rekstrarreikningi ársins 2021. Þessi fjárhæð
kemur til greiðslu á næstu þrjátíu árum eða svo.
Þetta er skuldbinding miðað við þann fjölda sem
nú fær og mun fá greiðslu frá lífeyrissjóðnum
næstu áratugi.
Lífeyrisskuldbindingar
fela ekki
útstreymi í sér
Ég hef verið þeirrar
skoðunar að þessa skuld
bindingu eigi að gera grein
fyrir í skýringum, en ekki
færa inn í rekstrarreikninginn
þar sem ekki er um útstreymi
fjármagns að ræða eins og
annar rekstrarkostnaður
ber með sér. Þessi færsla sýnir ekki rétta mynd
á sama tíma og reksturinn gekk vel á liðnu ári.
Gjaldfærð lífeyrisskuldbinding ársins nemur
eins og áður sagði 455 mkr. vegna verulegra
breytinga sem gerðar eru á forsendum útreiknings
skuldbindingarinnar að tillögu Félags íslenskra
tryggingastærðfræðinga. Breytingin felst m.a í
hækkun á lífslíkum og launahækkunum og þar með
áunnum réttindum sjóðsfélaga sem fá greiðslur úr
Bdeild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Ljóst er
að endurskoða þarf hvernig þessi breyting er sett
inn í ársreikning sveitarfélaga.
Litlar skuldir skapa svigrúm
Fjárhagsstaða bæjarins er sterk. Langtímaskuldir
A sjóðs nema 2.933 mkr. og jukust um 400 mkr.
á árinu og langtímaskuldir samstæðu nema
8 Nesfrétt ir
Traust fjárhagsstaða og bjartir tímar á Nesinu
Seltirningum gefst kostur á að setja trjágreinar
og jarðvegsúrgang í gáma á fimm stöðum í bæjar-
félaginu frá 29. apríl – 5. maí nk.
Gámarnir verða staðsettir við Smábátahöfnina,
á horni Lindarbrautar og Norðurstrandar,
Eiðistorgi, Austurströnd 1 (bílaplan) og við
Sæbraut 2 (bílaplan). Við hvetjum jafnframt
bæjarbúa til að huga að umhverfinu og tína upp
rusl í bæjarlandinu.
Á SELTJARNARNESI 29. APRÍL – 5. MAÍ 2022
UMHVERFISDAGAR
0 - 27. maí nk.
Umhverfisnefnd Seltjarnarness
LTJARNARNESI 20. – 27. MAÍ 2 19
S E L T J A R N A R N E S B Æ R
U M H V E R F I S N E F N D
- grunnrekstur styrktist um 135 milljónir milli ára
Ás gerð ur
Hall dórs dótt ir.