Vesturbæjarblaðið - Apr 2021, Page 2
2 Vesturbæjarblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171
Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími: 893 5904
Netfang: thordingimars@gmail.com
Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
Heimasíða: borgarblod.is
Net fang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son
Um brot: Valur Kristjánsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreif ing: Póstdreifing ehf.
4. tbl. 24. árgangur
Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107, 102 og 101.
Ákveðið hefur verið að lækka hámarkshraða á ýmsum
götum í Reykjavík. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg
kemur fram að markmið áætlunarinnar sé að stuðla að
bættu umferðaröryggi og að nauðsynlegt sé að draga úr
umferðarhraða til að ná því. Ekki sé réttlætanlegt að fórna
heilsu vegfarenda fyrir minni tafir.
Umdeilt er hversu miklar tafir eða önnur óþægindi lækkun
hraða getur skapað. Óumdeilt á þó að vera að lækkun
getur dregið úr mengun og öðrum umhverfisáhrifum.
Nokkur umræða hefur orðið um þetta mál bæði í
Vesturbænum sem annars staðar í borginni og sitt sýnist
hverjum. Hún tengist einnig öðrum breytingum sem unnið
er að í samgöngumálefnum á höfuðborgarsvæðinu. Þeim
breytingum að efla aðra samgöngumáta en umferð einkabíla.
Reykjavík og raunar allt höfuðborgarsvæðið er að breytast.
Landrými er ekki óendanlegt og byggð því að þéttast.
Einnig eru komnar á sjónarsviðið kynslóðir sem horfa til
breyttrar og þéttari borgarmyndar en höfuðborgarsvæðið
hefur borið í sér.
Þessar breytingar ná einnig til samgangna. Ógerlegt er
að auka umferð bíla í takt við þessar breytingar. Slíkt
myndi leiða til umferðartafa sem hvorki verða leystar með
endalausum steypumannvirkjum í formi mislægra gatnamóta
og hringtorga eða hraðri umferð.
A lmenningssamgöngur hafa alla tíð átt undir högg að
sækja hér á landi. Veðrátta á einhvern þátt í því en einnig
áhugaleysi um að sá samgöngumáti verði aðlaðandi. Bílaöldin
sem hófst með niðurfellingu gjaldeyrishafta 1960 reið yfir af
þunga.
Þótt efla verði almenningssamgöngur og auka aðlöðunar
hæfni er einkabíllinn ekki að hverfa. Hann verður áfram
samgöngutæki, þótt í minna mæli kunni að verða. Allar
breytingar þurfa sinn tíma. Lækkun hámarkshraða og betri
almenningssamgöngur er liður í þeirri þróun.
Liður í þróun
APRÍL 2021
Fasteignafélagið M3 hefur sótt
um að breyta gömlu blikksmiðju
JBP á Ægisgötu 7 í íbúðir.
Áður höfðu aðrir eigendur
stefnt að hóteli á þessum stað
en horfið frá þeim áformum.
Örn V. Kjartansson fjárfestir er
að baki M3 en hann var áður
framkvæmdastjóri eignaumsýslu
fasteignafélagsins Stoða.
Á embættisafgreiðslufundi
skipulagsfulltrúa 19. febrúar
2021 var lögð fram fyrirspurn
M3 fasteignaþróunar ehf. dags.
14. febrúar 2021 um breytingu
á notkun hússins á lóð nr.
7 við Ægisgötu sem felst í
að breyta iðnaðarhúsnæði í
íbúðarhúsnæði, samkvæmt til
lögu Teiknistofu arkitekta Gylfa
Guðjónssonar og félaga ehf.
og M3 fasteigna þróunar ehf.
dags. 12. febrúar 2021. Fyrirs
purninni var vísað til umsagnar
verkefnisstjóra og er nú lögð
fram að nýju ásamt umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 12. mars
2021. Umsögn skipulagsfulltrúa
dags. 12. mars 2021 samþykkt,
sbr. þó skil yrði og leiðbeiningar
sem fram koma í umsögn.
Blikksmiðja JPB var lengi á Ægisgötu 7. Um tíma var horft eftir að
breyta húsnæðinu í hótel en horfið frá því. Nú er stefnt að því að
breyta því í íbúðarhúsnæði.
Íbúðir í stað blikk smiðju
á Ægisgötu
Íbúaráð Vesturbæjar hlaut
3 .700.000 krónu hverf i s -
styrk og Íbúaráð Miðborgar
og Hlíða hlaut 4.430.000 kr.
Styrkir íbúaráða eru ætlaðir til
efling ar hverfisanda, mannlífs
og menningar.
Auglýst var eftir verkefnum
og viðburðum sem ætlað er að
stuðli að auknu mannlífi, menn
ingu, félagsauði og lífsgæðum í
hverfunum árið 2021. Mikilvægt
er að verkefnin höfði til allra
aldurshópa og skírskoti til breiðs
hóps fólks sem vill sækja sér
afþreyingu og upplifun í eigin
hverfi. Sjóðurinn sem ætlaður
er til þessa verkefnis nemur
alls kr. 30.000.000 Miðað er við
að íbúaráð sem eru níu talsins,
fái milljón hvert en afgangurinn
deilist til íbúaráða eftir íbúafjölda
hverfanna. Einstaklingar, félaga
samtök eða aðrir hópar sem vinna
saman að einstöku verkefni gátu
sótt um styrk í sjóðinn. Styrkir
geta til dæmis fallið til: Viðburða
í hverfum borgarinnar sem höfða
til allra aldurshópa, markaða
sem efla líf í hverfinu, tónleika,
listviðburða eða annað sem eflir
hverfisvitund, Pop up leikvalla
og þrautabrauta í hverfunum,
hreinsun eða gróðursetningar á
svæðum innan hverfisins.
Álftir á Reykjavíkurtjörn. Iðnó í baksýn.
Styrkir til íbúaráða
í Vesturbæ og Miðborg
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Afgreiðslutími:
Virka daga: kl. 9-18
Laugardaga: kl. 10-17
Í gamla Héðinshúsinu, Seljavegi 2
Góð þjónusta – Hagstætt verð