Nesfréttir - 01.04.2022, Qupperneq 15

Nesfréttir - 01.04.2022, Qupperneq 15
Nesfrétt ir 15 Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Réttarhvammi Akureyri 440-1433 Notaðu N1 kortið Alla leið á öruggari dekkjum Pantaðu tíma í dekkjaskipti á n1.is ALLA LEIÐ Michelin e-Primacy • Öryggi og ending • Frábært grip og góð vatnslosun • Einstakir aksturseiginleikar • Ferð lengra á hleðslunni / tanknum • Kolefnisjafnaður flutningur frá framleiðanda Michelin Pilot Sport 5 • Sumardekk fyrir þá kröfuhörðustu • Veita óviðjafnanlega aksturseiginleika • Frábært grip og góð vatnslosun • Endingarbestu dekkin í sínum flokki Michelin Cross Climate 2 • Sumardekk fyrir norðlægar slóðir • Öryggi og ending • Halda eiginleikum sínum vel út líftímann • Gott grip við allar aðstæður • Endingarbestu sumardekkin á markaðnum Opið mánudaga til föstudaga kl. 8–18 Laugardaga kl. 9–13 Nýtt Nýtt Vefverslun Skoðaðu úrvalið og skráðu þig Ímyndum okkur sveitarfélag þar sem ákvarðanir eru byggðar á gögnum og þekkingu í stað pólitískra skoðana. Ímyndum okkur að þessar ákvarðanir séu teknar í samráði við bæjarbúa sem séu vel upplýstir á öllum stigum máls. Ímyndum okkur að ákvarðanir séu rökstuddar og að um þær ríki gegnsæi, þannig að bæjarbúar viti hvers vegna ákvarðanir eru teknar og hafi vettvang til að tjá skoðanir sínar á þeim. Ímyndum okkur jafnvel að sveitarfélagið hafi þá stefnu að taka ekki ákvarðanir nema að höfðu samráði við íbúana og að niðurstöðum samráðsins sé komið í framkvæmd. Ímyndum okkur að bæjaryfirvöld hlusti á raddir allra bæjarbúa. Ímyndum okkur að í þessu sveitarfélagi sé bókhaldið opið svo skattgreiðendur sjái í hvað útsvarskrónunum er varið, við hverja sveitarfélagið semji og versli og hvað það greiði fyrir vörur og þjónustu. Ímyndum okkur líka að bæjarbúar geti komið athugasemdum á framfæri telji þeir að eitthvað megi betur fara og hlustað sé á þá, þeim svarað og málum komið í farveg. Ímyndum okkur að bæjaryfirvöld og bæjarbúar séu sammála um að rekstur sveitarfélagsins eigi að vera sjálfbær. Ímyndum okkur að viðhorfin sem stjórnsýslan í sveitarfélaginu byggir á endurspeglist í skólakerfinu í bænum, að leik­ og grunnskólar efli gagnrýna hugsun nemenda sem og læsi á breiðum grundvelli, þar með talið upplýsingalæsi, fjármálalæsi og fjölmiðlalæsi. Þar séu í boði fjölbreytt námstækifæri sem höfði til ólíkra áhugasviða nemenda, áhersla sé á samvinnu frekar en samkeppni í náminu og að velferð og öryggi nemenda sé grundvöllur alls skólastarfs. Komið sé til móts við ólíkar þarfir nemenda með sveigjanleikann að leiðarljósi, bæði hvað varðar skólatíma og skil skólastiga. Ímyndum okkur að sveitarfélaginu sé stjórnað af fólki sem hefur sett sér skýrar siðareglur og tamið sér að forðast hvers konar hagsmunaárekstra. Ímyndum okkur að öll gögn sem ekki snerta persónugreinanlega hagsmuni einstaklinga séu opin, aðgengileg og ókeypis, svo bæjarbúar geti treyst því að stjórnsýslan taki ávallt mið af almannahagsmunum. Væri ekki dálítið gott að búa í þannig sveitarfélagi? Björn Gunnlaugsson Aðstoðarskólastjóri, skólanefndarfulltrúi og frambjóðandi á A-lista Framtíðarinnar Ímyndum okkur Björn Gunnlaugsson. Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is

x

Nesfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.