Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 11
ÁRBÓK
FERÐAFÉLAGS
ÍSLANDS 2022
ER KOMIN ÚT
Undir Jökli - Frá Búðum að Ennisfjalli
Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533
Árbók Ferðafélags Íslands er komin út, sú 95. í röðinni. Í bókinni er
sjónum beint að ysta hluta Snæfellsness. Höfundurinn, Sæmundur
Kristjánsson, fæddist á Hellissandi en ólst að mestu upp í Rifi. Hann
starfaði í áratug sem hafnarvörður í Rifshöfn og síðar sem verkstjóri
hjá sveitarfélaginu í mörg ár. Á níunda áratug síðustu aldar hóf Sæ-
mundur að segja ferðamönnum til vegar um Snæfellsnesfjallgarð og
allt svæðið undir Jökli og árið 2006 lauk hann svæðisleiðsögunámi.
Menningarnefnd Snæfellsbæjar útnefndi Sæmund Snæfellsbæing
ársins 2016 fyrir skerf hans til kynningar á sögu og náttúru Snæ-
fellsness.
Sérkafli er um náttúruna undir Jökli eftir Daníel Bergmann. Eins
og Sæmundur á Daníel ættir að rekja til Snæfellsness og þekkir
náttúrufar svæðisins vel, ekki síst fuglalífið. Hann er einnig höfund-
ur langflestra ljósmynda í bókinni.
Bókin er 263 blaðsíður með 224 myndum og 12 uppdráttum sem
Guðmundur Ó. Ingvarsson dró upp. Bókin er litprentuð með
heimildaskrá ásamt örnefna- og mannanafnaskrám. Í bókarlok er
greint frá starfi FÍ og deilda þess á landsbyggðinni á árinu 2021.
Árbækur Ferðafélags Íslands hafa komið út síðan 1928. Í bókunumer
oftast lýsing á afmörkuðu svæði og sögulegur ogþjóðlegur fróðleikur
tengdur því. Nánast öllu landinu hafa verið gerð skil. Árbækurnar
eru því efnisrík Íslandslýsing á um tuttugu þúsund blaðsíðum sem
hefur fyrir löngu sannað gildi sitt sem traust uppspretta upplýsinga.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS – ÁRBÓK 2022
UNDIR JÖKLI – FRÁ BÚÐUM AÐ ENNISFJALLI
Með góðri kveðju, Ferðafélag Íslands