Vesturbæjarblaðið - apr. 2021, Blaðsíða 12

Vesturbæjarblaðið - apr. 2021, Blaðsíða 12
12 Vesturbæjarblaðið APRÍL 2021 Gómsæti í göngufæri Geirsgata 1 • Sími 511 1888 Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Kæru íbúar. Eins og flestir vita er Covid- 19 að sitja strik í reikninginn hjá ansi mörgum íbúum þessa lands. Eins og venjan hefur verið höfum við auglýst eftir umsóknum til að styðja við félagsstarf fyrir eldri borgara tvisvar sinnum á ári, annars vegar á vorin og hins vegar á haustin. Vorið 2020 var ákveðið að fresta umsóknum til haustsins 2020 og gátum við úthlutað í pottinn þá og vorum þá með hann tvöfaldan. Eins og staðan er í dag ætlum við að gera slíkt hið sama, þ.e. að fresta umsóknum til haustins 2021 og verður því ekki opið fyrir umsóknir þetta vorið, enda lítið sem hægt er að gera með fólki í félagsstarfi meðan fjöldatakmarkannir eru eins og þær eru í dag. Við vonum innilega að ástandið lagist í sumar og við getum átt gott haust með tilheyrandi félagsstarfi og öðru sem gleður okkur öll. Við munum væntanlega auglýsa „Heita pottinn“ í september n.k., en það verður nánar auglýst þegar nær dregur. Óskum ykkur öllum gleðilegs sumars. Fyrir hönd Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, Hörður Heiðar Guðbjörnsson - Verkefnastjóri. Heiti potturinn - styrkur í félagsstarfi í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum Vilja byggja fimm hæða við Njálsgötu Rannveig Eir Einarsdóttir og Hilmar Þór Kristinsson hafa sótt um leyfi til að byggja fimm hæða fjölbýlishúss með átta íbúðum við Njálsgötu 60 og var málið tekið fyrir bjá byggingafulltrúa nýverið. Gamalt og illa farið hús stendur á lóðinni en til vinstri er fjögurra hæða hús með risi þannig að þessar hugmyndir falla vel að nánasta umhverfi. Þau Rannveig og Hilmar reka Sandhótel við Laugaveg og ráku Verslun Guðsteins við Laugaveg. Gamla húsið við Njálsgötu 60 má eins og sjá má muna fífil sinn fegurri og fyrirhuguð nýbygging svipar til sambærilegrar hæða og húsin vinstri hönd. Reykjavíkurborg hefur stækkað ört á síðustu áratugum. Borgin sem hér áður fyrr var þéttust í mið- og vesturbænum hefur nú teygt sig langt í austur og ný hverfi hafa orðið þar til á landi sem áður var að mestu óbyggt. Slík þróun er fylgifiskur gríðarlegrar fólksfjölgunar sem var mjög ör í Reykjavík á þessum árum. Reykjavíkurborg er langt frá því að vera eina borgin sem hefur farið í gegnum tímabil þar sem gríðarleg fólksfjölgun verður á stuttu tímabili og mikil útþensla byggðar fylgir. Það er þó þannig að með aukinni meðvitund okkar um sjálfbæra þróun, loftlagsmál og þau áhrif sem við höfum á allt umhverfi okkar er sem betur fer alltaf verið að leita leiða til þess að bæta borgarsamfélagið. Ein þeirra leiða er þétting byggðar, sem er mjög góð lausn til þess að fjölga íbúum, við styttum vegalengdir sem fólk þarf að ferðast, drögum þannig úr mengun og minnkum þörf á að byggja á áður óbyggðum svæðum. Kvistir Það er ekki auðvelt að þétta byggð í grónum hverfum. Þeir eru ekki margir sem geta byggt heilu hæðinar á hús þar sem það má eða rifið niður og byggt upp ný hús vegna gríðarlegs kostnaðar sem því fylgir. Það er hins vegar einn kostur sem margir gætu farið, það er að bæta við kvisti á húsnæði. Það skýtur því örlítið skökku við að strangar reglur séu hjá Reykjavíkurborg um stækkun húsa með því að setja kvisti á hús. Það að bæta kvisti á hús sér í lagi í vestasta hluta borgarinnar er sú leið sem margir geta farið til þess að stækka við sig húsnæði. Þannig fengjum við fjölbreyttari íbúðir fyr ir mismunandi fjölskyldugerðir, ásamt betri birtuskilyrðum og loftgæðum í íbúðunum. Með því værum við að auka lýðheilsu og lífsgæði með einföldum hætti ásamt því að stuðla að þéttingu byggðar og skapa okkur ávinning umhverfislega. Mikilvægt er því að Reykjavíkurborg verði sveigjanlegri á reglum um byggingu kvista á húsnæði í Vesturbænum til þess að þétta byggðina og auka lífsgæði þeirra sem þar búa. Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins skrifar. Þétting byggðar Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.