Feykir - 27.01.2021, Side 7
koma mér heim. Eðli málsins
samkvæmt hefur maður minna
ferðast og sá frítími sem ég hef
haft notaður heima við með
fjölskyldunni. Í eðlilegu árferði
fer ég um eina ferð í viku til
Reykjavíkur en það var ekki
þannig í fyrra svo tíminn heima
var meiri en venjulega, sem var
mjög notalegt verð ég að segja.
Ég náði hins vegar aðeins að
smíða, skipti um glugga og
járn á þakinu ásamt einhverju
smálegu. Það er mikil hvíld
sem fylgir því fyrir mig að fara
í smíðabuxurnar og hugsa um
millimetra og sentimetra og fá
að vinna með höndunum og
fara líkamlega þreyttur að sofa.“
Hvað var erfiðast við óveðrin
síðasta vetur? „Erfiðast í svona
ástandi er alltaf óvissan, óvissan
um hvað muni gerast og hvort
verði tjón á fólki og munum.
Þetta var mjög sérstakt að því
leyti til að við vorum að upplifa
rafmagnsleysi í svo langan
tíma og skömmtun á rafmagni
á tímabili ofan í veðrið. Fjar-
skiptasamband var í ólagi sem
gerði allt starf okkar miklu mun
erfiðara en ella.
Þetta hefur breyst að einhverju
leyti á svæðinu öllu til hins betra.
Búið er að setja upp fleiri senda
fyrir TETRA fjarskiptabúnað
sem og að efla og verja betur
þá sem fyrir voru á svæðinu.
Sama má segja um GMS-senda
og búnað tengda því. Víða er
búið að styrkja raforkukerfið
og stærsta framkvæmdin á
svæðinu er lagning jarðstrengs
frá Varmahlíð til Sauðárkróks
sem eykur afhendingaröryggi
til muna. Hins vegar er ljóst að
mikið starf er óunnið í þessum
efnum og verður það verkefni
næstu ára.
Víða brustu sjóvarnir og nú
þegar hefur verið hafist handa
við lagfæringar á þeim og
verður því verkefni framhaldið
á þessu ári.“
Hvernig er að blanda saman
lögregluþjóninum og sveitar-
stjórnarmanninum þegar svona
ástand er í gangi? „Þeir hafa alltaf
náð að vinna vel saman og það
var engin breyting á því í þessu
ástandi. Yfirlögregluþjónninn
hefur alltaf verið í forgrunni
og var það þarna. Það er að
mínu mati kostur að þekkja
vel sveitarfélagið, starfsemi
þess, innviði og starfsfólk í
svona aðstæðum. Einnig hefur
þekking mín á sveitarfélögun-
um á svæðinu aukist verulega
með störfum mínum sem
sveitarstjórnarfulltrúi og full-
trúi í stjórn SSNV (Samtaka
sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra) þau tæpu ellefu ár sem
ég hef verið í þessu. Það klár-
lega hjálpar til þegar uppi er
neyðarástand líkt og skapaðist á
síðasta ári.“
Hvernig hefur samstarfið geng-
ið í sveitarstjórn? „Samstarfið í
sveitarstjórn hefur gengið mjög
vel, bæði innan meirihluta sem
og við minnihluta. Auðvitað eru
ekki allir sammála um allt, það
er eðlilegt, en við höfum náð
að vera samstíga í langflestum
málum og svo verða menn að
virða mismunandi skoðanir
hvors annars í því sem út af
stendur. Markmið allra er það
sama, að vinna fyrir samfélagið
okkar, um það eru allir sam-
mála.“
Samtakamáttur
samfélagsins gladdi
Hvaða verkefni eru framundan
sem þér finnst vera hvað mest
spennandi? „Það eru mörg mjög
spennandi verkefni fram undan
hjá sveitarfélaginu. Við erum að
byggja leikskóla á Hofsósi og þar
stefna menn á að halda áfram í
uppbyggingu á íþróttahúsi sem
og lagfæringu á grunnskólan-
um í kjölfarið. Það er mín von
að hönnun íþróttarhúss klárist á
þessu ári og hægt verði að fara í
framkvæmdir fljótlega eftir það.
Breytingar í Varmahlíðarskóla
er risa verkefni sem fer vonandi
í gang fljótlega en nú er unnið
að hönnun skólans þar sem
unnið er út frá því að leik- og
grunnskóli sé undir sama þaki.
Í dreifbýlinu verður áfram
unnið að hitaveituvæðingu
og ljósleiðartengingum en
stærsta einstaka verkefnið þar
verður borun nýrrar borholu
í Reykjarhól. Gangi það vel
verður það bylting fyrir okkur
varðandi öflun á heitu vatni í
Skagafirði.“
Stefán Vagn segir að á Sauð-Bræðurnir Stefán Vagn og Ómar Bragi fara yfir málin á fótboltavellinum.
árkróki hafi verið hafist handa
við jarðvegsvinnu við annan
áfanga sundlaugar Sauðárkróks.
„Það verður mjög gaman að
fylgjast með því verkefni á
næstu mánuðum en þegar þeim
áfanga verður lokið, áfanga tvö,
verðum við með stórglæsilegt
mannvirki sem mun nýtast
okkur og gestum okkar vel á
komandi árum. Við höfum
væntingar til þess að fara í
hönnunarsamkeppni á nýju
menningarhúsi á Sauðárkróki í
tengslum við Safnahúsið okkar
sem einnig verður spennandi að
fylgjast með rísa á næstu árum.
