Feykir


Feykir - 10.03.2021, Blaðsíða 5

Feykir - 10.03.2021, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Lið Tindastóls hefur spilað tvo leiki síðustu vikuna og fylgdi tapi gegn Stjörnunni eftir með töpum gegn ÍR og KR. Liðið er enn í áttunda sæti Dominos- deildarinnar með tíu stig en þrjú lið eru með átta stig og því kristaltært að Tindastólsmenn þurfa að fara vinna leiki ef ekki á illa að fara. Næstu tveir leikir eru úti gegn Njarðvík og Val. ÍR – Tindastóll 91–69 Síðastliðinn fimmtudag spiluðu strákarnir gegn liði ÍR í Breið- holtinu, mikilvægur leikur og í raun ekkert annað en sigur á dagskránni. En það er því miður varla hægt að segja að Stólarnir hafi mætt til leiks og heimamenn unnu þægilegan 22 stiga sigur sem var aldrei í hættu. Lokatölur voru 91-69. Stólarnir héldu í við gestina fyrstu fimm mínúturnar en síðan skildu leiðir. Varnarleikur Tindastóls hefur ekki verið til útflutnings í vetur og það versnar í því þegar skytturnar virðast ekki sjá körfuna en skjóta samt. Staðan var 31-17 að lokn- um fyrsta leikhluta og það var ekki mikið í spilunum sem benti til þess að Stólarnir næðu að klóra í bakkann lengi framan af öðrum leikhluta. ÍR náði 15 stiga forystu, 38-23, en körfur frá Brodnik og Pétri löguðu stöðuna og þristur frá Tomsick kom muninum undir tíu stigin fyrir hálfleik. Staðan 45-37. Einhverjir vonuðust efalaust til þess að ágætar mínútur undir lok fyrri hálfleiks væru bara byrjunin á góðum leik Tinda- stóls en því fór fjarri, þriðji leikhluti var því miður nánast kópering á þeim fyrsta. Jaka Brodnik var atkvæða- mestur í liði Tindastóls með 17 stig og átta fráköst, Tomsick var með 15 stig, öll eftir 3ja stiga skot en Nick var nánast eini Stóllinn með lífsmarki utan 3ja stiga línunnar. Aðrir leikmenn settu niður tvær 3ja stiga körfur í 22 tilraunum og liðið með 18% nýtingu utan 3ja stiga línunnar. Tindastóll – KR 99–104 KR-ingarnir hans Darra Atla- sonar mættu í Síkið nú á sunnu- daginn og vonuðust stuðnings- menn Tindastóls til þess að sínir menn hristu af sér slenið. Það má raunar segja að þeir hafi gert það en dugði þó ekki til að þessu sinni því Vesturbæingar fóru heim með stigin tvö eftir að hafa sigrað 99-104. Leikurinn var fjörugur, hníf- jafn og æsispennandi og lá við að liðin væru í endalausu faðmlagi allan leikinn. Það voru þó gestirnir sem voru yfirleitt skrefinu á undan. Lið Tindastóls komst nokkrum sinnum yfir í leiknum en Vesturbæingarnir voru jafnan fljótir að grípa frumkvæðið á ný. Staðan í hálfleik var 43-49 en Tinda- stólsmenn sýndu góðan leik í þriðja leikhluta, komust fjórum stigum yfir, 63-59, upp úr miðjum leikhlutanum og voru enn yfir þegar fjórði leikhluti hófst, 75-73. Bjössi Kristjáns og Tyler Sabin voru Stólunum erfiðir í byrjun fjórða leikhluta og náði KR átta stiga forystu eftir fjögurra mínútna leik. Mestur varð munurinn ellefu stig þegar tvær mínútur voru eftir en tveir snöggir þristar frá Tomsick hleyptu spennu í leik- inn. Brodnik fékk síðan tvö víti og minnkaði muninn í þrjú stig, 95-98, en Stólarnir voru ekki nógu skynsamir í varnarleikn- um í næstu sókn KR og gestirnir sigldu sigrinum í höfn. Flenard Whitfield, nýr Kani Tindastóls, var nokkuð óvænt mættur til leiks og átti fínan leik. Þær 27 mínútur sem hann spilaði vann lið Tindastóls með tíu stiga mun. Kappinn gerði 22 stig og hirti 16 fráköst. Tomsick var þó stigahæstur með 27 stig, þar af setti hann niður sjö þrista í 14 tilraunum. Skotnýting Stól- anna utan 3ja stiga línunnar var ágæt í leiknum, 40%, en eyði- merkurganga Péturs utan land- helginnar hélt því miður áfram í gær. Pétur var með sex stig í leiknum en níu fínar stoðsend- ingar. Shawn Glover var