Vesturbæjarblaðið - apr. 2021, Side 5

Vesturbæjarblaðið - apr. 2021, Side 5
5VesturbæjarblaðiðAPRÍL 2021 Fyrsti rampur í átakinu Römpum upp Reykjavík var settur upp við verslunina Kokku á Laugavegi við hátíð lega athöfn fyrir skömmu. Rampurinn er ætlaður hreyfi hömluðum en getur einnig gagnast ýmsum kerrum og hjólum. Römpum upp Reykjavík miðar að því að setja upp hundrað rampa í Reykjavík á þessu ári, eins fljótt og auðið er. Stofnaður hefur verið sjóður sem stendur straum af kostnaði fyrir þá verslunar- og veitingahúsaeigendur sem taka þátt í verkefninu, í samræmi við forgangsröðun stjórnar sjóðsins. Markmiðið er að gera öllum kleift að sækja þá veitingastaði og þær verslanir í Reykjavík sem taka þátt. Unnið verður í góðu samstarfi við eigendur viðkomandi bygginga og skipulagsyfirvöld en Reykjavíkur borg er stofnaðili að verkefninu og hefur sagst munu tryggja góðan framgang þess, segir í tilkynningu. Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins og helsti styrktaraðili. Rampurinn sem var settur upp í gær er hannaður af Páli Hjaltasyni arkitekt. Lilja Kristín Ólafsdóttir landslagsarkitekt kom að útfærslu og eftirliti. Þau unnu verkið endurgjaldslaust og rampurinn var settur upp af Íslenskum aðalverktökum sem hluti framlags þeirra til Aðgengissjóðsins. Fyrsti rampurinn settur upp við Kokku Fyrsti rampurinn komin við Kokku. Umhverfisvæn íslensk hönnun WWW.AS WEGROW.IS GARÐASTRÆTI 2 REYKJAVÍK NÝ SENDING AF DUGGARAPEYSUM L A N D S BA N K I N N . I S Það er ekkert mál að spara saman í appinu Nú getur fjölskyldan eða vinahópur- inn sparað saman í Landsbanka- appinu. Það tekur bara örstutta stund að stofna reikning og þið getið öll fylgst með þangað til markmiðinu er náð. ÞAÐ ER L ANDSBANKI NÝRRA TÍMA

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.