Vesturbæjarblaðið - apr. 2021, Blaðsíða 11

Vesturbæjarblaðið - apr. 2021, Blaðsíða 11
11VesturbæjarblaðiðAPRÍL 2021 1717 RAUÐA KROSSINS HJÁLPARSÍMI Opinn allan sólarhringinn Upplýsingar um úrræði Alveg ókeypis (líka úr gsm) Kemur ekki fram á símreikning Fullur trúnaður Ef þér líður illa – ef þú átt í vanda Mikið líf og fjör hefur verið í Frosta síðustu vikur eftir stutta skerðingu á starfsemi okkar í kringum páskafríið vegna samkomutakmarkana. Í unglinga starfinu höfum við brallað ýmislegt, hél- dum glæsilegt borðtennismót, buðum upp á kökur og heitt súkkulaði á kakóhúsi Frosta og áttum nota legar stundir í Trúnó. Trúnó er vinsæll viðburður í Frosta þar sem unglingunum gefst tækifæri á að spyrja nafnlausra spurninga um lífið og tilveruna og taka svo þátt í umræðum um málefnin ásamt starfsfólki Frosta. Þessa dagana erum við svo með þemavikur í 10 til 12 ára starfinu. Í apríl eru í boði spila, feluleiki, bíó og boltavikur og hefur verið mikil stemning á opnu- num. Við erum farin að njóta vorsins og munum með hækkandi sól halda fleiri útiviðburði og njóta saman, segir í frétt frá Frosta. Líf og fjör í Frosta Frá félagsstarfinu í Frosta. Öflug skáksveit í Melaskóla Í lok mars tók Melaskóli þátt í Íslandsmóti grunnskóla í skák. Með skömmum fyrirvara var smalað saman fjögurra manna sveit og send til keppni. Foreldrar aðstoðuðu við framkvæmdina og eiga þakkir skildar fyrir það. Skemmst er frá því að segja að Melaskólaakrakkar náðu öðru sæti í mótinu, þrátt fyrir frekar ungan aldur. Mótið var fyrir aldursbilið 4. til 7. bekk og voru margar sveitir mannaðar eldri nemendum, úr 6. og 7. bekk. Melaskólasveitin var því í yngri kantinum. Sveitina skipuðu Nökkvi úr 4.HGG, Örvar úr 3.ÁS, Matthías úr 6.SL og Kormákur úr 3.MA. Þess má geta að Matthías, sem tefldi á 1. borði, vann allar sínar skákir. Hann og Kormákur æfa með Skákdeild Breiðabliks en Nökkvi og Örvar æfa skák með KR. Nökkvi, Örvar, Matthías og Kormákur í skáksveit Melaskóla. IÐJUÞJÁLFI Seltjörn hjúkrunarheimili Seltjarnarnesi óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í 50 til 60% starfshlutfall. Um er að ræða nýtt starf og væri æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Svanlaug Guðnadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar í síma 864 4184. Hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu Sunnuhlíðar, sunnuhlid.is. Hjúkrunarfræðingar Laus er staða hjúkrunarfræðings á nýlegu 40 rýma hjúkrunarheimili að Safn tröð 1, Seltjarn nesi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Um er að ræða hlutavinnu , morgun, kvöld, nætur og helgarvinnu. Upplýsingar gefur Sva laug Guðnadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar sími 864-4184. Íslenskt hjúkrunarleyfi. Vinsamlegast setjið Nes-fyrir framan starfið sem sótt er um. IÐJUÞJÁLFI Seltjörn hjúkrunarheimili Seltjarnarnesi óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í 50 til 60% starfshlutf ll. Um er að ræða nýtt starf og væri æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Svanlaug Guðnadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar í síma 864 4184. Hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu Sunnuhlíðar, sunnuhlid.is. Snorri Snorrason Löggiltur fasteignasali. 895 2115 Heiðar Friðjónsson Sölustjóri. Löggiltur fasteignasali B.Sc. 693 3356 Ingólfur Geir Gissurarson Framkvæmdastjóri, lögg. fasteignasali og leigumiðlari. 896 5222 Hildur Harðardóttir Lögfræðingur. Löggiltur fasteignasali. Skjalagerð. 897 1339 Pétur SteinarJóhannsson Aðstoðarm. fasteingasala Snæfellsnesi 893 4718 Margrét Sigurgeirsdóttir Skrifstofustjóri. margret@valholl.is 588 4477 Sturla Pétursson Löggiltur fasteignasali. 899 9083 Hrafnhildur B. Baldursdóttir Löggiltur fasteignasali. BA í stjórnmálafræði. 862 1110 Anna F. Gunnarsdóttir Löggiltur fasteignasali. Lista og innanhús Stílisti. 892 8778 Síðumúla 27 | 588 4477 | www.valholl.is | Reykjavík | Snæfellsbæ | Höfn Hornafirði Fagleg þjónusta - Vönduð vinnubrögð Nútímaleg, kraftmikil og framsækin fasteignasala sem byggir á áratuga reynslu starfsmanna!

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.