Nesfréttir - 01.04.2022, Síða 10
10 Nesfrétt ir
Fjölbreyttur garðagróður fegrar umhverfi Seltjarnarness og
veitir íbúum skjól í görðum sínum. Þar sem gróðurinn vex ár
hvert er nauðsynlegt að huga vel að því að hann vaxi ekki út
fyrir lóðarmörk eða slúti þannig yfir að hætta stafi af.
Gróður getur slegist í gangandi og hjólandi vegfarendur
með tilheyrandi hættu á slysum. Einnig geta greinar skyggt á
umferðarmerki, götumerkingar eða jafnvel götulýsingu.
Snyrta þarf gróður og klippa þannig að hvers konar umferð
gangi greiðlega. Best er að gera það þegar tré og runnar eru
ekki laufguð og greinabygging því vel sýnileg.
Stöndum saman um að minnka hættur í umhverfi okkar.
SNYRTUM GRÓÐUR VIÐ LÓÐARMÖRK
2,75 m.
STÉTT
4 m.
GATA
U M H V E R F I S N E F N D
Gaman að taka þátt í leiksýningunni
Tveir Seltirningar taka þátt í barnaleikritinu
Langelstur að eilífu sem var sett á svið í
Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði 15. janúar sl.
Langelstur að eilífu er byggt á samnefndri
barnabók um Eyju og vin hennar Rögnvald
eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. Bókin hlaut
íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna-
og ungmennabóka árið 2019 en fyrri bækurnar
tvær, Langelstur í bekknum og Langelstur
í leynifélaginu voru báðar tilnefndar til
Fjöruverðlaunanna þegar þær komu út.
Krakkarnir sem leika í Langelstur að eilífu eru:
Hildur María Reynisdóttir sem er í 3. bekk í Mýró
og Steinar Thor Stefánsson sem einnig er í 3. bekk
í Mýró. Hildur segir áhugamál sína vera leiklist,
fótbolti, leika við vinkonur og fara til útlanda og
Steinar nefnir leiklist, lestur, handbolta og læra á
píanó. Þau segja að leikriti fjalli um gamlan mann
sem heitir Rögnvaldur sem er búinn að vera í 90
ár í fyrsta bekk eða frá því að hann var sex ára.
Svo kemur stelpa í bekkinn sem heitir Eyja og þau
verða bestu vinir. Hildur María og Steinar Thor
leika bekkjarsystkini Eyju og Rögnvaldar og eru
í fyrsta bekk.
Vera á sviði og eignast góða vini
Hvað finnst þeim skemmtilegast við það að
taka þátt í leikritinu. Hildur segir að eignast góða
vini og sýna á sviði og Steinar bætir við að það sé
skemmtilegt að leika fyrir framan fólk og eignast
nýja vini. Þegar þau voru spurð um uppáhalds
atriði í leikritinu nefndu þau bæði karókí dansinn
og Hildur nefndi einnig lokaatriðið. Uppáhaldslög
þeirra í leikritinu eru Stafrófslagið og Besti dagur í
heimi. Þau segja að hægt sé að hlusta á lögin bæði
á Spotify og YouTube.
Stundum stressandi – frekar fyrir
sýningar
Stóra spurningin er ef til vill sú hvernig þeim
líður þegar þau standa á sviðinu og sýna fyrir
framan áhorfendur. Hildur segir að það sé gaman
en líka stundum stressandi. Steinar segir að
það sé frekar stressandi fyrir sýningu en þegar
sýningin sé í gangi þá fari stressið og sér líði vel.
Þau segja bæði að það erfiðasta í sýningunni sé
að syngja og dansa í einu. Þau mæla með því fyrir
aðra krakka að taka þátt í leiksýningum. Það sé
gaman og þar eignist maður nýja vini. Að lokum
hvetja þau alla að skella sér í Gaflaraleikhúsið á
leikritið Langelstur að eilífu. Miðasala er á tix.is.
Hlökkum til að sjá ykkur öll í leikhúsinu segja þau
Hildur María og Steinar Thor að lokum. Hægt er
hægt að sjá umfjöllun um leikritið og hverjir
listrænir stjórnendur og aðrir leikarar eru á
https://www.visir.is/g/20212184893d.
Hildur María Reynisdóttir t.v. og Steinar Thor
Stefánsson.
- segja þau Hildur María og Steinar Thor sem bæði leika í
Langelstur að eilífu í Gaflaraleikhúsinu
Frá barnaleikritinu Langelstur að eilífu.