Nesfréttir - 01.04.2022, Side 17
Nesfrétt ir 17
AtkvæðAgreiðslA
utAn kjörfundAr
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitastjórnarkosninga 14. maí 2022 er hafin.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu fer eingöngu fram
í Holtagörðum á 2. hæð.
Opnunartími:
19. apríl – 1. maí, kl. 10:00 – 20:00
2. maí – 13. maí, kl. 10:00 – 22:00
Á kjördag laugardaginn 14. maí verður opið frá kl. 10:00 – 17:00 fyrir kjósendur sem eru á
kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.
Kjósendur skulu framvísa gildum skilríkjum við atkvæðagreiðsluna.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðunni: www.kosning.is
Nú styttist í að við Seltjarnarnesbúar fáum tækifæri
til að kjósa nýja stjórn fyrir bæinn okkar og mikilvægt
að nota þessi tímamót til að íhuga í hvernig bæ við
viljum búa. Samfylking og óháðir bjóða fram til starfa
fólk á öllum aldri, með mikla og fjölbreytta reynslu
að baki, sem vill vinna að því að gera okkar ágæta
Seltjarnarnes að enn betri stað til að búa í.
Betri bær fyrir börn
Samfylking og óháðir vilja byggja upp bæ sem
stuðlar betur að vellíðan barna á öllum aldri. Liður
þar í er að tryggja gott húsnæði og skólalóðir fyrir
öll skólastigin, sem aftur styður við þróun og faglegt
starf skólanna þannig að jafnt börnum sem starfsfólki
líði þar vel. Við ætlum að byggja nýjan leikskóla og
stórbæta skólalóð grunnskóla Seltjarnarness. Við
viljum efla þjónustu á öllum skólastigum svo öll
börn fái tækifæri til að blómstra. Það gerum við með
áherslu á snemmtæka íhlutun, samstarf stofnana
og greiðan aðgang að viðunandi úrræðum á réttum
tíma til að tryggja að ekkert barn falli á milli kerfa.
Við ætlum að efla unglingastarfið á ný með því að
snúa við niðurskurði í félags og forvarnarmálum. Við
viljum bjóða öllum börnum 5 ára og eldri 75.000 króna
tómstundastyrk og svo öll börn hafi tækifæri til að
stunda fjölbreytt og öflugt íþrótta og tómstundastarf.
Öflugur miðbær og enn betra umhverfi
Samfylking og óháðir vilja byggja upp öflugan
og spennandi miðbæ Seltjarnarness með því að
endurskipuleggja Eiðistorg. Horft væri m.a. til þess
sem gert var með ágætum árangri á Garðatorgi þar
sem bílastæði voru færð neðanjarðar að hluta og
ný íbúðarhús byggð með fjölbreyttri verslun og
þjónustu á götuhæð og íbúðum á efri hæðum. Við gerð
skipulagsins munum við horfa til þess að íbúðirnar
verði góð blanda af húsnæði sem hentar fyrstu
kaupendum, fjölskyldum sem og eldri borgurum sem
vilja minnka við sig. Þannig fjölgar Íbúum og við fáum
skemmtilegan miðbæ á ný.
Falleg náttúra og umhverfi er eitt aðalsmerki
Seltjarnarness og við ætlum að stuðla að því að
Seltjarnarnesbúar, sem og gestir bæjarfélagsins, njóti
þessa sem best. Það gerum við jafnt með verndun
umhverfisins sem og góðu aðgengi og þar skiptir
samstarf við bæjarbúa sköpum.
Ábyrg fjármálastjórnun
Samfylking og óháðir ætla að sýna ábyrga
fjármálastjórnun við rekstur Seltjarnarnesbæjar.
Síðastliðin fjögur ár hafa einkennst af slæmum rekstri
þar sem tekjur hafa ekki dugað til að greiða fyrir þá
þjónustu sem bærinn þarf að veita. Tap bæjarsjóðs
Seltjarnarnesbæjar er um 1400 milljónir og skuldir
sveitarfélagsins hafa farið úr 2,3 milljörðum árið
2017 upp í rúmlega 6 milljarða árið 2021. Meirihluti
Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn hefur reynt að bregðast
við þessu með því m.a. að fresta framkvæmdum
við nýjan leikskóla sem þau lofuðu fyrir síðustu
kosningar. Með því að hækka matarkostnað í leik og
grunnskóla og það án þess að huga að gæðamálum.
Með því að skera niður í jafn mikilvægum málaflokki
og forvörnum. Þessar ákvarðanir hafa verið óvinsælar
hjá bæjarbúum sem sést m.a. í árlegri þjónustukönnun
Gallup; á kjörtímabilinu fór
sveitarfélagið úr efstu sætum,
þegar ánægja íbúa á þjónustu
og stjórnun er mæld, niður í
þau neðstu.
Þessu viljum við breyta.
Síðastliðið haust hækkuðu
bæjarfulltrúar Samfylkingar,
Neslista/Viðreisnar ásamt
Bjarna Torfa, sem þá var
bæjarf ulltrúi Sjálfstæðismanna,
útsvars prósentu bæjarbúa
lítillega, þ.e. úr 13,7% í 14,09%. Hækkunin nemur
390 krónum á hverjar 100.000 krónur sem íbúi á
Seltjarnarnesi er með í laun en skilar um 100 milljónum
í bæjarsjóð. Þessar 100 milljónir nýtast til að koma í
veg fyrir áframhaldandi taprekstur og skuldasöfnun,
sem aftur sparar vaxtakostnað og skapar svigrúm til
að byggja upp betri bæ fyrir okkur öll.
Sækjum fram
Fólkið á lista Samfylkingar og óháðra á
Seltjarnarnesi býður fram krafta sína til að byggja
upp góðan bæ fyrir Seltjarnarnesbúa á öllum aldri.
Það er staðreynd að uppbygging sveitarfélags og góð
þjónusta kostar. Smávægileg lækkun á útsvari á næsta
kjörtímabili er því ekki keppikefli. Við horfum á næstu
fjögur ár sem ár sóknar þar sem þjónusta við íbúa á
öllum aldri verður efld, ráðist verður í framkvæmdir
og viðhald á eignum og önnur verkefni sem íbúar telja
mikilvægt að verja fjármunum til. Í þannig bæ viljum
við búa.
Guðmundur Ari Sigurjónsson
Oddviti Samfylkingar og óháðra á Seltjarnarnesi
Betri bær fyrir okkur öll
Guðmundur Ari
Sigurjónsson.