Morgunblaðið - 15.06.2022, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022
S
ædís Ólöf Þórsdóttir er fædd og upp-
alin á Ísafirði. Hún og eiginmaður
hennar, GunnarIngi Hrafnsson, búa
á Suðureyri ásamt börnunum sínum
tveimur; Rebekku Rán, þriggja ára og Sigþór
Ólaf, eins árs. Hún segir að það sé yndislegt að
búa á þessum stað og segir að það sé margt um
að vera á staðnum. Í dag rekur hún Kerta-
húsið ásamt manninum sínum en sú hugmynd
kviknaði þegar heimurinn breyttist vegna
veirunnar.
„Kertahúsið varð til vegna kórónuveirunnar
en við eigum og rekum ferðaþjónustufyrir-
tækið Fantastic Fjords. Þegar veiran kom
hurfu viðskiptin þar. Við þurftum að hugsa
upp leiðir til að þreyja þorrann á þessum tíma
og þá sérstaklega hvað við gætum gert heiman
að frá okkur,“ segir Sædís. Hún bætir við að
maðurinn hennar hafi mikið dálæti á kertum
og af þeim áhuga hafihugmyndin að Kertahús-
inu sprottið.
„Okkur fannst vanta vestfirska minjagripi
og því ákváðum við að setja sögufrægar bygg-
ingar í kertaform.
Kertavax er frábær efniviður til að vinna
kertin smáatriði og erum við að vinna kertin
okkar úr mjög hörðu vaxi sem gott er að vinna
með og brenna á þann hátt að fullkominn
hringur myndast fyrir prittkerti og hægt er að
nota þau áfram sem lukt,“ segir Sædís.
Er með marga hatta á daginn
Í frumkvöðlafyrirtækjum
skiptir máli að gera verið
allt í öllu. Sædís er því
með marga hatta í Kerta-
húsinu.
„Ég steypi kerti og
mála, markaðsset vör-
una og sel hana í búðinni
og svo sé ég um bókhald-
ið,“ segir hún og brosir.
Faðir Sædísar er ættaður
frá Ísafirði og á hún ættir að
rekja þangað langt aftur í ættir.
Þegar hún er spurð að því hvernig
hafi verið að alast upp á Ísafirði segir hún það
gott.
„Það var bara mjög gaman. Maður var mik-
ið úti á sumrin og upplifði að eiga heima í
stórum bæ, því allt í kringum mig voru lítil
þorp. Þegar ég fór suður, þá sextán ára að
aldri, til að stunda nám í Menntaskólanum í
Reykjavík, komst ég fyrst að því að ég var úr
ekki svo stórum bæ,“ segir Sædís og bætir við
að hún hafi upplifað svo sterkt hvernig þorpið
hafi alið börnin upp.
Í Kertahúsinu fást margar fallegar vörur og
ilmurinn af kertunum er dásamlegur.
„Við prentum út plast-
módel, búum til silikonmótin
og í þau setjum við vaxið.
Þau sem koma hingað í
heimsókn, geta fylgst með
ferlinu.
Við seljum einnig ilmkerti
sem við búum til á staðnum
og er hægt að kaupa tilbúin ilmkerti en einnig
hanna kerti sjálfur. Þeir sem eiga sem dæmi
falleg ilmkertaglös geta komið hingað með þau
og fengið áfyllingu. Ég mæli með að allir sem
ætla vestur í sumar komi við hjá okkur og
skoði úrvalið með eigin augum.“
Hvað kerti er í uppáhaldi hjá þér?
„Ég hugsa að Ísafjarðakirkja sé eitt uppá-
haldskertið mitt en mér finnst svo fallegur
arkitektúr á bak við þá byggingu. Eins er svo
gaman að mála öll smáatriðin á hana. Það voru
VA arkitektar sem hönnuðu kirkjuna og var
hún byggð á árunum 1992 til 1995.
Þegar kemur að ilmkertunum, finnst mér
mjög gaman að búa til súkkulaðibolla með
súkkulaðiilmi og öllu tilheyrandi.“
Neðstikaupstaður
merkilegt minjasafn
Hvað mælir þú með að fólk skoði þegar
það kíkir í heimsókn?
„Hversdagssafnið er sérstakt en mjög
skemmtilegt safn, þar sem hægt er að leika sér
og upplifa góðar stundir. Safnahúsið er einnig
einstakt en það er staðsett í gamla sjúkrahús-
inu. Ég mæli alltaf með því að fara þangað.
