Vesturbæjarblaðið - Mar 2022, Page 4
Tómas A. Tómasson tók sæti á Alþingi að loknum
þingkosningum á liðnu hausti. Hann gaf kost á sér í fyrsta
sæti fyrir Flokk fólksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Flokkurinn vann góðan sigur í kosningunum og á nú
þingmann í öllum kjördæmum landsins. Tómas hefur nokkra
sérstöðu sem þingmaður vegna þess að hann er eini maðurinn
í þingsögunni sem hefur verið kjörinn á þing eftir sjötugt.
Nokkrir þingmenn hafa setið á svipuðum aldri á Alþingi
en hafa þá verið kjörnir fyrir sjötugt. Tómas segir að þessi
hugmynd hafi vaknað með sér fyrir 44 árum og hann féllst á
að spjalla við Vesturbæjarblaðið að þessu sinni.
Hvað var það í lífi Tómasar
1978 sem gerði það að verkum að
hann tók ákvörðum um að stefna
að þingmennsku? "Ég ákvað að
að sækjast ekki eftir þingmennsku
fyrr en ég taldi mig orðinn það
fjárhagslega sjálfstæðan að
ég þyrfti ekkert að eiga undir
öðrum. En það er ákveðin saga
á bak við þetta,” segir Tómas og
tíðindamaður gerist forvitinn.
Gamla konan
“Á þessum tíma var ég að
vinna sem þjónn á veitingastað
Deerfield Beach Country Club
golfklúbbi sem er staðsettur
norður af Miami á Flórída jafn
framt því að vera í háskólanámi.
Þetta var golfklúbbur fyrir ríka
fólkið. Ameríkanar og Kanada
menn komu gjarnan að norðan og
dvöldu þarna yfir vetrar tímann.
Margir miðuðu við að fara heim
eftir páska þegar sumarið var
farið að nálgast í heimkynnum
þeirra. Þarna var eitt sinn vel
stæður maður sem hafði tekið
móður sína með ásamt fjölsky
ldunni. Hún var norsk og bjó í
Noregi og var í heimsókn hjá syni
sínum. Þegar gamla konan áttaði
sig á því að ég var frá Íslandi þá
vildi hún tala heilmikið við mig.
Hún var alltaf að kalla á mig til
að spjalla, vitandi um skyldleika
Noregs og Íslands. Svo var það
eitt sinn er kvöldið var búið að
hún kallaði sérstaklega á mig.
Hún tók í báðar hendurnar á mér
og horfði grafalvarleg í augun á
mér og sagði orðrétt við mig "One
day you will be in Parliament".
Þessi kona var hreint ekki galin.
Hún var alveg með sitt á hreinu.
Á þessari stundu ákvað ég að
fara i stjórnmálin þegar þar að
kæmi. Ég hitti Steingrím Her
mannsson 1991 sem þá hafði
m.a. verið forsætisráðherra.
Stjórnmál bárust í tal og hann
sagði að faðir sinn Hermann
Jónasson, sem einnig hafði verið
forsætisráðherra, hefði sagt við
sig að fara ekki í stjórnmál fyrr
en hann væri orðinn fjárhagslega
sjálfstæður og engum háður. Ég
er í dag fjárhagslega sjálfstæður
og minn tími virtist kominn er
fundum okkar Ingu Sæland bar
saman. Ég er 72 ára gamall og var
kosinn inn á Alþingi í september
sl. Það hefur aldrei gerst áður að
svo fullorðinn maður hafi verið
kosinn í fyrsta skipti á Alþingi.
Eldri menn hafa reyndar setið á
þingi en hafa þá hlotið kosningu
innan við sjötugt. Í dag er ég eini
maðurinn sem er kominn yfir
sjötugt á þinginu”.
Skemmtileg vinna
Hvernig var svo að koma inn í
þingið? Öðruvísi en þú áttir von á?
“Þetta er skemmtilegasta vinna
sem ég hef unnið um ævina og
er ég þó búinn að gera margt
skemmtilegt. Allir eru mjög
almennilegir og starfsfólkið
boðið og búið að hjálpa manni.
Maturinn er í hæsta gæðaflokki
og allur aðbúnaður er eins og
best verður á kosið og þingmenn
hvort sem þeir eru í stjórn eða
stjórnarandstöðu eru sérstak
lega hlýlegir og tillitssamir þótt
menn kunni að hafa sitt hvora
skoðunina. Skoðanaskiptin koma
einkum fram inn í þingsalnum og
í ræðustólnum, en þegar út er
komið eru allir vinir.”