ekki á skýrslu hjá liði Tindastóls. Tyler Sabin átti frábæran leik fyrir KR og virðist hafa gaman af því að spila gegn Stólunum. Hann gerði 36 stig í leiknum. Lið Tindastóls sýndi á köfl- um ágætan leik en þeir voru ekki nógu góðir til að vinna sprækt lið KR. Í viðtali við Körfuna kvaðst Helgi Rafn fyrirliði viss um að þetta færi að smella hjá Stólunum, hann var ósáttur við að fá á sig 104 stig og fúll yfir því að KR skoraði 31 stig í fjórða leikhluta. Hann sagði að Flenard liti vel út en félagar hans hittu hann fyrst tveimur tímum fyrir leik að lokinn sóttkví. Síðan smellti fyrirliðinn í eitt gamalt og gott áfram gakk! /ÓAB Dominos-deildin Þrjú töp Tindastóls í röð Flenard Whitfield sýndi góða takta í Síkinu á sunnudagskvöldið en það dugði ekki til. MYND: HJALTI ÁRNA Það var fjör á KS-vellinum á Króknum á laugardag þegar kvennalið Tindastóls tók á móti liði FH í Lengjubik- arnum. Leikurinn minnti svolítið á sumarið 2019 hjá Stólastúlkum, þær skoruðu helling af mörkum og fengu helling á sig en lokatölur, eftir mikla dramatík á lokamínút- unum þar sem víti fór í súginn, voru 4-5 fyrir gestina. Lið FH komst snemma leiks í 0-2 en Bryndís Rut minnkaði muninn. FH svar- aði í hvelli en Murielle sá til þess að staðan var 2-3 í hálf- leik. Gestirnir voru snöggir að bæta við tveimur mörkum í síðari hálfleik en heimastúlk- ur gáfust ekki upp. Laufey setti boltann í þverslá úr aukaspyrnu en stuttu síðar skoraði Krista Sól fínt mark. Fimm mínútum síðar nýtti María Dögg sér mistök mark- varðar gestanna og minnkaði muinn í eitt mark, 4-5. Í upp- bótartíma klikkaði María á víti og stigin fóru suður í Hafnarfjörð. Nágrannaslagur Tindastóll og Knattspyrnu- félag Fjallabyggðar mættust í B-deild Lengjubikarsins á KS- vellinum á sunnudag. Leikið var við skínandi fínar að- stæður en það voru gestirnir sem voru heldur sterkari aðilinn í leiknum en lið KF spilar í 2. deild en Stólarnir í þeirri þriðju. Jafnt var í hálf- leik en eftir æsilegan kafla um miðjan síðari hálfleik fækkaði í liði Tindastóls og gestirnir náðu að landa sigri, 2-3. Það var Addi Ólafs sem gerði bæði mörk Tindastóls í leiknum en Oumar Diouck gerði sömuleiðis tvö mörk fyrir KF. Atli Snær gerði sigurmark leiksins um tíu mínútum fyrir leikslok. /ÓAB Lengjubikarinn í knattspyrnu um helgina Aftur tvö töp Tindastóls Það var hörkuleikur í Síkinu þegar Stólastúlkur tóku á móti liði Grindavíkur í 1. deild kvenna í körfunni. Leikurinn var allan tímann jafn og spennandi en mesti munurinn á liðunum var átta stig, Grindvíkingum í vil, í upphafi fjórða leikhluta. Stólastúlkur snéru taflinu við í framhaldinu og unnu lokaleik- hlutann 21-13 og það dugði til mikilvægs sigurs. Lokatölur 62-59. Feykir spurði Árna Eggert, þjálfara Tindastóls, að því hvort þetta hefði verið sæmilegur leikur og svarið lét ekki á sér standa: „Já hann var virkilega flottur. Ég gæti ekki verið stoltari af þeim en ég er akkúrat núna!“ Eva Rún var stigahæst með 20 stig, Marín Lind gerði 16 stig auk þess sem hún skilaði sjö fráköstum og fimm stoð- sendingum. Eva Wium var nýstigin upp úr veikindum og hún skilaði 11 stigum en spilaði rétt rúmlega hálfan leik. Þá tók Inga Sólveg tíu fráköst í leiknum. Sennilega má segja að leikurinn hafi unnist á vítalínunni þar sem heima- stúlkur nýttu 13 af 15 víta- skotum sínum á meðan gest- irnir settu aðeins niður 14 af 25 vítum sínum. Þá unnu Stóla- stúlkur frákastabaráttuna 49- 38 og munar um minna. /ÓAB 1. deild kvenna | Tindastóll – Grindavík 52– 59 Flottur sigur Stólastúlkna á liði Grindavíkur Addi Ólafs gerði bæði mörk Tindastóls og átti fína spretti. MYND: ÓAB 10/2021 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.