Vesturbæjarblaðið - mar 2022, Qupperneq 10
10 Vesturbæjarblaðið MARS 2022
Bolludagur, sprengi-
dagur og öskudagur
Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru hátíðardagar
í grunnskólunum. Í Vesturbæjarskóla mættu flestir í
grímubúningi á öskudag, sem var miðvikudaginn 2. mars.
Kennarar skipulögðu eitt og annað skemmtilegt í heimastofum
og svo var skemmtun á Sólvöllum. Á öskudag voru hamborgarar
í hádegismat og er öllum börnum skólans boðið í mat. Á
bolludaginn máttu allir sem vildu koma með bollu í nesti í
skólann og á sprengidag, þriðjudaginn 1. mars var saltkjöt og
baunir í hádegismat en það er gamall þjóðlegur réttur Íslendinga.
Frá Öskudeginum í Vesturbæjarskóla.
Hundrað daga hátíð
í Grandskóla
Hundrað daga hátíð var haldið í Grandskóla á dögunum. Þá
höfði sex ára nemendur eða fyrstubekkingar verið 100 daga
í Grandaskóla.
Farið var í skrúðgöngu um skólann, fjör var í íþróttasalnum,
horft var saman á mynd og pizzuveisla í lokin. Hundrað daga
hátíðin er ein af hefðum Grandaskóla.
Skóla- og frístundaráð Reykja-
víkur efnir til hvatningar-
verðlauna fyrir leikskóla-,
grunnskóla- og frístundastarf
á vegum borgarinnar ár hvert.
Hagaskóli hlaut verðlaun
fyrir verkefnið Lesskilning-
ur. Verðlaunin voru afhent í
byrjun mars á öskudagsráð-
stefnu grunnskólakennara
og stjórnenda.
Forsaga þess er að á alþjóð
legum degi læsis var nýju gagn
virku lesskilningsverkfæri hleypt
af stokkunum í Hagaskóla. Hug
myndin að baki verkefninu er að
til verði gagnvirkur lesskilnings
vefur sem er í senn matstæki
fyrir kennara og skólayfirvöld
og æfinga tæki fyrir nemendur.
Verkefnið byggir á þeim grunni
að nemend ur séu alltaf að
lesa texta við hæfi og geti með
virkni unnið sig áfram í þrepum.
Dómnefnd telur að leggja beri
áherslu á lesskilning nemenda
alla skólagönguna því hann er
grunnur að öllu bóklegu námi.
Hér er á ferðinni áhugaverð leið
til að einstaklingsmiða þjálfun
og leiðbeinandi mat á lesskiln
ingi nemenda sem gefur bæði
kennurum, skólayfirvöldum og
nemendum upplýsingar um stöðu
nemenda í lesskilningi og hvaða
þætti þurfi að þjálfa betur.
Markmið hvatningarverð
launanna er að vekja athygli
á því gróskumikla starfi sem
fram fer í skólum borgarinnar.
Verðlaunin eiga að veita starfs
fólki jákvæða hvatningu, ásamt
því að við halda og stuðla að
nýbreytni og þróunarstarfi.
Verðlaunin eru viðurkenning fyrir
vel unnin verk í þágu náms og
kennslu og staðfesting þess að
starfið sé fyrirmynd annarra. Að
þessu sinni bárust 14 tilnefning
ar vegna jafn margra verkefna.
Tilnefningar nar sem bárust bera
merki um þá miklu grósku sem er
í skóla og frístundastarfi í borg
inni þrátt fyrir erfiðar aðstæður í
heimsfaraldrinum.
Fulltrúi Hagaskóla tekur við viðurkenningunni.
Hagaskóli hlaut
hvatningarverðlaun
Þrír nemendur Landakotsskóla hlutu
íslenskuverðlaun unga fólksins í bókmennta-
borginni Reykjavík 2021. Þau eru Ágúst Minelga
Ágústsson í 10. bekk, Anya Sara Ratanpal í 7. bekk
og Ragnheiður Hafstein í 3. bekk. Verðlaunin voru
afhent í Hörpu mánudaginn 21. febrúar.
Í tilnefningu Ágústar til verðlaunanna segir: Fyrir
miklar framfarir í íslensku og afar góðan lesskilning á
þungum texta, til dæmis Gísla sögu Súrssonar.
Í tilnefningu Önju til verðlaunanna segir:
Fyrir góðan skilning á íslensku sem kemur fram í
tilfinningu hennar fyrir flóknum hugtökum í ýmsum
námsgreinum.
Í tilnefningu Ragnheiðar til verðlaunanna segir:
Fyrir að hafa náð að tileinka sér ólíka nálgun í
textaskrifum og hafa ótrúlega gott vald á tungumálinu
þrátt fyrir ungan aldur. Allir 67 verðlaunahafarnir
fengu viðurkenningarskjal og bókina Ljóðaúrval
með ljóðum Jónasar Hallgrímssonar í samantekt
Böðvars Guðmundssonar. Afhending verðlaunanna
er venjulega á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember
en fór að þessu sinni fram á Alþjóða degi móður
málsins 2022 þar sem fresta þurfti henni
vegna heimsfaraldurs.
Ágúst , Anya Sara og Ragnhe iður með
viðurkenningarnar.
Þrír hlutu íslenskuverðlaun
Landakotsskóli
Anna F. Gunnarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lista og innanhús Stílisti
892 8778
anna@valholl.is
Sturla Pétursson
Löggiltur fasteignasali
899 9083
sturla@valholl.is
Hrafnhildur B. Baldursdóttir
Löggiltur fasteignasali
BA í stjórnmálafræði
862 1110
hrafnhildur@valholl.is
Nútímaleg, kraftmikil og framsækin fasteignasala
sem byggir á áratuga reynslu starfsmanna!
Snorri Snorrason
Löggiltur fasteignasali
895 2115
snorri@valholl.is
Pétur Steinar Jóhannsson
Aðstoðarm. fasteingasala
Snæfellsnesi
893 4718
petur@valholl.is
Heiðar Friðjónsson
Sölustjóri, löggiltur
fasteignasali B.Sc
693 3356
heidar@valholl.is
Ingólfur Geir Gissurarson
Framkvæmdastjóri, lögg.
fasteignasali, leigumiðlari
896 5222
ingolfur@valholl.is
Hildur Harðardóttir
Lögfræðingur, löggiltur
fasteignasali, skjalagerð
897 1339
hildur@valholl.is
Hólmfríður Björgvinsdóttir
Ritari
588 4477
ritari@valholl.is
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
695 8905
elin@valholl.is
Reykjavík | Snæfellsbæ | Höfn Hornafirði Síðumúla 27 | 588 4477 | www.valholl.is
Fagleg þjónusta - Vönduð vinnubrögð