Erum öll á sömu línunni
Tómas víkur að Flokki fólksins
sem hann situr á þingi fyrir. “Í
okkar flokki ríkir sérdeilis góður
andi. Ég þakka það Ingu Sæland
fyrst og fremst. Hún er mjög af
gerandi leiðtogi flokksins og
heldur okkur þétt saman eins og
sannri forystumanneskju ber.
Við oddvitar flokksins í kjör
dæmunum sex erum eðlilega
með margvíslegar skoðanir, en
komum okkur alltaf saman um
málefnin þannig að við séum
ekki upp á kant hvert við annað.
Við erum í raun mestmegnis öll
á sömu línunni, þannig að við
eigum auðvelt að ná saman.
Aðaláhersla okkur varðar þá
sem minnst mega sína. Hvort
sem það eru öryrkjar, eldra fólk
eða þeir sem hafa minnst á milli
handanna. Á okkar stefnuskrá er
að liðka til fyrir þeim eins og við
getum. Svo hefur blóðmeramálið
verið ofarlega á dagskrá okkar
flokks. Inga tók þetta mál alger
lega í fang sér og er búin að vera
með þetta á stefnuskrá í liðlega
eitt ár. Hún á heiðurinn af því
hversu langt það er komið í um
ræðunni, innan þings sem utan.
Hvort það verður afgreitt og
þessu starfsemi bönnuð verður
svo að koma í ljós”.
Sumir eiga fasteignir og
hlutabréf - aðrir ekkert
Flokkur fólksins hefur fjallað
sérstaklega um málefni eldri
borgara og þá ekki síst þegar
komið er að starfslokum fólks.
Tómas gagnrýnir að ríkið hafi
lögfest þá stefnu að fólk verði að
láta af störfum þegar það hefur
náð sjötíu ára aldri. Hið sama
sé í gildi hjá sveitarfélögum
þótt það kunni að vera eitthvað
mismunandi frá einu þeirra
til annars. “Ég vil meina að við
sem erum orðin sjötug eigum
að fá að vinna ef við höfum til
þess orku og hæfni. Það er í dag
hægt að ráða fólk til vinnu sem
komið er yfir sjötugt ef það fer í
sérverkefni og vinnur sem verk
takar. Við erum t.a.m. með einn
starfsmann hjá Flokki fólksins
sem er orðinn sjötugur. Það átti
að fastráða hann en það var af
þessum sökum ekki hægt, en
hann má vera í sérverkefnum og
vinna sem verktaki. Það gegnir
öðru máli með mig vegna þess að
ég er ekki ráðinn heldur kosinn
og er á undanþágu sökum þess. “
Bréfin urðu allt í einu
mikils virði
Tómas segir að misjafnt sé
hvort eldri borgarar hafi nóg sér
til framfærslu eða ekki og þar
komi margt til. Sumir eiga bók
staflega ekkert en aðrir hafa náð
að safna einhverjum varasjóði
um ævina, svona eins og gengur.
Eiga kannski fasteignir og hluta
bréf eða annað sem gefur af sér
arð. Hlutabréfamarkaðurinn var
lítils virði fyrr en um 1993 er
hann tók að lifna við. Menn áttu
kannski hlutabréf í félögum eins
og Eimskip eða Sjóvá sem skiptu
litlu eða engu máli. Svo rauk þetta
upp á ca. tveimur árum. Mín fjöl
skylda átti t.a.m. hlutabréf í Sjóvá
og þetta voru bara einhver bréf
út í bæ. Svo kom Íslandsbanki
og ýmsar sameiningar urðu í
fyrirtækjageiranum og allt í einu
voru þessi bréf orðin þúsunda og
milljóna virði. Ég man að það var
þekktur útvegsmaður um miðbik
síðustu aldar sem hét Beinteinn.
4 Vesturbæjarblaðið MARS 2022
Gamla konan
sá fyrir að ég yrði
þingmaður
Tómas A. Tómasson alþingismaður.
- segir Tómas A. Tómasson alþingismaður
UM
HV
ER
FI
SV
Æ
N
ÍS
LE
NS
K
HÖ
NN
UN
ASWEGROW.IS