Að sjálfsögðu verða allir að fara inn í uppá-
haldsbygginguna mína sem er Ísafjarðarkirkja
og skoða altarisverkið, sem sóknarbörn bjuggu
til. Verið er eftir Ólöfu Nordal og byggist á
helgisögunni um lausnarann og lóurnar. Verkið
heitir Fuglar himinsins og í því eru 749 leirlóur
sem sóknarbörn bjuggu
til.
Síðan verð ég að nefna
Neðsta-kaupstað, þar sem
er upplýsingamiðstöð og
byggðasafn.
Þar er veitingastað-
urinn Tjöruhúsið og þyrp-
ing húsa frá 18. öld. Á þessum stað er minja-
svæði á Ísafirði og einstök saga sem fylgir
svæðinu.
Þau sem vilja heimsækja kaffihús á staðnum
ættu að skoða kaffihúsið Heimabyggð sem
einnig er mjög skemmtilegt,“ segir Sædís.
Staðirnir gerðir fyrir heimafólkið
„Það er stemningin sem fólk ætti að leita eft-
ir að mínu mati. Hér eru veitingastaðir sem
hannaðir eru fyrir heimamanninn í stað þess að
opna veitingahús sem hannaðir eru fyrir ferða-
manninn eins og við sjáum stundum í miðborg
Reykjavíkur.
Ég get mælt með Tjöruhúsinu sem er mjög
góður fiskveitingastaður og Heimabyggð sem
er með alls konar girnilega brauðrétti.
Á hótelinu eru æðislegir kokkar sem ég get
mælt með og fyrir þá sem vilja stuð og stemn-
ingu, er lifandi tónlist á kvöldin í Húsinu.“
Þeir sem vilja fara út fyrir bæjarmörkin
ættu að skoða að fara á Vagninn á Flateyri.
„Einarshús í Bolungarvík gerir bestu pizz-
urnar. Þær eru bæði bragðgóðar og mat-
armiklar.“
Hvað með sund- og náttúrulaugar í nágrenn-
inu?
„Ég get mælt með sundlauginni á Suður-
eyri, sem er útisundlaug með heitum pottum
og barnalaug þar sem gestir mega drekka
kaffi og borða ís í pottinum.
Þegar kemur að náttúrulaugum þá mæli ég
með Reykjafjarðalaug. Hana má finna í
Reykjafirði við Arnarfjörð en þar eru tvær
heitar laugar. Önnur er steypt sundlaug sem
gerð var árið 1075. Ekki langt frá þeirri laug
er lítil, hlaðin náttúrulaug sem er 40 gráðu
heit.“
Merkileg fyrirtæki stofnsett á Vestfjörðum
Er mikill munur á því að fjárfesta í húsnæði
á þessu landsvæði en í Reykjavík?
„Það hefur orðið mikil fólksfjölgun á Vest-
fjörðum að undanförnu og húsnæðisverðið
tekur mið af því en já, hér fæst íbúðarhúsnæði
á hóflegu verði. Það er ekki spurning.
Það sem meira er og mikilvægt er að muna
að sem dæmi Marel varð fyrst til á Ísafirði.
Ástæðuna fyrir því tel ég vera þá staðreynd
að hér er mjög gott að stofna nýsköpunarfyr-
irtæki. Það hafa mörg fyrirtæki orðið til í
skúrum, eins og okkar,“ segir Sædís og bros-
ir.
„Ísafjarðarkirkja er í uppáhaldi“
Sædís Ólöf Þórsdóttir á góðar
minningar frá Ísafirði en í dag býr
hún á Suðureyri ásamt fjölskyldu
sinni.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Fuglar himisins stuttm
749 leirlóur voru gerðar af safnabörnum Ísa-
fjarðarkirkju. Fuglar himinsins eftir Ólöfu
Nordal eru eitthvað sem allir verða að skoða
þegar þeir fara vestur.
Sædís Ólöf Þórs-
dóttir stofnaði
Kertahúsið á Ísafirði í
miðri kórónuveirunni.
Égmæli með að allir
sem ætla vestur í
sumar komi við hjá
okkur og skoði úrval-
ið með eigin augum
Það er mikið æv-
intýri að koma í
Reykjafjarðarlaug.
Í Kertahúsinu má finna Ísafjarðarkirkju í kerta-
formi. Sædísi fannst vanta fleiri verk að taka
með heim úr ferðalaginu fyrir ferðamenn.
Sædís býr á Suðureyri.
Í Tjöruhúsinu á Ísafirði
er hægt að fá einn
besta fisk landsins.