Morgunblaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 11
ÁRBÓK FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS 2022 ER KOMIN ÚT Undir Jökli - Frá Búðum að Ennisfjalli Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533 Árbók Ferðafélags Íslands er komin út, sú 95. í röðinni. Í bókinni er sjónum beint að ysta hluta Snæfellsness. Höfundurinn, Sæmundur Kristjánsson, fæddist á Hellissandi en ólst að mestu upp í Rifi. Hann starfaði í áratug sem hafnarvörður í Rifshöfn og síðar sem verkstjóri hjá sveitarfélaginu í mörg ár. Á níunda áratug síðustu aldar hóf Sæ- mundur að segja ferðamönnum til vegar um Snæfellsnesfjallgarð og allt svæðið undir Jökli og árið 2006 lauk hann svæðisleiðsögunámi. Menningarnefnd Snæfellsbæjar útnefndi Sæmund Snæfellsbæing ársins 2016 fyrir skerf hans til kynningar á sögu og náttúru Snæ- fellsness. Sérkafli er um náttúruna undir Jökli eftir Daníel Bergmann. Eins og Sæmundur á Daníel ættir að rekja til Snæfellsness og þekkir náttúrufar svæðisins vel, ekki síst fuglalífið. Hann er einnig höfund- ur langflestra ljósmynda í bókinni. Bókin er 263 blaðsíður með 224 myndum og 12 uppdráttum sem Guðmundur Ó. Ingvarsson dró upp. Bókin er litprentuð með heimildaskrá ásamt örnefna- og mannanafnaskrám. Í bókarlok er greint frá starfi FÍ og deilda þess á landsbyggðinni á árinu 2021. Árbækur Ferðafélags Íslands hafa komið út síðan 1928. Í bókunumer oftast lýsing á afmörkuðu svæði og sögulegur ogþjóðlegur fróðleikur tengdur því. Nánast öllu landinu hafa verið gerð skil. Árbækurnar eru því efnisrík Íslandslýsing á um tuttugu þúsund blaðsíðum sem hefur fyrir löngu sannað gildi sitt sem traust uppspretta upplýsinga. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS – ÁRBÓK 2022 UNDIR JÖKLI – FRÁ BÚÐUM AÐ ENNISFJALLI Með góðri kveðju, Ferðafélag Íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.