Vesturbæjarblaðið - apr. 2021, Blaðsíða 4
Við ofanverðan Klappar
stíginn nánar tiltekið
númer 40 er um tveggja
ára gömul rakara og
hársnyrt is tofa sem
heitir Rakkarnir á Klapparstíg.
Margir kannast eflaust við þetta
hús vegna þess að Ari Magnússon
rak Antikbúðina þar til lengri
tíma. Eftir að Ari hætti rekstri
búðarinnar bauð hann tveimur
konum sem tengjast hársnyrtingu
á Klapparstígnum í áratugi þetta
vinalega húsnæði. Þær voru þá
að leita sér að aðstöðu og því
ekki lengi að slá til. Þetta eru
þær Sonja Ásbjarnardóttir og
Þuríður (Þurý) Ævarsdóttir auk
þess sem Ellert Birgir Ellertsson
stendur að stofunni með þeim
en hann tengist Klapparstígnum
með sama hætti og þær. „Það fer
mjög vel um okkur hér, segja þær
Sonja og Þurý. Vesturbæjarblaðið
leit við í notalegu umhverfi hjá
þeim á dögunum.
Sonja og Þurý koma sín úr hvorri
áttinni en leiðir þeirra lágu saman á
Klapparstíg fyrir tvítugsaldur. Þær
voru aðeins 19 ára og enn í námi við
upphaf kynna þeirra 1984. Þá hófu
þær störf hjá Sigurpáli Grímssyni
á Rakarastofunni á Klapparstíg
sem segja má að verið hafi ein
fyrsta nútímavædda rakarastofa
hér á landi og einnig sú stærsta.
Þurý er mið- og Vesturbæingur með
viðkomu á Seltjarnarnesi en hefur
búið í Vesturbænum um lengri tíma.
Sonja kom af landsbyggðinni. Nánar
tiltekið frá Hornafirði. Hún á ættir
í hárskurð því að faðir hennar var
Ásbjörn Þórarinsson aðal rakarinn
á Höfn og þar byrjaði hún að læra
en lauk náminu hjá Sigurpáli á
Klapparstígnum. Þurý átti eftir
að ljúka sveinsprófinu þegar þær
komu á Klapparstíginn þar sem þær
hafa eytt lunganum af starfsævi
s inni þótt með einhverjum
undantekningum hafi verið. Þurý
hugsar sig aðeins um. “Já - ég man
að ég var einhverju sinni að klippa á
stofu sem Jörundur Guðmundsson
rak. Hann var nefnilega rakari þótt
hann sinnti ýmsu öðru. Á þessum
tíma var hann með sirkusstarfsemi
og flutti hingað danskan sirkus.
Minnir að hann hafi heitið Sirkus
Arena og ég man að ég klippti
trúðinn fyrir hann.”
Allt að 30 manns þegar
flest var
Rakarastofan á Klapparstíg var
lengi ein fjölmennasta rakara- og
hársnyrtistofa landsins. Þar starfaði
hársnyrtifólk frá ýmsum stöðum.
Sumt stóð skemmra við en annað
lengur eins og gengur. Þar var að
þeirra sögn oft mikið líf og fjör og
lengi einkenndi Klapparstíginn hvað
mikið var að gera. “Það voru allt
að 30 manns að vinna þar þegar
flest var. Tveir voru í afgreiðslunni
við að taka á móti fólki og selja
snyrtivörur og við hin á gólfinu
að klippa og snyrta. Sigurpáll var
oftast sjálfur með á gólfinu með
okkur og Inga konan hans sem er
systir Torfa Geirmundssonar sem
var mjög þekktur rakari á sinni
tíð var oft að grípa í klippingar
einkum síðari árin. Torfi starfaði á
Klapparstígnum um tíma en opnaði
hársnyrtistofuna Pappilla og síðar
Hárhornið fyrir ofan Hlemm þar
sem hann var til æviloka.”
Vildum vera áfram á
þessum slóðum
Sonja og Þurý störfuðu á
Rakarastofunni á Klapparstíg allt
til að Sigurpáll hætti og lokaði
stofunni. Hvað tók þá við. “Við
vorum búnar að ræða í nokkurn
tíma að við vildum starfa saman
áfram og jafnvel að fá fleiri úr
hópnum með okkur. Og þá hófst
leit að húsnæði. Vorum tengdar
Klapparstígnum í gegnum öll þessi
ár og vildum vera áfram á þessum
slóðum. Gatan var önnur heimkynni
okkar enda búnar að eyða miklum
tíma þar. Við vildum líka vera áfram
á þessum slóðum.”
Finnst við komnar heim
Þegar Sigurpáll hætti og lokaði
reyndist ekki auðvelt að fá hentugt
húsnæði við Klappar stíginn eða í
næsta nágrenni þótt hugurinn stæði
þangað. Þetta er talsvert áður en
covit skall yfir og ferðamennirnir
hurfu og ferðamannabúðunum
fækkaði skyndilega. Húsnæðis-
leitin reyndist erfiðari en við
höfðum gert ráð fyrir. Við vorum
búnar að fara víða og ræða við
marga en hvergi reyndist horn að
finna. Nýir eigendur höfðu tekið
við húsnæðinu á Klapparstíg þar
sem við höfum unnið. Það húsnæði
var líka allt of stórt fyrir okkur.
Þar var sett upp mjög há leiga
líkt og varð um flest pláss eftir að
ferðamannastraumurinn skall á.
