Vesturbæjarblaðið - apr. 2021, Blaðsíða 9

Vesturbæjarblaðið - apr. 2021, Blaðsíða 9
búningsaðstaða fyrir dagvistunina. Á annarri hæð voru þrjár sjúkrastofur, borð- og setustofa, búningsherbergi, ræsti- og snyrtiherbergi og geymsla. Á þriðju hæð voru átta sjúkrastofur, borð- og setustofa, aðalvakt, bítibúr, snyrtiherbergi, bað og geymslur. Eldhús var í fyrstu hæð sem var tengt þessari starfsemi í fyrstu en síðar var matur sendur þangað frá eldhúsi Borgarspítalans í Fossvogi. Starfsemi Hafnarbúða var færð undir stjórn St. Jósefsspítala árið 1986 og var með svipuðu sniði og á meðan Borgarspítalinn sá um reksturinn. Kaldidalur kemur til sögunnar Hafnarbúðir voru nýttar til spítalareksturs og sem hjúkrunarheimili í rúma tvo ártugi en árið 1998 voru verðar miklar breytingar á rekstri hússins. Hafnarbúðir voru þá í eigu ríkisins sem ákvað að selja. Reykjavíkurborg nýtti sér ekki forkaupsrétt og varð Kaldidalur ehf. eigandi Hafnarbúða. Nýir eigendur létu gera húsið upp að utan sem innan án þess að um miklar breytingar yrði að ræða og heldur húsið að mestu sínu upprunalega útliti að utan sem innan. Eftir að búið var að gera húsið upp leigði Kaldidalur ehf. það ýmsum aðilum. Um tíma var þar lyfjafyrirtæki. Veitingahús hafa verið á fyrstu hæðinni og einnig verslanir. Fasteignasalan RE/ MAX Þingholt var þar um tíma og einnig greiðsluþjónustufyrirtækið Momentum auk fleiri aðila. Í dag eru þar meðal annars til húsa hvalaskoðunarfyrirtæki og arkitektastofan ASK arkitektar. Grænu verbúðirnar í endurnýjun lífdaga Miklar breytingar hafa orðið á atvinnustarfsemi í verbúðunum á undanförnum árum. Gömlu verbúðirnar við Geirsgötu, grænu verbúðirnar svokölluðu, hafa gengið í endurnýjun lífdaga. Í þeim og í nágrenni þeirra er meðal annars að finna litla veitingastaði, sem draga til sín gesti og lífga mjög upp á hafnarsvæðið. Mikil uppbygging hefur átt sé stað á hafnarsvæðinu öllu og mannlíf þar orðið miklu fjölbreyttara en áður auk þess sem ferðamönnum fjölgaði til muna fram að covid. Í fyrstu völdu fyrirtæki svæðið vegna lágrar leigu miðað við verslunarkjarna eins og Laugaveg og Kringluna en síðar tóku fleiri að sækja þangað vegna uppgangs. Ekki er annað að sjá en starfsemin í grænu húsunum, gangi fyrir sig og sé komin til að vera. 9VesturbæjarblaðiðAPRÍL 2021 Afgreiðslutími: Mán: 11-16 Þri-fös: 11-18 Lau: 11-16 ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK systrasamlagid.is @systrasamlagid Sími: 511 6367 Fyrirtækjaþjónusta systrasamlagsins Bústaðu þig og þína upp í maí með ofurþeytingum og skálum frá Systrasamlaginu! Frábært fyrir fyrirtæki sem vilja næra, bæta og kæta fyir sumarið. Skoðaðu það sem er í boði á www.systrasamlagid.is Flest er lífrænt, sumt glútenlaust, margt vegan en ekkert bragðlaust. Hafnarbúðir á horni Geirsgötu og Tryggvagötu hafa sett svip á hafnarsvæðið allt frá því húsið var reist í upphafi sjöunda áratugar liðinnar aldar.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.