Feykir - 27.01.2021, Qupperneq 9
Hvað er eftirminnilegast
frá fermingardeginum? Ætli
veðrið sé ekki eftirminnileg-
ast og afleiðingar þess.
Daginn fyrir ferminguna mína
var stórhríð og það var mikill
snjór á fermingardaginn. Þar
af leiðandi var kirkjan kynt
mjög vel og við það vöknuðu
íturvaxnar fiskiflugur sem
tóku þátt í athöfninni af mikilli
innlifun. Ég man meira eftir
flugunum suðandi í kringum
okkur fermingarsystkinin
heldur en því sem presturinn
sagði. Annars var dagurinn
yndislegur í alla staði. Veislan
var haldin í Flóðvangi og hafði
móðir mín, ásamt ættingjum
og vinum, útbúið veglega
veislu. Í fermingargjöf fékk
ég margar fallegar gjafir,
orðabækur eins og tíðkaðist á
þeim tíma en besta gjöfin var
píanó.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði
að verða bóndi og stunda
tamningar. Ekki var á dagskrá
að verða kennari en það er ég
í dag ásamt því að vera bóndi
en engar tamningar stunda ég.
Besti ilmurinn? Ilmurinn af
rjúpunum á jólunum.
Hvar og hvenær sástu núver-
andi maka þinn fyrst? Í Þýska-
landi árið 1998.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Það hefur
örugglega verið Sálin hans Jóns
míns.
Hvernig slakarðu á? Ég slaka
best á í heita pottinum eða í
göngutúr.
Hverju missirðu helst ekki af
í sjónvarpinu? Father Brown,
snilldarþættir.
Besta bíómyndin? Útlaginn.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Ég hef
mestar mætur á Guðjóni Val
Sigurðssyni.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Þrífa.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Humarsúpa.
Hættulegasta helgarnammið?
Snakkpokinn.
Hvernig er eggið best? Eggið
er langbest í köku.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Hvað ég er gleymin
en ég man ekki fyrir horn.
Hvað fer mest í taugarnar á
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Magdalena Margrét Einarsdóttir.
ÁRGANGUR: 1976.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Pétri Snæ Sæmundssyni og saman eigum
við tvö börn.
BÚSETA: Brekkukot í Þingi.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Foreldrar mínir eru Einar
Svavarsson og Sigríður Hermannsdóttir á Hjallalandi í Vatnsdal og
þar er ég alin upp.
STARF / NÁM: Ég er bóndi og grunnskólakennari í Húnavallaskóla.
Í vetur stunda ég diplómanám frá HÍ, íslenska sem annað tungumál
og lýk ég náminu nú í vor.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Í deiglunni er að lesa og vinna verkefni
í tengslum við námið mitt í HÍ, taka hrútana úr ánum og njóta
hækkandi sólar.
Magdalena
þér í fari annarra? Þegar fólk
smjattar og grípur fram í.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? Sá vægir sem vit hefur
meira.
Þú vaknar einn morgun í
líkama frægrar manneskju og
þarft að dúsa þar einn dag.
Hver værirðu til í að vera
og hvað myndirðu gera? Ég
vildi vera Bill Gates og borga
allar skuldir mínar og minna
nánustu. Því næst hjálpaði
ég bágstöddum og að lokum
myndi ég endurnýja tölvukerfi
Húnavallaskóla.
Hver er uppáhalds bókin þín?
Brennu-Njáls saga. Ég las
hana í grunnskóla og Guðrún
Bjarnadóttir frá Guðrúnarstöð-
um kenndi mér íslensku og hjá
henni lásum við Njálu og fórum
í ferðalag á Njáluslóðir. Guðrún
hefur einstaka hæfileika sem
kennari og gat hún gert sög-
una svo áhugaverða að mér
fannst sögupersónur verða
ljóslifandi í huga mér. Annars
get ég jafnframt nefnt Ronju
Ræningjadóttur og Bróður minn
ljónshjarta sem sitja enn í hjarta
mínu frá því ég las þær sem
barn.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Hvað er að frétta???
Hvaða þremur persónum vild-
irðu bjóða í draumakvöldverð?
Eiginmanni mínum og börnun-
um tveimur vegna þess að þau
standa mér næst. En ég gæti
ekki skilið foreldra mína út-
undan því þau hafa alltaf staðið
við bakið á mér og mínum.
Ef þú gætir farið til baka í tím-
ann, hvert færirðu? Ég færi aftur
til æskuáranna til að geta notið
þess að vera á Holtabrautinni
hjá Mæsu og Þormóði. Þar var
ýmislegt brallað og á ég margar
góðar minningar þaðan.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Grimmhildur Grámann –
„Eigðu við mig orð.”
Magdalena. AÐSEND MYND
Hefur þú einhvertíma séð
Maine Coon kött? Held að
hann hafi þá ekki farið
framhjá þér því það sem
einkennir þá tegund er
einna helst hvað þeir eru
stórir, síðhærðir, oft með
mikinn makka (kraga), loðið
skott og svokallaðar „tufdir”
á eyrunum. En þeir eru
einstaklega blíðir og góðir
og ekki að ástæðulausu að
þeir séu oft kallaðir „The
Gentle Giants“. Reynir
Kárason á Sauðárkróki á
einn slíkan sem heitir
Nökkvi en Feyki langaði
aðeins að forvitnast meira
um hann.
„Nökkvi er inniköttur en
fer stundum út á sumrin og
þá eingöngu í bandi. Maine
Coon getur verið allt frá sex
og upp í ellefu kg en Nökkvi
er í dag um níu kg,” segir
Reynir.
Hvenær eignaðist þú
Nökkva? Keypti hann vorið
2007 af ræktendum í Reykja-
vík.
Hvað er skemmtilegast við
Nökkva? Hann er ljúfur sem
lamb. Hegðar sér meira sem
hundur heldur en köttur.
Fagnar manni alltaf þegar
maður kemur heim með
háværu spjalli og heldur sig
oftast nálægt manni. Á
fastan stað í hægindastólnum
með Helgu, (eiginkona hans
Helga Rósa Guðjónsdóttir,)
á kvöldin þó varla sé pláss
fyrir hann þar.
Hvað er erfiðast? Feldurinn
er mikill og þarf talsverða
umhirðu.
Ertu með einhverja sniðuga
eða merkilega sögu af
gæludýrinu? Litla ljónið,
eins og við köllum hann
stundum, hefur ákaflega
lítið hjarta og t.d. þegar
ryksugað er á heimilinu
hendist hann alltaf upp í
glugga og treður sér bak við
gluggatjöld þar til hættan er
liðin hjá. Þegar við fáum
heimsókn þá hefur hann
mikla þörf fyrir að láta ljós
sitt skína, situr við hlið
okkar og spjallar endalaust
og ekki á lágu nótunum til
þess að láta bera á sér, enda
veit hann að hann er
kóngurinn.
Hann er
kóngurinn!
ÉG OG GÆLUDÝRIÐ | siggag@nyprent.is
Reynir Kárason | Kötturinn Nökkvi
Reynir Kárason og Maine Coon kötturinn Nökkvi.
MYND: HELGA RÓSA GUÐJÓNSDÓTTIR
04/2021 9