Það mun ekki hafa tekist að leigja
það aftur – alla vega ekki til lengri
tíma þótt viðburðir hafi verið
haldnir þar. Erfitt reyndist líka að
finna út hverjir væru eigendur að
húsnæði á þessum slóðum. Einkum
við Laugaveginn. Við vorum orðnar
svartsýnar um að geta haldið
þessu áfram. Vorum búnar að fara
víðar og skoða okkur um. Jafnvel
út á Granda. Þá var uppbyggingin
þar á fullu og setið um hvert pláss.
Við vorum að hugsa um að við
myndum geta fundið okkur þar ef
við þyrftum að yfirgefa Miðborgina.
Við hefðum örugglega tekið okkur
vel út við að klippa í gamalli verbúð.
En þá bauðst okkur að fá inni hjá
Sandro við Hverfisgötuna. Ekki
langt frá okkar gamla stað. Það var
þó alltaf hugsað sem tímabundin
r á ð s t ö f u n o g v i ð h é l d u m
húsnæðisleitinni áfram. Við vorum
búnar að koma auga á þennan stað
nokkru áður en að Ari kom og bauð
okkur að leigja af sér plássið. Hann
sagðist vilja fá okkur og það tók
okkur innan við tvær mínútur að
segja já. Við erum því ekki alveg
á sama stað og forðum heldur
aðeins ofar á horninu á Klapparstíg
og Grettisgötu. Á þessum tíma
sem húsnæðisleitin stóð yfir duttu
sumir úr skaftinu sem höfðu áhuga
á að starfa með okkur. Fóru annað
en Ellert Birgir Ellertsson sem
starfað hafði á Rakarastofunni á
Klapparstíg kom með okkur hingað.
Við erum því þrjú hér á horninu.
Okkur finnst við komin heim.“
Meira en 100 ára saga
Sonja og Þurý voru nær samfell
í 32 á Rakarastofunni Klapparstíg.
Með endurkomu á Klapparstíginn
hefur þeim tekist að framlengja
sögu hársnyrtingar og klippinga
á Klapparstíg en saga þessar
atvinnugreina spannar meira heila
öld ef talið er frá stofnun fyrstu
rakarastofunnar við götuna. Þegar
Sigurpáll lokaði voru orðin 99 ár frá
því fyrstu skærin klipptu mannshár
og rakhnífur kyssti kjamma við
þessa götu.”
Margir Vesturbæingar
Hverjir eru helstu viðskiptavinir
Rakaranna á Klapparstíg. Eru það
eldri kúnnar af gömlu stofunni
eða hefur nýtt fólk leitað á þessa
nýju stofu. Þær Sonja og Þurý
segja marga hafa verið kúnna
á Rakarastofunni á Klapparstíg
en nýir hafi einnig komið. “Okkur
finnst Hverfisgatan skipta hverfinu
aðeins að þessu leyti. Fólk sem býr
ofan hennar er meira á ferðinni
hér. Við fundum þetta þann tíma
sem við vorum hjá Sandró sem er
norðan megin við Hverfisgötuna.
En þetta er alls ekki algilt og svo
kemur fólk lengra að. Við höfum
sérstaklega veitt athygli hversu
margir Vesturbæingar leggja leið
sína hingað. Við erum með “drop
inn” þjónustu eins og var á gamla
staðnum. Fólk getur komið við án
þess að panta tíma og þá ræðst
bara hvort allt er fullt. En við
reynum að hagræða eins og við
getum ef þannig stendur á.”
Lengur í návist en með
fjölskyldunum
Það er morgun á Klapparstíg
40. Rakararnir eru ekki búnir að
opna formlega. Það gerist klukkan
10 en hurðin er engu að síður
opin þar sem þau sitja á spjalli við
Vesturbæjarblaðið. Maður gengur
hjá og sér fólkið. Hann kemur inn og
fær að sjálfsögðu sína þjónustu þótt
opnunartíminn sé ekki alveg hafinn.
Þau eiga líka eftir að vökva blómin
því blómaskreytingar einkenna
stofuna. Allt er gert til þess að
létta og lífga umhverfið og þar
njóta þau þess að rúmt er á milli
veggja. Og útsýnið er niður eftir
Klapparstígnum. Mannlífið er einnig
fjölbreytt. “Við sjáum eiginlega allt.
Alla flóruna eins og hún leggur sig.”
Og samstarfið er einnig frábært. “Já
- frábært eins og það hefur alltaf
verið. Við erum búnar að eyða svo
mörgum klukkustundum, dögum
vikum, mánuðum og árum saman
að öðruvísi gæti það ekki verið.
Við vorum að gantast með það
á dögunum og við værum búnar
að vera lengur í návist hvorrar
annarrar en fjölskyldna okkar.”
4 Vesturbæjarblaðið APRÍL 2021
Finnst við komnar heim
Nesvegur 100
Símar 562-1070, 896-4243
Opið virka daga kl. 10 - 18:30
MIKIÐ ÚRVAL SPENNANDI FISKRÉTTA
VERIÐ VELKOMIN
FERSKUR FISKUR
DAGLEGA
- segja Sonja og Þurý rakarar á Klapparstígnum. Þær störfuðu í áratugi á Rakarastofunni á
Klapparstíg en fyrir um tveimur árum opnuðu þær sína eigin stofu á Klapparstíg 40 sem heitir
Rakararnir á Klapparstíg.
Sonja Ásbjarnardóttir, Þuríður (Þurý) Ævarsdóttir og Ellert Birgir Ellertsson á hársnyrti- og rakarastofunni
Rakararnir á Klapparstíg. Ef vel er að gáð má sjá blóm í glugga að baki þeirra. Þau leggja áherslu á gott
andrúmsloft, rými og blómaskreytingar á stofunni.