Nesfréttir - 01.04.2022, Síða 15
Nesfrétt ir 15
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Réttarhvammi Akureyri 440-1433
Notaðu
N1 kortið
Alla leið
á öruggari
dekkjum
Pantaðu tíma
í dekkjaskipti
á n1.is
ALLA LEIÐ
Michelin e-Primacy
• Öryggi og ending
• Frábært grip og góð vatnslosun
• Einstakir aksturseiginleikar
• Ferð lengra á hleðslunni / tanknum
• Kolefnisjafnaður flutningur
frá framleiðanda
Michelin Pilot Sport 5
• Sumardekk fyrir þá kröfuhörðustu
• Veita óviðjafnanlega aksturseiginleika
• Frábært grip og góð vatnslosun
• Endingarbestu dekkin í sínum flokki
Michelin Cross Climate 2
• Sumardekk fyrir norðlægar slóðir
• Öryggi og ending
• Halda eiginleikum sínum vel út líftímann
• Gott grip við allar aðstæður
• Endingarbestu sumardekkin á markaðnum
Opið mánudaga til föstudaga kl. 8–18
Laugardaga kl. 9–13
Nýtt Nýtt
Vefverslun
Skoðaðu úrvalið
og skráðu þig
Ímyndum okkur sveitarfélag þar sem ákvarðanir eru byggðar á gögnum og
þekkingu í stað pólitískra skoðana. Ímyndum okkur að þessar ákvarðanir séu
teknar í samráði við bæjarbúa sem séu vel upplýstir á öllum stigum máls.
Ímyndum okkur að ákvarðanir séu rökstuddar og að um þær ríki gegnsæi,
þannig að bæjarbúar viti hvers vegna ákvarðanir eru teknar og hafi vettvang
til að tjá skoðanir sínar á þeim. Ímyndum okkur jafnvel að sveitarfélagið
hafi þá stefnu að taka ekki ákvarðanir nema að höfðu samráði við íbúana
og að niðurstöðum samráðsins sé komið í framkvæmd. Ímyndum okkur að
bæjaryfirvöld hlusti á raddir allra bæjarbúa.
Ímyndum okkur að í þessu sveitarfélagi sé bókhaldið opið svo
skattgreiðendur sjái í hvað útsvarskrónunum er varið, við hverja sveitarfélagið
semji og versli og hvað það greiði fyrir vörur og þjónustu. Ímyndum okkur
líka að bæjarbúar geti komið athugasemdum á framfæri telji þeir að eitthvað
megi betur fara og hlustað sé á þá, þeim svarað og málum komið í farveg.
Ímyndum okkur að bæjaryfirvöld og bæjarbúar séu sammála um að rekstur
sveitarfélagsins eigi að vera sjálfbær.
Ímyndum okkur að viðhorfin sem stjórnsýslan í sveitarfélaginu byggir
á endurspeglist í skólakerfinu í bænum, að leik og grunnskólar efli
gagnrýna hugsun nemenda sem og læsi á breiðum grundvelli, þar með
talið upplýsingalæsi, fjármálalæsi og fjölmiðlalæsi. Þar
séu í boði fjölbreytt námstækifæri sem höfði til ólíkra
áhugasviða nemenda, áhersla sé á samvinnu frekar en
samkeppni í náminu og að velferð og öryggi nemenda sé
grundvöllur alls skólastarfs. Komið sé til móts við ólíkar
þarfir nemenda með sveigjanleikann að leiðarljósi, bæði
hvað varðar skólatíma og skil skólastiga.
Ímyndum okkur að sveitarfélaginu sé stjórnað af
fólki sem hefur sett sér skýrar siðareglur og tamið sér
að forðast hvers konar hagsmunaárekstra. Ímyndum
okkur að öll gögn sem ekki snerta persónugreinanlega
hagsmuni einstaklinga séu opin, aðgengileg og
ókeypis, svo bæjarbúar geti treyst því að stjórnsýslan taki ávallt mið af
almannahagsmunum.
Væri ekki dálítið gott að búa í þannig sveitarfélagi?
Björn Gunnlaugsson
Aðstoðarskólastjóri, skólanefndarfulltrúi og frambjóðandi á A-lista
Framtíðarinnar
Ímyndum okkur
Björn
Gunnlaugsson.
Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is