Framkvæmdir við Sauðár-
krókshöfn eru einnig áformaðar
en ljóst er að höfnin þarfnast
verulegar stækkunar á næstu
árum eigi hún að ná að anna
þeim fjölda skipakoma sem
ráð er fyrir gert og geta tekið á
móti skemmtiferðaskipum sem
hafa boðað koma sína hingað
í sumar og næstu sumur. Það
verður mjög spennandi viðbót
við ferðamennsku í Skagafirði.
Eins liggur fyrir að farið verður í
nýja götu á Sauðárkróki, Nestún,
á þessu ári en mikil eftirspurn
hefur verið eftir lóðum hér.
Framkvæmdir við gamla Barna-
skólann við Freyjugötu eru vel
á veg komnar sem og að stefnt
er að því að framkvæmdir
hefjist við byggingu um 20
íbúða við Freyjugötu (gamla
bílaverkstæðisreitnum) í vor
en þar er fyrirhugað að byggja
á milli 60 og 80 íbúðir á næstu
árum. Einnig er skipulagsvinna
hafin að fjölgun lóða á Hofsósi
og í Varmahlíð. Ótrúleg upp-
bygging hefur átt sér stað síðustu
ár á Sauðárkóki og í sveitum
Skagafjarðar sem verður að líta
á sem heilbrigðisvottorð um að
hér sé gott að búa og fólk vilji
festa rætur og setjast að.“
Höfðu aðstæður sem skapast
hafa vegna heimsfaraldurs ein-
hver áhrif á fjárhagsáætlun
sveitarfélagsins? „Það er ljóst
að bæði ríki og sveitarfélög eru
að taka á sig mikið högg vegna
faraldursins og sveitarfélagið
Skagafjörður er þar engin
undantekning. Sveitarfélagið
stendur hins vegar sterkt og er
vel undir það búið að takast á
við þetta verkefni fjárhagslega.
Rekstrarniðurstaða ársins
2020 liggur ekki fyrir en ljóst
að niðurstaðan mun bera þess
merki. Mín tilfinning er sú
að Sveitarfélagið Skagafjörður
muni koma mun betur út úr
þessu en mörg önnur sveitar-
félög á landinu og munar þar
um þær fjölmörgu sterku stoðir
sem samfélag okkar byggir á.“
Það verður kosið til þings á
komandi ári. Þú varst í þriðja sæti
á lista Framsóknarflokks síðast
en stefnir á fyrsta sætið núna.
Hvers vegna stefnir hugurinn á
Alþingi? „Ég er búinn að vera í
sveitarstjórn síðan 2010 eða í
að verða 11 ár og oddviti allan
þann tíma í meirihluta sem
hefur verið mjög skemmtilegur
og lærdómsríkur tími. Nú er
tímapunkturinn fyrir mig að
halda áfram og hef ég mikinn
metnað fyrir því að nýta krafta
mína fyrir allt kjördæmið á þeim
vettvangi. Það er mikilvægt og
ábyrgðarfullt verkefni að taka
sæti á Alþingi og vera fulltrúi
íbúa Norðvesturkjördæmis en
áskoranirnar eru fjölmargar og
verkefnin sem bíða ólík eins
og hagsmunir svæðisins. Fyrir
þeim þarf að berjast og ekkert
kemur af sjálfu sér og mig
langar að leggja krafta mína í
það mikilvæga verkefni.“
Þú hefur aðeins komið við á þingi
sem varamaður, hvernig lagðist
það í þig og hvernig vinnustaður
er Alþingi? „Alþingi er sérstak-
ur vinnustaður, ólíkur öllum
öðrum sem ég hef a.m.k. unnið
á. Ég held að það sé samt með
Alþingi sem vinnustað, eins og
alla aðra, að það þarf tíma til að
aðlagast og læra. Alþingi sem
vinnustaður er ólíkur því sem
birtist í fjölmiðlum að því leyti
að samvinnan og samstarfið er
miklu meiri en birtist í fréttum.
Ég varð ekki var við annað
þann tíma sem ég var þar inni
en vinnuandinn væri góður og
vinskapur á milli manna þvert á
flokka og flokkslínur.“
Er eitthvað sem hefur komið þér
þægilega á óvart á þessu ári eða
eitthvað sem hefur glatt þig?
„Það er alltaf eitthvað að gleðja
mann, bæði litlir hlutir og stór-
ir. Samtakamáttur samfélagsins
kom mér ekki á óvart en hann
gladdi mig mikið og gerði alla
okkar vinnu miklum mun auð-
veldari. Það gleður mann að
fylgjast með börnunum sínum,
fjölskyldu og vinum, takast á
við þeirra verkefni og hef ég
verið svo lánsamur að þrátt fyr-
ir þetta hamfaraár hefur þeim
vegnað vel. Það er ekki hægt
að sleppa því að nefna þann
frábæra árangur meistaraflokks
kvenna í knattspyrnu að komast
upp í efstu deild síðasta sumar
en það gladdi mig verulega
og verður mikil hvatning til
ungs íþróttafólks um að allt sé
mögulegt með æfingu, skipulagi
og trú – trú á sjálfum sér og trú
á verkefninu. Það verður mjög
spennandi að fylgjast með þeim
í sumar,“ segir Stefán Vagn að
lokum.
Lögreglan fundar í kjölfar óveðursins mikla í desember 2019.
Allir hressir! Fjölskyldumynd frá því árið 2016. Frá vinstri: Sara Líf, Stefán Vagn með
Hrafnhildi (Lillu), Atli Dagur og Hrafnhildur.
04/2021 7